Skógræktarritið - 15.05.2011, Side 77
75SKÓGRÆKTARRITIÐ 2011
Skógviðarbróðirinn
Skógviðarbróðirinn er best skilgreindur sem þrílitna kynblendingur milli fjalldrapa og birkis. Hann
hefur annað hvort blendingsútlit eða hann líkist fjalldrapanum, en sjaldgæft er að hann líkist birki.
Hjá grasafræðingum fyrri hluta 20. aldarinnar 8,11
er skógviðarbróðir skilgreindur sem kynblendingur
milli fjalldrapa og birkis (Betula nana L. x B. pube
scens Ehrh.), einfaldlega vegna þess að plantan líkist
báðum tegundum. Það er líka sagt að skógviðar-
bróðir finnist víða á landinu og sé algengur þar sem
báðar tegundirnar vaxa. Slíkum blendingsplöntum
hafa einnig verið gefin tegundarheiti eins og B. inter
media Thom., B. alpestris Fr. eða B. humulis Hartm.
Á sama tíma viðurkenndu grasafræðingarnir að
skógviðarbróðir væri svo breytilegur í útliti að það
væri oftast ómögulegt að greina hann frá skógviði
því skógviðurinn sjálfur væri stórbreytilegur. Skóg-
viður er annað nafn birkis eða ilmbjarkar (B. pube
scens), en nokkrir hafa reynt að aðgreina skógviðinn
frá birki/ilmbjörk með því að kalla hann fjallabirki
(mountain birch) og flokka hann jafnvel undir sér-
tegund B. tortuosa Ledeb.7 eða sem undirtegund
innan birkis/ilmbjarkar,11,15 svo sem B. pubescens
var./subsp. tortuosa Ledeb. Stefán Stefánsson 11 rit-
aði svohljóðandi „Annars er íslenzka björkin mjög
breytileg og þyrfti gagngerðar rannsóknar.“
Það er einmitt það sem ég hef gert undanfarin 25
ár, að rannsaka og leiða grasafræðilegar og erfða-
fræðilegar rannsóknir á íslensku bjarkartegund-
unum.1-6,9-10,12-14 Birki (ilmbjörk, skógviður) er fer-
litna tegund með 56 litninga í erfðamengi sínu, en
fjalldrapi er tvílitna tegund með 28 litninga. Þegar
tegundirnar víxlast verður til kynblendingur, sem er
þrílitna með 42 litninga. Þær niðurstöður sem tengj-
ast útlitsgreiningu skógviðarbróðurs mest má finna
í greinum Ægis Þórs Þórssonar12,14 sem eru hluti af
doktorsritgerð hans. Í stuttu máli má segja að út-
litsbreytileiki meðal íslensks birkis sé svo mikill að
það er aðeins hægt að greina þrílitna kynblendinga
birkis og fjalldrapa eftir útliti með 50% öryggi töl-
fræðilega. Á mynd sem hér fylgir er dæmi um kyn-
blending birkis og fjalldrapa sem jafnframt hefur
Höfundur Kesara Anamthawat-Jónsson
blendingsútlit. Grasafræðilegar og tölfræðilegar
greiningar verða kynntar nánar í framhaldi af þess-
ari grein.
En nær allt birki á Íslandi hefur meira og minna
blendingsútlit. Athugið að útlit í grasafræðilegu
samhengi á við lögun laufblaða og hefur það lítið að
gera með vaxtarlag plöntunnar, þ.e. hvort plantan
sé algjörlega beinvaxin eða kræklótt, því vaxtarlag
er háð umhverfi. Með því að meta eiginleika lauf-
blaðsins má setja upp einfalt greiningarkerfi, svo-
kallað útlitsgildi (morphology index), frá 0 (fjall-
Samantekt sem byggir á rannsóknaniðurstöðum okkar um
íslenskar plöntur í bjarkarættkvíslinni Betula í náttúrunni.
Almennt heiti Hvað er það? Aðgreining eftir
útlitsgildi [0-13] 1
Fjalldrapi Tvílitna plöntur
B. nana
[0-6; meðalgildi 1,3]
80% af tvílitna plöntum
hefur skýrt útlit fjalldrapa
[0-1].
23% af þeim er hreinn
fjalldrapi [0].
Aðrar plöntur sýna
útlitseinkenni birkis á
mismunandi hátt.
Birki, ilmbjörk Ferlitna plöntur
B. pubescens
4-12; meðalgildi 8,3]
Af 241 ferlitna plöntum
víða um land er hreint
birkiútlit [13] ófundið.
Hæsta útlitsgildi sem
fannst [12] var hjá einu tré
í Bæjarstaðarskógi.
15% af ferlitna plöntum
hefur ótvírætt útlit
kynblendings [4-6].
Skógviðarbróðir Þrílitna kynblendingur
B. nana x B. pubescens
[0-9; meðalgildi 4,1]
43% af þrílitna plöntunum
hefur blendingsútlit [4-6].
41% af þrílitna plöntum
líkist fjalldrapa og
helmingur þeirra er
alls ekki frábrugðinn
fjalldrapanum [0-1].