Skógræktarritið - 15.05.2011, Page 30
SKÓGRÆKTARRITIÐ 201128
Einnig voru settar niður á fjórða þúsund hvítgreni
og þrjár tegundir fura (fjallafura, skógarfura og sta-
fafura), alls um sjö þúsund plöntur og var það mest
stafafura. Furan hefur ekki gengið nógu vel, fjalla- og
skógarfuran fóru endanlega í slæmum árum við upp-
haf níunda áratugarins og elsta stafa furan hefur látið
á sjá. Rauðgrenið hefur einnig þrifist illa, en tórir þó.
Lerki var nokkuð sett niður af (um 5.500 plöntur),
ásamt um 500 broddgreniplöntum og á þriðja þús-
und lauftrjáa (reynir, ösp, víðir). Á Ári trésins árið
1980 fékkst svo viðbótarland við svæðið, norðan
svæðis 2 (sjá uppdrátt).
Starf við gróðursetningu
– stuðningur við verkefnið
Í 30 ár vann siglfirskt æskufólk meira og minna á
hverju vori að gróðursetningu undir stjórn og leið-
sögn Jóhanns Þorvaldsonar á Skarðdalssvæðinu.
Var lítil aðstaða á svæðinu þá, nestis var neytt
undir berum himni eða leitað í gamalt kindahús ef
5
1
4
2
3
Lionshúsið nýlega afhent.
Ræktunarsvæði félagsins í gegnum tíðina. Upphaf ræktunar var á svæði 1 og svæði 5 er það nýjasta.