Bókatíðindi - nov. 2025, Side 20
IB
Paradísareyjan
Höf: Embla Bachmann
Myndh: Bergrún Íris Sævarsdóttir
Eyjuhátíðin er haldin árlega en í þetta sinn fer allt
úr böndunum … Vinirnir Freyja og Hallgrímur eru
yfir sig spennt og mæta niður á bryggju að taka á
móti gestunum. En þeir eru fleiri en vanalega og
líka dónalegri! Þegar Freyja og Hallgrímur fara
að rannsaka málið komast þau að því að fæstir
eru komnir til að taka þátt í hátíðinni.
208 bls.
Bókabeitan
SVK
Þín eigin saga 11
Piparkökuborgin
Höf: Ævar Þór Benediktsson
Myndir: Evana Kisa
Þú ert í gönguferð í skóginum þegar þú finnur sæta og
góða lykt. Framundan er heil piparkökuborg. Góðlegar
gamlar konur taka á móti þér og bjóða þér bakkelsi –
eða eru þetta grimmar nornir sem ætla að lokka þig inn
í bakarofn? Þú ræður hvernig sagan fer! Hér spinnur
Ævar Þór þráð úr bók sinni Þitt eigið ævintýri.
72 bls.
Forlagið - Mál og menning
IB
Fótboltistarnir!
Ráðgátan á stystu nótt ársins
Höf: Roberto Santiago
Þýð: Ásmundur Helgason
Það líður að miðnætti á knattspyrnuvellinum í
Skógargerði og það þýðir að nú er hægt að kveikja
í varðeldunum á Jónsmessunótt. Og það sem er
mikilvægast, leikurinn gegn Vonskuvík er rétt að
hefjast. Sigurliðið mun taka sigurlaunin með sér heim,
styttuna af Jóhannesi skírara, til varðveislu í heilt ár.
64 bls.
Drápa
IB
Ráðgátan um háskalegu þokuna
Draugastofan 3
Höf: Kristina Ohlsson
Þýð: Tinna Ásgeirsdóttir
Það er draugagangur á bóndabænum Hagakoti.
Á næturnar kemur draugur og hleypir hesti
Róbertós Gonzales úr haganum. Þetta hefur gerst
ítrekað en bara þegar það er þoka … Róbertó
leitar til Eddu og Krumma á Draugastofunni um
hjálp. Hvað vill draugurinn eiginlega? Og hvers
vegna fer hesturinn alltaf að fossinum?
112 bls.
Ugla
IB
Vinkonur
Ráðgátur 1: Þjófur á hjóli
Höf: Sara Ejersbo
Þýð: Ingibjörg Valsdóttir
Karólína stóra systir Jósef ínu er í vandræðum. Kvöldið
sem hún fór snemma heim úr vinnunni var peningum
rænt af vinkonu hennar. Eða svo segir vinkonan...
136 bls.
Bókabeitan
IB
Ofurspæjari
Höf: David Walliams
Þýð: Guðni Kolbeinsson
Þegar mesti og besti spæjari heims er myrtur um
borð í farþegaskipi hver á þá að leysa morðgátuna?
Jú auðvitað Dillý og hundurinn hennar.
320 bls.
Bókafélagið
IB
Ævintýri Orra og Möggu 3
Orri og Magga: Lygilegir hrekkir
Höf: Bjarni Fritzson
Myndh: Þorvaldur Sævar Gunnarsson
Ótrúleg ævintýri Orra og Möggu eru börnum landsins
löngu orðin þekkt. Hér í þessari tvöföldu bók þá
ætla þau að segja okkur frá lygilegum hrekkjum sem
fóru að sjálfsögðu langt, langt, langt yfir strikið.
74 bls.
Út fyrir kassann
IB
Ævintýri Orra og Möggu 4
Orri og Magga: Vondu nágrannarnir
Höf: Bjarni Fritzson
Myndh: Þorvaldur Sævar Gunnarsson
Ótrúleg ævintýri Orra og Möggu eru börnum
landsins löngu orðin þekkt. Hér í þessari
tvöföldu bók segja þau frá því þegar hræðilegir
nágrannar fluttu í hverfið og þau þurftu að taka
til sinna mála og koma þeim í burtu.
64 bls.
Út fyrir kassann
IB
Orri óstöðvandi 1-3
Höf: Bjarni Fritzson
Ótrúleg ævintýri Orra og Möggu eru börnum
landsins löngu orðin þekkt og loksins eru fyrstu
þrjár Orra óstöðvandi bækurnar komnar aftur.
Þetta eru bækurnar:
Orri óstöðvandi 1,
Orri Óstöðvandi 2: Hefnd glæponanna og
Orri Óstöðvandi 3: Bókin hennar Möggu Messi.
250 bls.
Út fyrir kassann
IB
Orri verður óstöðvandi
Höf: Bjarni Fritzson
Nú er loksins komið að því sem þú ert búinn að bíða
eftir. Ég ætla að spóla nokkur ár aftur í tímann og
segja þér hvernig ég breyttist úr stresskallinum Orra
í ofurhetjuna Orra óstöðvandi. Í raun og veru hefði
þessi bók átt að vera fyrst í röðinni, en ég varð að bíða
með hana. Hún er nefnilega svo rosalega svakaleg.
270 bls.
Út fyrir kassann
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 5 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa TÍM Tímarit LKO Landakort20
Barnabækur SK ÁLDVERK