Bókatíðindi - nóv. 2025, Blaðsíða 27
SVK
Lubbi – Verkefnabók 1
Höf: Eyrún Ísfold Gísladóttir og Þóra Másdóttir
Í bókinni er fjöldi verkefna sem auka færni í að
meðtaka tengsl málhljóða og bókstafa. Þannig er
hægt að leggja grunn að lestrarnámi og læra að
skrifa eftir fyrirmynd. Fjöldi forvitnilegra orða og
margs konar verkefni stuðla að auknum orðaforða
sem ýtir undir lesskilning og auðugt málfar.
63 bls.
Forlagið - Mál og menning
IB
Lærum stafrófið
Frá A til Ö
Höf: Huginn Þór Grétarsson
Bókina er hægt að nýta til að æfa lestur á stökum
orðum og stuttum setningum. Hún inniheldur
íslenska stafrófið í réttri röð auk viðbótarstafa sem
koma fyrir í orðum og nöfnum í íslensku máli.
Lifandi myndir ýta undir ánægju og eftirtekt. Þær
auðvelda börnum jafnframt að læra stafróf. Þessi bók
er gagnlegt verkfæri fyrir foreldra og kennara.
40 bls.
Óðinsauga útgáfa
IB
Lögreglan
Höf: David Hawcock
Þýð: Huginn Þór Grétarsson
Hvernig bíla notar lögreglan? Líta bílarnir eins út
í öllum löndum? Hvaða farartæki notar lögreglan
á sjó og í lofti? Falleg lyftispjaldabók sem hentar
breiðum hópi lesenda, allt frá tveggja ára og upp í
tólf ára aldur. Krakkar heillast að störfum lögreglu
og slökkviliðs og geta nú fræðst um hvernig
farartæki lögreglan notar víða um heim.
20 bls.
Óðinsauga útgáfa
IB
Margrét Lára
Ástríða fyrir leiknum
Höf: Bjarni Helgason og Margrét Lára Viðarsdóttir
Margrét Lára Viðarsdóttir er meðal fremstu
íþróttamanna sem Ísland hefur alið. Hún er
markahæsti landsliðsmaður Íslands í knattspyrnu
frá upphafi og spilaði í sterkustu deildum heims.
Hér segir Margrét Lára sögu sína og deilir reynslu
sinni og góðum ráðum. Hún gerir ferilinn upp og
segir á einlægan hátt frá sigrum og mótlæti.
312 bls.
Salka
GOR
Málað með fingrunum
Þýð: Helgi Jónsson og Anna Margrét Marinósdóttir
Sköpum nýjan heim með fingrunum. Smellum
litum á fingurna og byrjum að mála! Örugg
olía og skemmtilegar myndir.
64 bls.
Sögur útgáfa
SVK
Jólaævintýri VÆB
Lita- og þrautabókin
Höf: Addi nabblakusk
Taktu þátt í jóla-VÆBinu. Hér eru myndir
að lita og þrautir að leysa. Skemmtilegar
jóla-VÆB-myndir, krossgátur, orðasúpur,
vísnagátur og fleiri þrautir. Litum, hlæjum og eigum
notalegar stundir á aðventunni og um jólin.
50 bls.
Sögur útgáfa
SVK
Klár í sveitina
Höf: Jessica Greenwell
Klár í sveitina er kassi með 3 bókum. Litabók,
límmiðabók og verkefnabók. Allar bækurnar snúast
um sveitina og eru ætlaðar börnum frá 3 ára aldri.
25 bls.
Rósakot
SVK
Leyndardómar Valþjófsstaðahurðarinnar
Höf: Blær Guðmundsdóttir
Myndh: Blær Guðmundsdóttir
Myndir: Ívar Brynjólfsson
Skemmtileg þrautabók um Valþjófsstaðahurðina og
þær fjölmörgu sögur sem tengjast henni, svo sem
myndasöguna sem skreytir hana, sögu timbursins
og handverksins og fólksins sem umgekkst hana.
Hurðin var í kirkjunni á Valþjófsstað í Fljótsdal í yfir
600 ár og hægt er að sjá eftirlíkingu af henni þar.
48 bls.
Þjóðminjasafn Íslands og Minjasafn Austurlands
IB
Liverpool
Nýr þjálfari, nýtt lið, nýir sigrar!
Höf: Illugi Jökulsson
Eftir skemmtileg ár undir stjórn Klopps héldu flestir
að nýr þjálfari þyrfti tíma til að setja mark sitt á
liðið. Það var öðru nær. Arne Slot er strax kominn
með frábært meistaralið. Snillingar eins og Salah og
Van Dijk hafa aldrei verið betri og nú eru komnir
nýir menn eins og Rios Ngumoha, Alexander
Isak og Wirtz sem gera liðið enn sterkara.
76 bls.
Sögur útgáfa
IB
Bók með hljóðum
Lítil eyru, mikil hljóð
Hljóð í tíu villtum dýrum
Þýð: Helgi Jónsson og Anna Margrét Marinósdóttir
Opnaðu inn í villtar óbyggðir og skoðaðu kameldýr
sem ferðast um í brennheitri eyðimörk og kóalabjörn
sem tyggur lauf uppi í tré. Ýttu á takkana til að heyra
hljóðin í þeim. Fallegar myndir af villtum dýrum
og skemmtilegur fróðleikur á hverri blaðsíðu.
10 bls.
Sögur útgáfa
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 5 27GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa TÍM Tímarit LKO Landakort
Barnabækur FR ÆÐI OG BÆKUR ALMENNS EFNIS