Bókatíðindi - nóv. 2025, Blaðsíða 54
KIL
Mara kemur í heimsókn
Höf: Natasha S.
Hér er lýst heimkomu til Rússlands eftir langa
fjarveru, en um leið á sér stað uppgjör við pólitískt
og menningarlegt ástand. Natasha S. er íslenskur
rithöfundur af rússneskum uppruna sem hefur vakið
verðskuldaða athygli fyrir ljóð sín og greinar. Fyrsta
bók hennar, Máltaka á stríðstímum, færði henni
Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar.
50 bls.
Benedikt bókaútgáfa
IB
Myndarleg ljóð
Höf: Bjarki Bjarnason
Í þessari bók teflir höfundur fram ljósmyndum
sínum og ljóðum svo úr verður firnasterk heild.
Flestar ljósmyndirnar eru teknar í íslenskri náttúru
og heimspekilegur undirtónninn í ljóðunum er
í senn persónulegur og sammannlegur. Bjarki
hefur stundað ritstörf um áratuga skeið og fæst
jöfnum höndum við skáldskap og sagnfræði.
112 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
SVK
Nautnir
Höf: Mario Bellatin
Þýð: Birta Ósmann Þórhallsdóttir
Nautnir er kröftugur og stingandi bálkur þar sem
hráblautur og gelaður raunveruleiki og yfirgengileg
þráhyggja fyrir hreinleika renna saman á súrrealískan
hátt í heimi þar sem hinir dauðu ráða ríkjum og ungur
heimspekingur þráir að eignast heilagan hund.
95 bls.
Skriða bókaútgáfa
IB
Nokkur orð um notagildi lífsins
og áður óþekkt ljóð
Höf: Sigmundur Ernir Rúnarsson
Áleitin ljóðabók eftir eitt af okkar helstu skáldum.
94 bls.
Veröld
KIL
Og óvænt munu hænur hrossum verpa
Höf: Gunnar J. Straumland
Hér finnur lesandinn kvæði ort undir fjölbreyttum
háttum, s.s. sonnettur, dróttkvæði, limrur,
ferskeytlur og kvæði ort undir fjölda annarra
afbrigða háttbundins kveðskapar. Hálfkæringur,
bjartsýni, tregi, hæðni, lífsgleði, aulahúmor,
svartsýni, ást, rómantík, efi, ádeila, upphafning og
íhygli spretta hér á stuðlanna þrískiptu grein.
120 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
IB
Lífið er undantekning
Höf: Sigurlín Bjarney Gísladóttir
Lífið er undantekning er níunda bók Sigurlínar
Bjarneyjar. Fjölbreytt ljóðabók í efni og formi
eftir eitt af okkar athyglisverðustu skáldum,
sem síðast sendi frá sér nóvelluna Sólrúnu
(2022) sem vakti mikla athygli.
64 bls.
Bjartur
IB
Ljóðasafn
Höf: Guðrún Hannesdóttir
Djúpur og kjartnyrtur skáldskapur, stílbrögðin
áhrifamikil, tungutakið meitlað og myndmálið
ríkulegt. Yrkisefnin spegla næmi fyrir því óræða
og f íngerða, en líka skoplegum hliðum tilverunnar
og ekki síður því sem miður fer í torræðum og
ögrandi samtíma. Safnið hefur að geyma allar
tíu ljóðabækur Guðrúnar frá 2007-2024.
543 bls.
Dimma
SVK
Ljóðasafn II
1989-1992
Höf: Gyrðir Elíasson
Þrjár bækur sem hafa verið ófáanlegar um
áratugaskeið en eru nú saman komnar í einu lagi í
þessari vönduðu heildarútgáfu á verkum skáldsins.
Hér birtast Tvö tungl (1989), Vetraráform um
sumarferðalag (1991) og Mold í Skuggadal (1992).
Ómissandi verk í safn allra bókaunnenda.
286 bls.
Dimma
SVK
Ljóðasafn III
1996-2003
Höf: Gyrðir Elíasson
Þrjár einstakar ljóðabækur sem hafa verið ófáanlegar
um langt árabil: Indíánasumar (1996), Hugarfjallið
(1999) og Tvífundnaland (2003). Það er mikill fengur
að þessari nýju útgáfu sem er hluti af heildarsafni verka
skáldsins. Ómissandi í safn allra bókaunnenda.
256 bls.
Dimma
IB
Austfirsk ljóðskáld
Ljóð mitt og lag
Höf: Hreinn Halldórsson
Höfundur ólst upp á Hrófbergi við Steingrímsfjörð
en flutti til Egilsstaða 1982. Vísna- og ljóðagerð
hefur fylgt honum frá unga aldri og tónlistin er
einnig ríkur þáttur í lífi hans. Fyrsta bók hans
birtist nú lesendum, úrval ljóða hans og söngtexta.
Marga þeirra hefur hann gert við eigin lög. Bókin
er númer 25 í flokknum Austfirsk ljóðskáld.
104 bls.
Félag ljóðaunnenda á Austurlandi
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 5 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa TÍM Tímarit LKO Landakort54
Ljóð