Skógræktarritið - 15.05.2020, Side 95
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2020 93
sendur í hreinsun til Svíþjóðar og náðist að
flokka það þannig að spírun varð um 97%.
Þetta er umhugsunarvert, sér í lagi
þegar haft er í huga mikilvægi þess að vera
viðbúin aukningu í plöntuframleiðslu.
Þá er rétt að ítreka það hér að öflun
stafafurufræs af Skagway uppruna er mjög
mikilvæg.
Gróðrarstöðvar
Upplýsingar um plöntuframleiðslu ársins
komu frá sjö plöntuframleiðendum
en samtals framleiddu þeir 3.216.733
skógarplöntur. Þetta voru Álmur, Barri,
Kvistar, Mörk, Nátthagi, Sólskógar og
Töfrastiklingar.
Fræ
Almennt má segja að árið 2018 hafi verið
slakt fræár en það sést vel á tölunum. Ekkert
birkifræ var að fá sem heitið getur á landinu
öllu og þroski stafafurufræs á Suður- og
Vesturlandi var afar slakur. Þó náðist að
safna nægjanlegu magni af stafafurufræi á
Austur- og Norðurlandi til sáningar vorið
2019 til viðbótar við þær birgðir sem enn
voru til eftir fræárið góða 2016. Nánast
ekkert stafafurufræ er nú til á lager og
vonandi verður fræþroski góður árið 2019.
Þá þarf að safna miklu magni af stafafuru-
fræi. Fræuppskera af Hrym í Fræhúsinu á
Vöglum var ágæt þetta árið. Spírunin var
þó fremur léleg en stór hluti af fræinu var
Fjöldi ársverka við skógrækt 2018
Launuð störf:
Skógræktin Skógræktarfélög Landgræðslan Einkaaðilar Hekluskógar Samtals ALLS
Karlar Konur Karlar Konur Karlar Konur Karlar Konur Karlar Konur Karlar Konur
Stjórnun og ráðgjöf 24,0 14,0 0,3 24,0 14,3 38,0
Skógrækt* 2,0 2,0 0,0 2,0
Skógarhögg, grisjun 4,0 4,0 0,0 4,0
Viðarvinnsla 6,0 3,0 6,0 3,0 9,0
Ræktun jólatrjáa og jólatrjáatekja 2,0 2,0 0,0 2,0
Mannvirkjagerð** 2,0 2,0 0,0 2,0
Plöntuframleiðsla 0,0 0,0 0,0
Rannsóknir 7,0 3,0 7,0 3,0 10,0
Ótilgreint: 15,8 2,0 15,8 2,0 17,8
Alls 47,0 20,0 15,8 2,0 0,3 62,8 22,3 85,1
* Gróðursetning, áburðargjöf, millibilsjöfnun, umhirða o.s.frv. ** Svo sem girðingar, vegir, stígar, aðstaða og önnur mannvirki
*** Ársverk svarar til u.þ.b. 2.000 klst. í vinnu
Seld jólatré 2018
Aðili
Stafa-
fura
Rauð-
greni
Sitka-
greni
Blá-
greni
Fjalla-
þinur
Síberíu-
þinur
Lindi-
fura
Tegund
óskilgr.
Alls
jólatré
Skógræktarfélög 3.769 650 663 382 100 2 52 5.618
Skógræktin - þjóðskógar 1.048 564 11 110 148 3 3 246 2.133
Skógarbændur & einkaaðilar 150 60 210
Alls 4.967 1.214 674 492 248 5 3 358 7.961
Hlutfall af heild 62,4% 15,2% 8,5% 6,2% 3,1% 0,1% 0,0% 4,5%