Skógræktarritið - 15.05.2011, Page 10

Skógræktarritið - 15.05.2011, Page 10
SKÓGRÆKTARRITIÐ 20118 er fjölbreyttur frumherjagróður að nema land. Næst tekur við framvinduskeiðið (transition) þegar nýjar tegundir setjast að innan um þann gróður sem kom- inn er og þrengja sumu af honum undan. Á loka- skeiðinu (maturation) hafa myndast gróðursamfélög þar sem ríkjandi tegundir haldast við kynslóð eftir kynslóð. Þremur árum eftir flóðið hafði töluvert mikill gróður og ótrúlega fjölbreyttur numið land á svæðinu. Ekki gat hann þó talist hreinn frumherja- gróður þar sem dálítið var eftir af gömlum gróðri, en alls voru þarna fræplöntur af 73 tegundum, sem voru 75% af flóru flóðfarsins og verða að teljast hreinir frumherjar. Í heild bar svæðið svipmót lands sem hafði verið svipt nær öllum sínum upprunalega gróðri og var að klæðast nýrri gróðurþekju. Haustið 2008, þ.e. tíu árum eftir flóðið, var gróð- urfar svæðisins athugað á ný. Gróður hafði aukist mikið frá því haustið 2001. Víða var komin sam- felld gróðurþekja, plönturnar stærri og þroskameiri og mismunandi gróðursamfélög farin að myndast. Í þetta sinn fundust 13 tegundir ekki aftur en 12 nýjar höfðu bæst við. Af þeim, sem virtust horfnar, voru nánast helmingurinn einærar eða skammlífar tegundir en að þeim hafi fækkað svona benti til að auðleystustu næringarefnin væru farin að skolast úr yfirborði jarðvegsins. Flestar tegundirnar sem bættust við vaxa venjulega í rótgrónum gróðursam- félögum. Þarna var því greinilegt að gróður á fram- vindustigi var farinn að taka við af frumherjagróðri- num. Hvarvetna í flóðfarinu voru trjáplöntur að vaxa upp. Stærstar voru plöntur af alaskaösp og reyni sem voru komnar upp af rótarsprotum. Ein hæsta öspin var sprottin upp af greinarbúti sem hafði fest í klettasprungu. Dálítið var af sjálfsáðum reyni- plöntum en þær voru mun lágvaxnari. Eitthvað kann að hafa verið af sjálfsáðum asparplöntum en það var ekki unnt að greina það frá rótarsprotunum. Horft niður eftir flóðfarinu. Asparstóðið á miðri myndinni, sem er rúmlega 5,4 metra hátt, er vaxið upp af grein sem festist í klettasprungu. Sjálfsáin sólberjaplanta. Sjálfsáðir sólberjarunnar hafa ein­ ungis tvisvar áður fundist utangarðs hér á landi.

x

Skógræktarritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.