Bókatíðindi - nóv. 2025, Blaðsíða 33
KIL RAF HLB
Hefnd Diddu Morthens
Höf: Sigríður Pétursdóttir
Starfsferill Diddu Morthens er að engu orðinn, börnin
löngu farin að heiman og eiginmaðurinn er úrvinda öll
kvöld. Hún hangir í tölvunni til að drepa tímann og dag
einn býr hún til gervimenni á netinu til að hefna sín á
gamalli bekkjarsystur. Sprenghlægileg saga sem fékk
fyrstu verðlaun í handritasamkeppni Forlagsins.
132 bls.
Forlagið
KIL RAF HLB
Skuggabrúin
Heiðmyrkur
Höf: Ingi Markússon
Í Heiðmyrkri lýkur Ingi Markússon sögunni sem
hófst með Skuggabrúnni og hélt áfram í Svikabirtu,
bókum sem vakið hafa verðskuldaða athygli og lof.
Heiðmyrkur bindur þríleikinn saman í myrkri frásögn
á mörkum fantasíu og vísindaskáldskapar - sögu um
vináttuna og hefndina; lífið og eilífðina; vitundina
og vélina; ljósið, myrkrið og skugga manns.
412 bls. / 11:30 klst.
Storytel Original: hljóð- og rafbók
Sögur: prentútgáfa
KIL
Herbergi í öðrum heimi & Sápufuglinn
Höf: María Elísabet Bragadóttir
Herbergi í öðrum heimi og Sápufuglinn slógu
eftirminnilega í gegn, en sú síðarnefnda fékk
viðurkenningu Bókmenntaverðlauna ESB.
Sögurnar einkennast af djúpu innsæi, húmor
og hugmyndaauðgi. María skrifar af öryggi um
valdadýnamík í samböndum, flókna kynverund og
þrá fólks eftir því sem það getur ekki fengið.
256 bls.
Benedikt bókaútgáfa
IB RAF HLB
Herranótt
Höf: Steindór Ívarsson
Aldraður lögfræðingur sem starfaði hjá
utanríkisþjónustunni finnst myrtur á hrottalegan hátt.
Rúna og Hanna þurfa að grafa djúpt í fortíð þessa
leyndardómsfulla manns til að leysa málið. Aldrei hefði
þær getað órað fyrir illskunni sem þar leynist.
400 bls. / 09:00 klst.
Storytel Original: hljóð- og rafbók
Ástríkur bókaforlag: prentútgáfa
KIL RAF
Gestir
Höf: Hildur Knútsdóttir
Þegar ókunnug læða gýtur kettlingi heima hjá Unni
neyðist hún til að veita köttunum skjól og hlúa að
þeim ásamt eiganda þeirra, Ástu. Með konunum
tveimur tekst óvænt vinátta og smám saman hleypa
þær hvor annarri inn í sína myrkustu kima, áföll
og ástarsambönd. Þegar ógn steðjar að standa þær
saman – jafnvel þótt það kosti ósegjanlega glæpi.
147 bls.
Forlagið - JPV útgáfa
IB
Girnd
Höf: Þóra Sveinsdóttir
Helga hafði allt: fjölskyldu, vini og frama sem
tekið var eftir. En á bak við luktar dyr átti hún
líka líf sem fáir vissu um. Þegar hún finnst látin á
heimili sínu virðist það í fyrstu vera slys – þar til
sannleikurinn kemur smám saman í ljós.
298 bls.
European Digital University
IB
Gleymd
Höf: Unnur Sólrún Bragadóttir
Erna er 27 ára, vinnur hjá bókaforlagi og fær
það verkefni að rita ævisögu Evu sem lengi bjó í
Danmörku og varð þar þekktur rithöfundur. Eva
á litríkt líf að baki en er nú flestum gleymd. Hún
er orðin veik, einmana og full haturs og hefnigirni
og ætlar að koma höggi á fyrrum félaga sína.
165 bls.
Skrudda
IB
Glæður galdrabáls
Höf: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
Glæður galdrabáls fjallar um tíma galdraótta og
ofstækis. Hér er rakin saga móður og sonar sem
lögðu fótgangandi í langa ferð norðan úr landi vestur
á firði í leit að betri kjörum, á síðari hluta 17. aldar,
þegar tíðkaðist að brenna fólk á báli fyrir galdra.
199 bls.
Skrudda
IB
Grár köttur, vetrarkvöld
Höf: Ægir Þór
Til hvers er lífið þegar kötturinn manns er týndur? Slík
spurning gæti virst léttvæg, en þegar öllu er á botninn
hvolft er þá eitthvað mikilvægara en að finna ylinn af
öðru lífi? Að vita af einhverju sem undirstrikar eigin
mannleika? Eitthvað sem jafnvel mætti kalla ást?
221 bls.
Bókabeitan
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 5 33GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa TÍM Tímarit LKO Landakort
Skáldverk ÍSLENSK
Heimili
hinna
fullkomnu
glæpa