Skógræktarritið - 15.05.2011, Síða 97
95SKÓGRÆKTARRITIÐ 2011
Áratugirnir frá 1950 og fram yfir 1980 voru tímar
deildarskipts skógræktarstarfs hjá mörgum skóg-
ræktarfélögum hér á landi. Ennþá eru starfandi skóg-
ræktardeildir skógræktarfélaga en á árunum 1951
til 1975 voru starfandi níu skógræktardeildir innan
Skógræktarfélags Eyfirðinga.
Tilgangur deildarskiptingarinnar var að færa
skógræktarstarfið nær félögunum og gera þá virkari.
Þann 26. febrúar 1951 var Skógræktarfélag Akur-
eyrar stofnað á Akureyri. Fyrsti formaður þess var
Þorsteinn Þorsteinsson en sonur hans Tryggvi Þor-
steinsson tók við formennskunni árið 1955 og var
formaður í 20 ár eða til ársins 1975.
Skógræktarfélag Akureyrar gekkst fyrir því að
gerður var samningur við Akureyrarbæ um friðun
Kjarnalands til skógræktar árið 1952. Segja má að
með því hafi verið tekin upp ný stefna í skógrækt á
Íslandi, stefna sem kalla má umhverfisskógrækt til
útivistar.
Það kom í hlut Tryggva að hrinda þessari stefnu
í framkvæmd og annast samskipti við Akureyrarbæ
um framgang skógræktar í Kjarnaskógi. Segja má
að hugmyndir Tryggva um skógrækt hafi verið bæði
framsýnar og nýstárlegar. Hann sá fyrir sér skóg
sem gæti orðið vettvangur útivistar fyrir bæjarbúa
í dagsins önn. Hann sá fyrir sér skóg sem gæti um-
vafið þéttbýlið á Akureyri. Tryggvi var vel tengdur
ýmsum öðrum félagasamtökum. Hann var formaður
Flugbjörgunarsveitar Akureyrar, einn af frumherjum
Ferðafélagsins, formaður í kennarasambandi Norð-
Framsýnn ræktunarmaður
Í aldarminningu Tryggva Þorsteinssonar
24. apríl 1911 – 6. júní 1975
urlands og landsþekktur skátaforingi og skólastjóri.
Þau tengsl notaði hann sér óspart til þess að glæða
áhuga ungra sem aldinna á skógræktarstarfinu. Á
kvöldin og um helgar var unnið í sleitulausri sjálf-
boðavinnu við skógræktina. Tryggvi átti þar sjálfur
drjúgan hlut að verki auk Ármanns Dalmannssonar
sem þá var framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Ey-
firðinga.
Síðar, eða árið 1972, gekkst Tryggvi fyrir því að
gerður var formlegur samningur milli Skógræktar-
félags Akureyrar og Akureyrarbæjar um Kjarnaskóg
sem útivistarsvæði. Sá samningur var stefnumark-
andi því komið var á virku samstarfi milli Akureyrar-
bæjar og Skógræktarfélags Akureyrar um skógrækt
til hagsbóta fyrir bæjarbúa. Tryggvi Þorsteinsson bjó
yfir sannfæringarkrafti og framsýni og tókst að vinna
áhugamálum sínum brautargengi. Þess vegna er núna
skógur innan landamerkja Akureyrarbæjar sem er
eitt fjölsóttasta útivistarsvæði á landinu. Mér er ekki
kunnugt um að orðið útivistarskógur hafi verið notað
áður en Skógræktarfélag Akureyrar var stofnað.
Tryggvi var einnig ötull stuðningsmaður skóg-
ræktar á öðrum stöðum í Eyjafirði. Þannig var hann
virkur sjálfboðaliði í skógrækt bæði á Miðháls-
stöðum í Öxnadal og í Vaðlaskógi gegnt Akureyri.
Í einni af gróðursetningarferðunum í Vaðlareit, eins
og skógræktarsvæðið var gjarnan kallað meðan trén
voru það lítil að þau sáust ekki frá Akureyri, orti
Tryggvi hvatningarsöng skógræktarmanna sem síðar
hefur hljómað í mörgum gróðursetningarferðum og
þar sem skógræktarfólk kemur saman til þess að efla
anda og mátt.
Vertu til er vorið kallar á þig.
Vertu til að leggja hönd á plóg.
Komdu út því sólskinið vill sjá þig,
sveifla haka og rækta nýjan skóg.
T.Þ.
Tryggvi var fæddur foringi og við sem kynntumst
honum dáðumst að hæfileikum hans og sannfær-
ingarkrafti. Hann bæði skipulagði og framkvæmdi.
Tryggvi féll frá um aldur fram aðeins 64 ára gamall
þann 16. júní 1975. Á hundraðasta fæðingarári
Tryggva Þorsteinssonar er vert að hugsa til þessa
afkastamikla frumherja sem lagði grundvöll að því
skógræktarstarfi sem sjá má um þessar mundir í
Kjarnaskógi við Akureyri og víðar í Eyjafirði.
Hallgrímur Indriðason