Bókatíðindi - nov. 2025, Side 4
IB
Árstíðarverur
Höf: Diljá Hvannberg Gagu
Myndh: Linn Janssen
Bjarni og bekkjarfélagar hans eru að læra um
árstíðirnar í skólanum. Hann verður því heldur
hissa þegar hann vaknar einn vormorgun og allt
er á kafi í snjó! Þetta passar alls ekki við það sem
kennarinn sagði. Hann fer út að rannsaka málið
en hittir þá fyrir kúnstugar verur sem segjast stýra
veðrinu en verst er að þær eru að rífast!
36 bls.
Salka
IB
Bambaló
Fyrstu lögin okkar
Höf: Sigrún Harðardóttir
Myndh: Linn Janssen
Ný og vönduð íslensk barnabók með gullfallegum
myndum og heillandi tónlist. Bókin er tilvalin til
að styrkja tengsl foreldra og barna, sem geta notið
þess saman að hlusta á tónlistina, syngja með og
skoða litríku myndirnar. Á hverri síðu eru nemar
sem yngstu lesendurnir geta sjálfir ýtt á, og heyra
þá fjölbreytt hljóðfæri leika skemmtileg lög.
10 bls.
Bambaló bókaútgáfa
IB
Bangsapokinn
Höf: Þórarinn Eldjárn
Myndh: Halldór Eldjárn
Bangsapokinn er myndskreytt barnasaga fyrir börn á
öllum aldri. Þar segir frá fullum poka af heittelskuðum
böngsum sem fyrir mistök mistæks afa lenda í
nytjagámi Sorpu. Ógæfan virðist vofa yfir og algjör
glötun blasir við þegar í ljós kemur að bangsarnir
muni trúlega enda á haugunum. Allt fer þó vel að
lokum. Myndir eru eftir Halldór Eldjárn.
24 bls.
Gullbringa
IB
Bangsímon og ég
Byggð á bókum eftir A.A. Milne & E.H. Shepard
Höf: Jeanne Willis
Myndh: Mark Burgess
Þýð: Helgi Ingólfsson
Hvar sem við ferðumst um veg, þar förum við
Bangsímon, kjáninn og ég! Þeir félagarnir Bangsímon
og Jakob Kristófer leggja enn af stað í ævintýri.
Skyldi einhver vilja slást í för með þeim?
42 bls.
Ugla
IB
Barna fræðibókin um geiminn
Höf: David Marchand
Þýð: Andri Karel Ásgeirsson
Þessi fallega bók um geiminn er frábær kynning á
leyndardómum alheimsins. Á fallega myndskreyttum
blaðsíðum má finna alheim af upplýsingum sem
höfða jafnt til ungra sem eldri lesenda. Forvitnir
lesendur fræðast meðal annars um sólkerfið,
vetrarbrautir og daglegt líf geimfara.
48 bls.
Unga ástin mín
Barnabækur
MYNDRÍKAR
IB
100 fyrstu orðin
Þýð: Andri Karel Ásgeirsson
Snertu, finndu og segðu! Yndisleg
bók fyrir yngstu börnin.
24 bls.
Unga ástin mín
IB
5 mínútna Marvel sögur
Höf: Marvel / Disney
Hér eru sögur af mestu ofurhetjum heimsins að takast
á við alls konar óvini. Hvað gera Kóngulóarmaðurinn,
Svarta ekkjan, Haukur, kapteinn Ameríka og
Járnmaðurinn þegar á reynir? En Svarti pardusinn,
Verndarar Vetrarbrautarinnar og kapteinn Marvel?
132 bls.
Edda útgáfa
IB
Amelía og Óliver
Höf: Kristín Björg Sigurvinsdóttir og Sigrún Alda
Sigfúsdóttir
Myndh: Herborg Árnadóttir
Amelía og Óliver er fyrst og fremst hugljúf saga
um vináttu og leikgleði. Að auki þjálfar hún
orðaforða með orðum sem börn heyra síður í
töluðu máli en eru mikilvæg þegar kemur að því
að lesa sér til gagns. Systkinin Amelía og Óliver
eru úti að leika og hitta tröll. Fyrst verða þau
hrædd en sjá svo að tröllið vill bara leika.
48 bls.
Bókabeitan
IB
Atli fer í tívolí
Höf: Birgitta Haukdal
Myndir: Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
Atli er búinn að vera duglegur að hjálpa til á heimilinu
í allt sumar og mamma ætlar að verðlauna hann með
tívolíferð. Þau bjóða Láru og Ljónsa með og framundan
er ógleymanlegt fjör og skemmtun. Og risastórt
kandífloss! Sögurnar um Láru, Ljónsa og Atla eru
litríkar og fallegar bækur sem krakkar hrífast af.
41 bls.
Forlagið - Vaka-Helgafell
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 5 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa TÍM Tímarit LKO Landakort4
Barnabækur MYNDRÍK AR
Barna- og ungmennabækur
Myndríkar