Skógræktarritið - 15.05.2011, Page 59
57SKÓGRÆKTARRITIÐ 2011
Skilyrt verðmætamat byggist á því að settar eru
upp aðstæður þar sem einhver breyting á þeim um-
hverfisgæðum sem er verið að meta á sér stað og
þátttakendur eru annað hvort beðnir um að afhjúpa
greiðsluvilja sinn fyrir því að koma í veg fyrir eða
að ná fram breytingunum eða bótavilja sinn fyrir
að sætta sig við að viðkomandi breytingar eigi sér
stað eða ekki. Áreiðanleiki mats sem byggt er á
skilyrtu verðmætamati veltur alfarið á þeim að-
stæðum sem settar eru upp í viðhorfskönnuninni og
því að þátttakendur telji þær vera trúverðugar og
líklegar til þess að eiga sér stað og muni þar með
hafa raunveruleg áhrif á ráðstöfunartekjur sínar.
Aðstæðurnar sem settar voru upp í skilyrta verð-
mætamatinu gengu út á það að ríkið hygðist setja
lög um friðun Heiðmerkur fyrir hvers konar fram-
kvæmdum um ókomna tíð og um leið færi umsjá
svæðisins alfarið í hendur fagaðila á sviði skógrækt-
ar og umhverfisstjórnunar. Hefði slík lagasetning í
för með sér íþyngjandi áhrif fyrir eigendur svæðisins
sem yrðu alfarið af öllum ábata tengdum framtíðar
nýtingarmöguleikum svæðisins og þyrfti ríkið því að
bæta eigendunum tjónið.12 Þátttakendur voru beðnir
um að taka afstöðu til friðunar Heiðmerkur og þeir
sem kusu friðun voru síðan beðnir um að taka þátt í
tveggja þrepa uppboðsleik þar sem þeir tóku afstöðu
til mismunandi breytinga á nefskatti sem lagður yrði
á til þess að greiða eigendum Heiðmerkur bætur. Já-
kvæðan greiðsluvilja á nefskatti í slíkum aðstæðum
má túlka sem tilvistargildi Heiðmerkur í núverandi
ástandi. Mat á tilvistargildi Heiðmerkur byggðu á
framangreindum forsendum stendur yfir um þessar
mundir en þó ber að geta þess að 60,5% aðspurðra
kusu friðun Heiðmerkur og höfðu jákvæðan
greiðsluvilja, 21,2% voru andvígir henni en 18,3%
voru óákveðnir.12
Önnur möguleg aðferð við mat á virði er að
beita valtilraunum. Valtilraunir byggjast á því að
þátttakendum í viðhorfskönnun eru boðnar mis-
munandi breytingar á umhverfisgæðum fyrir mis-
munandi verð, sem eftir aðstæðum geta til dæmis
verið í formi mismunandi ferðakostnaðar eða skatt-
byrði, og þeir beðnir um að velja þær aðstæður sem
þeir kjósa helst. Settar eru saman allar mögulegar
samsetningar af valspjöldum, eða þeim fækkað með
skilvirkum hætti, og út frá vali þátttakenda má meta
greiðsluvilja þeirra fyrir einstökum breytingum sem
boðnar eru.12
Í tilviki Heiðmerkur er erfitt að meta tilvistargildið
með valkönnunum. Ástæðan fyrir því er sú að
eingöngu er hægt að láta einstaklinga sem búa í
Garðabæ eða Reykjavík velja á milli breytinga
á eiginleikum Heiðmerkur sem hafa í för með sér
breytingar á álögum á íbúa þar sem þeir einir greiða
útsvar í sveitarfélögunum sem eiga og hafa umsjón
með svæðinu. Gefur það ekki rétt mat á tilvistargildi
svæðisins þar sem augljóst er að Garðbæingar og
Reykvíkingar eru ekki þeir einu sem hafa hag af
tilvist svæðisins. Eftir umtalsverða rýnihópavinnu
á meðal almennings í Reykjavík og Garðabæ varð
sú leið fyrir valinu að kanna greiðsluvilja íbúa
Reykjavíkur og Garðabæjar fyrir bættu aðgengi að
svæðinu. Voru 1250 manns sem eru íbúar annað
hvort í Garðabæ eða Reykjavík beðnir um að taka
þátt í valtilraunum í netkönnuninni sem send var
út á vegum Capacent. Þátttakendum voru boðnar
Lán til endurbóta
og viðbygginga
Íbúðalánasjóður veitir lán til endurbóta á húsnæði að innan og utan.
Meðal annars eru veitt lán til lóðarframkvæmda og viðbóta við húsnæði.
Lán geta numið allt að 80% af framkvæmdakostnaði. Hámarkslán eru
20 milljónir og lánstími 5 til 40 ár. Sömu vextir eru á þessum lánum og
almennum lánum Íbúðalánasjóðs.
Borgartúni 21 | 105 Reykjavík | Sími : 569 6900, 800 6969
www.ils.is