Bókatíðindi - nóv. 2025, Blaðsíða 65
KIL
Kosningafræðarinn
Kjördæmaskipan og aðferðir við úthlutun sæta
Höf: Þorkell Helgason og Jón Kristinn Einarsson
Kosningafræðarinn veitir heildaryfirlit yfir aðferðir
við úthlutun sæta að loknum kosningum, svo sem
í sveitarstjórnum eða á þjóðþingum en einnig
í persónukjöri. Jafnframt er fjallað um ýmiss
konar fyrirkomulag kjördæmaskipanar.
450 bls.
Hið íslenska bókmenntafélag
KIL
Krafturinn í Núinu – Minnisbók
Með spakmælum
Höf: Eckhart Tolle
Þýð: Helgi Ingólfsson
Þessi litla bók býður upp á dásamlegt tækifæri til
að ígrunda sumar af djúpvitrustu setningunum
í hinni einstöku bók Eckharts Tolle, Kraftinum í
Núinu, og skrifa við þær þínar eigin hugleiðingar
og vangaveltur. Persónuleg minnisbók með
spakmælum eftir föður núvitundarinnar.
96 bls.
Ugla
KIL
Kvíðakynslóðin
Höf: Jonathan Haidt
Þýð: Hafsteinn Thorarensen
Geðheilsa barna og unglinga hefur versnað svo
um munar. Tíðni þunglyndis, kvíða, sjálfsskaða og
sjálfsvíga hefur aukist verulega á síðustu árum og
í sumum tilvikum er um tvöföldun að ræða. Hvað
veldur þessari þróun? Hér leitar félagssálfræðingurinn
Jonathan Haidt að ástæðunum á bakvið aukninguna.
Djúpvitur, mikilvæg og heillandi metsölubók.
416 bls.
Salka
KIL
Hug/renningar
Um ljóð og frásagnir fyrr og nú
Höf: Bergljót Soffía Kristjánsdóttir
Úrval greina frá ríflega 30 ára tímabili. Viðfangsefnin
eru frá öllum helstu skeiðum íslenskrar
bókmenntasögu og þriðjungur efnisins ýmist nýr eða
hefur komið fyrir augu fæstra hérlendis. Meðal greina
er ein um fagurfræði þýska skáldsins Jeans Paul og
húmor Benedikts Gröndal og önnur um Laxdælu.
636 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
SVK
Hve aumir og blindir þeir eru
Dionysius Piper á Íslandi 1740–1743
Ritstj: Sumarliði R. Ísleifsson
Þýð: Gunnar Kristjánsson
Höf: Joanna Kodzik, Sumarliði R. Ísleifsson og
Gunnar Kristjánsson
„Hinn 2. júlí var presturinn hér við altarisgöngu,
en svo drukkinn var hann, að ömurlegt var
á að horfa“. Þannig lýsti herrnhútatrúboðinn
Dionysius Piper kynnum af íslenskum presti. Bréf
Pipers og önnur gögn, tengd veru hans á Íslandi,
birtast í þessari bók, auk inngangstexta.
148 bls.
Háskólaútgáfan
IB
Höfundur verður til
Frá Guðmundi Magnússyni til Jóns Trausta
Ritstj: Ásta Kristín Benediktsdóttir og Guðrún
Nordal
Í þessari bók fjalla átta fræðimenn og rithöfundar um
fjölbreytt höfundarverk Guðmundar Magnússonar,
ljóð, leikrit, skáldsögur og ritgerðir og varpa ljósi
á uppruna hans, umhverfi og æviferil.
250 bls.
Hið íslenska bókmenntafélag
KIL RAF
Í sama strauminn
Stríð Pútíns gegn konum
Höf: Sofi Oksanen
Þýð: Erla Elíasdóttir Völudóttir
Í þessari beittu ritgerð fjallar Oksanen um
kynferðisofbeldi sem helsta vopn rússneskrar
heimsvaldastefnu undir stjórn Pútíns. Hún vísar
í sína eigin fjölskyldusögu þegar hún greinir
frá og fordæmir það kerfisbundna ofbeldi sem
rússneski herinn hefur áratugum saman beitt
andstæðinga sína og nágrannaþjóðir. Ekki
vera skeytingarlaus, ekki líta undan.
280 bls.
Forlagið - Mál og menning
IB
Jeppar í lífi þjóðar
Höf: Örn Sigurðsson
Jeppar í lífi þjóðar bregður lifandi ljósi á þennan
merkilega en lítt kannaða kafla íslenskrar
samgöngusögu í máli en þó aðallega 600
einstæðum ljósmyndum sem koma nú margar
fyrir almannasjónir í fyrsta sinn. Þetta er
ómissandi bók fyrir bílaáhugamanninn og raunar
alla þá sem unna ferðum um úfið landið.
280 bls.
Forlagið - Mál og menning
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 5 65GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa TÍM Tímarit LKO Landakort
Fræðirit, frásagnir og handbækur
Lestur styrkir
jákvæða sjálfs-
mynd ogskerpir
gagnrýna
hugsun.
Sálarþroski.