Skógræktarritið - 15.05.2011, Blaðsíða 31

Skógræktarritið - 15.05.2011, Blaðsíða 31
29SKÓGRÆKTARRITIÐ 2011 illa viðraði.. Í upphafi var þessi vinna alger sjálf- boðavinna en þegar á leið gat skógræktarfélagið greitt sínu unga starfsliði nokkra þóknun. Nú hin síðari ár hefur bæjarfélagið komið meira og meira inn í myndina og borgar nú laun flokksstjóra og unglinga sem vinna í skógræktinni í júní og júlí – mislangan tíma eftir aldri. Auk þessa hefur það veitt félaginu fjárstyrk allnokkur síðustu ár og ber að þakka þeim góðan stuðning. Þá hafa Lions – og Lionessu-klúbbar Siglufjarðar verið feiki öflugir styrktaraðilar. Má þar telja til litla skógarhúsið ofan heimreiðar að Skarðdal sem Lionsmenn byggðu og afhentu félaginu 31. maí 1984, og uppfylltu þar með langþráða ósk skógræktarfólks um sitt eigið afdrep á svæðinu. Gjöf þessi var í tilefni af 75 ára afmæli Jóhanns Þorvaldssonar þann 16. maí. Auk hennar var stofnaður styrktarsjóður Lions við skógræktar- starfið. Á 40 ára afmæli klúbbsins árið 1990 voru skógræktarfélaginu afhentar rúmlega 400.000 krón- ur. Þetta var viðurkenning fyrir frábært brautryðj- endastarf við erfiðar aðstæður og einstaka seiglu og sé þeim þökk fyrir sitt stóra framlag. Um það leyti var gróðursetning í meiri hluta ræktanlegs lands í Skarðdal langt komin og því orðið tímabært að huga að vega- og stígagerð. Grisjun, vega- og stígagerð Sumarið 1989 komu þrír ungir menn frá Skógrækt- arfélagi Íslands til að grisja skóginn á syðri hluta Skarðdalssvæðis, umhverfis Skarðdalskot, en þar voru aðstæður sérlega góðar (trén orðin 11–12 m há). Var þá tækifærið gripið og merktum við Jóhann fyrir fyrstu stígum sem grisjað var fyrir. Ári seinna var rutt vegastæði inn á svæðið og árið þar eftir var vegarstæðið malborið og stígagerð hófst. Ýmist var stungið upp torf og lagður jarðvegsdúkur undir og síðan gróf möl og fín eða sett kurl beint út þar sem það passaði. Frá upphafi var stefnt að því að nýta skógarúrgang til þessara hluta. Grannir trjástofnar eða sverar greinar voru notuð meðfram stígum, þar sem hætt var við að kurl eða annað undirlag dreifð- ist út (t.d. á köntum eða í hliðarhalla). Safnað var saman allmiklu magni og síðan fenginn stórvirkur kurlari til að kurla og fengið þannig efni til 2– 4 ára. Árið 1990 hófst einnig Landgræðsluskógaverk- efnið. Það var því margt í gangi þessi ár og eins gott að hvíldi ekki á neinum einum að halda utan um starfið eins og stundum var. Jóhann var einn nokkuð virkur og við Jónas Stefánsson unnum ýmist saman eða skiptum með okkur verkum. Vorum við komnir með ýmis áhöld og tæki sem vantaði geymslu fyrir, svo við breyttum kindahúsi sem stóð á bæjarstæðinu í geymslu og aðstöðuhús. Þá var einnig byggt hús með plássi fyrir 2 salerni og handlaugar. Stígagerðin kom kannski meira í minn hlut að sjá um, enda var ég ekki óvanur þessu unga fólki sem ég vann með og leiðbeindi. Það var auðvelt að vinna með þessu unga fólki – því líkaði starfið vel þegar það hafði lært handtökin og var ekki þörf á að leita að krökkum til þessara starfa, því þau komu oftast sjálf og spurðu hvort þau mættu koma í skógræktina. Þau unnu almennt mjög sjálfstætt og engin þörf var á að ýta á eftir þeim, frekar að þyrfti að láta þau taka „pásur“ inn á milli og slaka á öðru hverju. Landgræðsluskógaátakið – almenn þátttaka Landgræðsluskógaátakið hófst árið 1990 um land allt og voru um 1,3 milljón plöntur gróðursettar á 75 stöðum í öllum landshlutum við upphaf þess. Siglfirðingar voru með frá byrjun og gróðursettu um 11 þúsund plöntur á 1,8 hektara svæði ofan byggðar. Var um að ræða svæði sem var um 100 m breitt og 1,8 km að lengd, afmarkað að norðan af Hvanneyrará og að sunnan af Nautaskálhólum. Var þetta neðan sauðfjárgirðingar sem afmarkaði svæðið að ofan. Ýmis félagasamtök, klúbbar og annað áhugafólk tók þátt í þessu átaki ásamt bæjar- félaginu og tóku alls á fjórða hundrað manns þátt. Gróðursett var dagana 6.–18. júní. Fyrstu plönturn- ar voru einkum alaskavíðir og birki, auk smávegis af bergfuru og fáeinum plöntum af elri sem fylgdu Í Lionshúsi 1986. Jóhann nýhættur formennsku og gerður að heiðursfélaga í Skógræktarfélagi Siglufjarðar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Skógræktarritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.