Skógræktarritið - 15.05.2011, Síða 32

Skógræktarritið - 15.05.2011, Síða 32
SKÓGRÆKTARRITIÐ 201130 með til reynslu. Á öðru ári gróðursetningar þarna voru einnig gróðursettar 2500 plöntur af birki, víði, bergfuru og lerki. Landið sem gróðursett var í er hluta til snjóflóðasvæði en þar sem hættan var mest syðst á svæðinu voru leiðigarðar til að bægja hættunni framhjá syðsta hluta byggðar. Síðar þóttu þessir garðar ekki nægir og voru settar upp varnir ofarlega í hlíðinni vegna skaflamyndunar. Nokkru síðar var ákveðið að girða alla hlíðina ofan bæjar með þvergörðum. Þar með var séð að mestu fyrir örlögum þeirra plantna sem þarna höfðu verið settar niður. Nokkrum plöntum var bjargað og komið inn á Skarðdalssvæðið og víðar, en stærsti hlutinn varð eyðileggingunni að bráð og var rutt burtu. Við þessu var ekki mikið að segja, öryggið var auðvitað í fyrirrúmi. Samt sem áður þótti okkur erfitt að taka þessu bótalaust. Á Ísafirði höfðu fengist bætur fyrir trjágróður sem félagið þar hafði sett niður vegna byggingu á snjóflóðagarði. Var því leitað til Ofan- flóðasjóðs. Hægt gekk að fá nokkra úrlausn en um síðir tókst þó að fá nokkrar bætur. Var það góður stuðningur við þau verkefni sem voru í gangi. Jóhann hætti sem formaður 1986. Þá var langt komið gróðursetningu á svæði 3 og nokkuð byrjað á svæði 4, sem er svæðið umhverfis Skarðdalsbæ- inn. Meginhluti þess var túnið og næsta nágrenni norðan bæjarstæðis. Allstór hluti þess var sléttað land og mjög grasgefið, með háu grasi og þykkri grasrót. Til gróðursetningar voru bakkaplöntur og sýnt að þær yrðu ekki settar niður nema slá rúm- lega metra hátt grasið og rista af torflagið. Annað vandamál kom fljótlega í ljós– norðanvindur og lítið skjól. Við tók barátta í fáein ár við að halda lífi í þessum litlu plöntum og var ýmislegt reynt. Torfið sem rist var ofan af slétta túnsvæðinu var hlaðið í veggi norðan við svæðið til að mynda skjól en var of lágt. Plantað var víði í þeim tilgangi að mynda skjólbelti sem tók sinn tíma. Á tímabili notuðum við vörubretti sem gáfu meira skjól en lágir garðar meðan skjólbeltin voru að vaxa upp. Þetta hjálpaði svolítið en var alls ekki nóg. Þá var reynt að setja plasthólka utan um allmargar plöntur. Þetta hjálpaði talsvert gegn storminum en þá kom annað til. Þessa vetur var veðr- áttan mjög breytileg með frosti og þýðu til skiptis og þær umhleypingar þoldu þessar litlu plöntur alls ekki, stærsti hlut- inn lifði ekki af slíka vetur. Svona var vonlaust að halda áfram. Var ákveðið að setja ekki niður yngri plöntur en 3ja ára og gekk það ráð upp. Þær plöntur lifðu flestallar og þurfti ekki svo mikið að hafa fyrir þeim, gefa þeim smá áburð og hindra grasvöxt næst þeim. Þarna höfðum við öðlast dýrmæta reynslu. Það var miklu betra að setja niður 100 slíkar plöntur á þessu svæði en 1000 bakkaplöntur. Nú er langt komið plöntun á svæðinu. Ýmsir hópar hafa komið að gróðursetningu hér sem og á Skarðdalskotssvæði, meðal annars skólaárgangar, fermingarhópar eða fólk á ættarmótum. Fyrsti hópurinn var árg. 1945 sem plantaði 82 plöntum á rýmra svæði þannig að svæðið stækkaði um helming. Árg. 1948 kom svo og plantaði 30– 40 sæmilegum birkiplöntum. Hafa allir aðilar fylgt þeirri ábendingu að koma ekki með yngri plöntur en 3ja ára og hafa gott bil á milli. Einnig er hér svæði sem skólanum var úthlutað svo ákveðnir bekkir gætu sett niður Yrkjuplöntur. Þar er skjólbelti orðið allvel vaxið svo kannski dugar það smáplöntum. Mat á plöntufjölda á svæði 3 og 4 getur ekki orðið mjög nákvæmt, þar sem töluvert af plöntum drapst í upphafi, en vart er það þó minna en 30.000 plöntur. Viðbótarland fékkst í Leyningslandi sunnan Leyningsár fyrir landgræðsluskógaplöntur og skyldi það land girt jafnóðum. Fyrst var girt 50 m breitt belti, um 200 m að lengd. Í það land var plantað 60 stæðilegum plöntum á skógardegi 13. ágúst árið 2000, á 60 ára afmæli Skógræktarfélags Siglu- fjarðar. Síðan hefur verið girt svæði lengra inn eftir Hólsdal vegna framhalds á gróðursetningu land- græðsluskógaplantna. Börn Jóhanns ásamt fleirum við gróðursetningu árið 2002.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Skógræktarritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.