Bókatíðindi - nóv. 2025, Blaðsíða 9
IB
Hver á mig?
Höf: Harpa Rún Kristjánsdóttir
Myndh: Jóhanna María Einarsdóttir
Einu sinni var lítill ljótur andarungi sem var alls
engin önd. Nú hefur orðið annar ruglingur á
fæðingardeildinni og íbúar hænsnakofans eru
alveg að missa þolinmæðina yfir háfættum jörpum
unga sem getur ekki fyrir sitt litla líf hagað sér
eins og almennilegum kjúklingi sæmir.
49 bls.
Króníka
IB
Ibbi tekur hjálpardekkin af & Ibbi sturtar úr
hjólbörum
Höf: Peter Nordahl
Myndh: Rasmus Bregnhøi
Þýð: Eyja Sigríður Gunnlaugsdóttir
Ibbi er forvitinn, áhugasamur og hjálpsamur.
Hann lendir iðulega í hversdagslegum ævintýrum
og er góður að hvetja vini sína áfram. Þættir
með Ibba hafa verið sýndir á RÚV.
32 bls.
Benedikt bókaútgáfa
IB
Írissa og Issi eignast kajak
Höf: Guðný Anna Annasdóttir
Myndh: Páll Jóhann Sigurjónsson
Systkinin Írissa og Issi búa í Hafnarfirði. Pabbi
þeirra hann Mundi, gefur þeim óvænta og
skemmtilega gjöf. Gjöfin kemur systkinunum
í kynni við álfana á Torfaskeri.
31 bls.
Gudda Creative
IB
Hér kemur Fílsi
Höf: Jørgen Stamp
Þýð: Huginn Þór Grétarsson
Upplifðu venjulegan dag í lífi Fílsa, frá morgni til
kvölds. Dagurinn hefst á því að Fílsi fer á fætur,
fær sér að borða, leikur úti og inni, fer í bað og
í dagslok fer krílið að sofa. Í bókinni er að finna
marga kunnuglega hluti til að benda á, nefna
á nafn og spjalla um. Skemmtileg og fræðandi
myndabók með lyftispjöldum á hverri opnu.
28 bls.
Óðinsauga útgáfa
IB
Hljóðin í dýrunum
Höf: Eric Carle
Þýð: Andri Karel Ásgeirsson
Fallegar myndir á hverri blaðsíðu og fjörug hljóð gera
yngstu kynslóðinni það auðvelt að læra um dýrin. Með
því að þrýsta á hnappana má heyra 30 dýrahljóð.
20 bls.
Unga ástin mín
IB
Risaeðlugengið 7
Hrekkjavaka
Höf: Lars Mæhle
Myndir: Lars Rudebjer
Þýð: Æsa Guðrún Bjarnadóttir og Sverrir Jakobsson
Gauti grameðla og Sölvi sagtanni elska hrekkjavöku!
Þeir heimsækja Gróu gaddeðlu og Nönnu
nashyrningseðlu, og þau fara öll saman að gera
grikk eða gott. Bækurnar um Risaeðlugengið
hafa slegið í gegn enda eru þær krúttlegar,
fræðandi og fyndnar og henta ungu áhugafólki
um risaeðlur og önnur forsöguleg dýr.
48 bls.
Forlagið - Mál og menning
IB
Hræðilegt hús
Höf: Meritxell Martí
Myndh: Xavier Salomó
Þýð: Elín G. Ragnarsdóttir
Þetta kvöld söfnuðust skrímslin úr ævintýrunum
saman á leynilegum stað í dimmu borginni
— þau hittust í kjallarabarnum Búdó — til
að ræða hina hræðilegu húsnæðiskrísu
sem þau stóðu öll frammi fyrir.
60 bls.
Drápa
IB
Hræðileg veisla
Höf: Meritxell Martí
Myndir: Xavier Salomó
Þýð: Elín G. Ragnarsdóttir
Hér verður boðið upp á veislumat sem þú hefur aldrei
séð áður! Þessi bók er bráðfyndin og hryllileg. Undir
stórum flipum er hægt að sjá uppáhaldsrétti allra
verstu skrímslanna úr uppáhalds ævintýrunum þínum!
Hinn heimsfrægi matreiðslumeistari Leó Gúttó útbýr
veislu sem svo sannarlega er við hæfi skrímslanna.
60 bls.
Drápa
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 5 9GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa TÍM Tímarit LKO Landakort
Barnabækur MYNDRÍK AR
Styðjum við lesskilning barna,
ræðum textann hvort sem við
lesum fyrir börn eða þau lesa
sjálf.
Tengjumst textanum:
• hefur þú séð svona?
• myndi þig langa til að prófa?
• hvað finnst þér um þetta?