Bókatíðindi - nóv. 2025, Blaðsíða 55

Bókatíðindi - nóv. 2025, Blaðsíða 55
KIL Vetrarmyrkur Höf: Gunnhildur Þórðardóttir Hér er ort um æskuna, sárin, móðurhlutverkið, minnisverðar persónur og náttúruna. Sum ljóðin eru rómantískar lýsingar á landslagi, manneskjunni, menningu og hlutum, en einnig koma við sögu málefni sem brenna á öllum: jafnrétti, hnattræn hlýnun og femínismi. 44 bls. Bókaútgáfan Sæmundur KIL Við vegg tímans Höf: Margrét Gísladóttir Höfundur hefur lengi starfað í heilbrigðiskerfinu sem geðhjúkrunar- og fjölskyldufræðingur. Meðfram því hefur hún skrifað ljóð en hugðarefnin hafa verið áskoranir sem einstaklingurinn stendur frammi fyrir bæði í nærumhverfi og á heimsvísu. Áður hefur Margrét sent frá sér ljóðabókina Í birtingu (1991). 76 bls. Bókaútgáfan Sæmundur KIL Yndishrúga Höf: Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir Steinunn Arnbjörg fremur ljóð og tónlist. Tónsmíðar hennar, ljóð og lög, má heyra á tónleikum, plötum og í útvarpi. Prentuð finnast ljóð hennar í bókmenntatímaritinu Stínu og fyrri ljóðabókum. Yndishrúga geymir andardrátt, eyrnalokka víðs fjarri, ímyndað rifbein. Hugsanlega býr hún yfir dásemdum. 68 bls. Bókaútgáfan Sæmundur KIL Þegar ég var lítill var ég alltaf hræddur Höf: Gunnar Randversson Fimmta ljóðabók Gunnars sem einnig hefur sent frá sér smásagnasafnið Gulur Volvo. Gunnar er tónlistarmaður og -kennari og hefur gefið út tvo geisladiska með eigin tónlist. 48 bls. Bókaútgáfan Sæmundur KIL Þyngsta frumefnið Höf: Jón Kalman Stefánsson Einn ástsælasti höfundur þjóðarinnar, Jón Kalman Stefánsson, sendir frá sér sína fimmtu ljóðabók. Umfjöllunarefnin eru víðfeðm: vísindin og guðdómurinn, ferðalög og hið djöfullega, samtíminn og sorgin; sem er þyngsta frumefnið ásamt söknuðinum. 128 bls. Benedikt bókaútgáfa KIL Orðabönd Höf: Brynhildur Auðbjargardóttir, Hrefna Róbertsdóttir, Hrund Apríl Guðmundsdóttir, Steinunn Þorsteinsdóttir og Sveinbjörg Sveinsdóttir Ritstj: Guðrún Steinþórsdóttir Dregnar eru upp margræðar myndir úr lífi og hugarheimi, þar sem orð mynda brú á milli minninga, drauma og veruleika. Í bókinni fléttast smásögur, örsögur og ljóð saman í sex bálka: Afturblik, Himnaró, Svifbrot, Hugarstillu, Sálarsáldur og Ljósför. Fimm raddir mætast í einum samstilltum hljómi. 110 bls. Kápurnar SVK Postulín Höf: Sunna Dís Másdóttir Postulín er áhrifamikil ljóðabók um hamfarir, bæði þær sem ryðjast fram af slíku offorsi að þær setja mark sitt á allt samfélagið og þær persónulegu sem fæstir heyra nokkurn tímann af. 64 bls. Forlagið - Mál og menning KIL Samtímarímur Höf: Sigurlín Hermannsdóttir, Sigrún Ásta Haraldsdóttir, Gunnar J. Straumland og Helgi Zimsen Ritstj: Ragnar Ingi Aðalsteinsson Fjórir splunkunýir rímnaflokkar eftir jafnmörg skáld, ortir samkvæmt fornri hefð. Skáldin glíma við yrkisefni úr samtímanum, s.s. forsetakosningar, umferðarmál, laxeldi og gervigreind. Ragnar Ingi Aðalsteinsson ritstýrir og skrifar inngang. 84 bls. Bókaútgáfan Sæmundur KIL Síðasta sumar lífsins Höf: Þórdís Dröfn Andrésdóttir Síðasta sumar lífsins er ljóðsaga sem segir frá tveimur elskendum sem eru staddir á ónefndri sólríkri eyju. Bókin hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2025. 44 bls. Benedikt bókaútgáfa SVK Sjáðu, sjáðu mig. Það er eina leiðin til að elska mig Höf: Elísabet Jökulsdóttir Kona missir rödd og fær hana aftur. Mögnuð ljóðabók sem hefur verið ófáanleg lengi. Elísabet Jökulsdóttir er alvöru skáld. Hún horfir fast í augun á lesandanum og orðar sterkar tilfinningar; ást, heift, gleði og sorg, af oddhvassri blíðu og lífsþorsta, sýnir náttúru landsins á síkvikan hátt og lítur aldrei undan. 46 bls. Forlagið - Mál og menning B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 5 55GOR Gormabók  HSP Harðspjalda bók  HLB Hljóðbók  IB Innbundin bók  KIL Kilja  RAF Rafbók  G Sveigjanleg kápa  TÍM Tímarit  LKO Landakort Ljóð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Bókatíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1847

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.