Bókatíðindi - nóv. 2025, Blaðsíða 48
KIL
Sá sem drepur drekann
Höf: Leif GW Persson
Þýð: Jón Þ. Þór
Við fyrstu sýn virðist morðið ósköp venjulegt. En
lögregluforingjanum Evert Bäckström finnst ekki
allt vera eins og það sýnist. Hann er að vísu með
hálfan huga við ströng fyrirmæli frá lækni um
breytta lifnaðarhætti sem hann á erfitt með að
fylgja. En tilfinning Bäckströms reynist rétt.
430 bls.
Ugla
KIL
Seint og um síðir
Höf: Claire Keegan
Þýð: Helga Soffía Einarsdóttir
Þessi bók geymir þrjár firnasterkar sögur sem eiga
sameiginlegt að fjalla um samskipti kynjanna. Allar
sögurnar skoða hvernig væntingar, tilætlunarsemi og
undirliggjandi hætta á ofbeldi lita samskipti fólks.
112 bls.
Bjartur
IB
Sé eftir þér
Höf: Colleen Hoover
Þýð: Birgitta Elín Hassell og Marta Hlín Magnadóttir
Morgan setti líf sitt á bið þegar hún varð ófrísk sautján
ára og er harðákveðin í að koma í veg fyrir að Clara,
sextán ára dóttir hennar, geri sömu mistök. En Clara
hefur heldur engan áhuga á að vera eins og mamma
hennar sem henni finnst óþarflega fyrirsjáanleg.
435 bls.
Björt bókaútgáfa - Bókabeitan
KIL
Skilnaðurinn
Höf: Moa Herngren
Þýð: Sigurður Þór Salvarsson
Bea og Niklas hafa búið saman í þrjátíu ár í f ínu hverfi
í Stokkhólmi. Kvöld eitt, eftir ómerkilegt rifrildi, lætur
Niklas sig hverfa. Bea á von á honum á hverri stundu
með skottið á milli lappanna. En hann kemur ekki og
heimtar skilnað. Tilnefningar: Bók ársins í Svíþjóð
2022 og Besta skáldsagan á Storytel í Svíþjóð 2022.
376 bls.
Ugla
KIL
Skipið úr Ísfirði
Höf: Nina von Staffeldt
Þýð: Lára Sigurðardóttir
Glæpasaga sem gerist á Grænlandi.
Sika Halsund syrgir guðföður sinn sárt eftir að
hann deyr í eldsvoða. Þegar kemur í ljós að um
íkveikju var að ræða fer Sika að grafast fyrir
um orsakirnar. Hún uppgötvar óvænt tengsl
milli eldsvoðans, innbrots í Illulissat-kirkjuna
og dularfulls andláts fjarri Grænlandi.
323 bls.
Ugla
KIL
P.s. Ég elska þig
Höf: Cecelia Ahern
Þýð: Sigurður A. Magnússon
Metsölubókin sem er orðin klassík! Sumt fólk
bíður allt sitt líf eftir því að finna sálufélaga. En ekki
Holly og Gerry. Þau löðuðust hvort að öðru í æsku
og urðu svo samrýnd að enginn gat ímyndað sér
að þau yrðu nokkurn tímann aðskilin. Við andlát
Gerrys bugast Holly en Gerry skildi eftir sig skilaboð
til hennar, ein fyrir hvern mánuð ársins.
438 bls.
Ugla
KIL
Rauðhetta
Höf: Unni Lindell
Þýð: Snjólaug Bragadóttir
Þrjár systur: Lisbet, sem er ljósmóðir, Judith, sem
er ljósmyndari og Carol, sem á við áfengisvandamál
að stríða. Hver þeirra skyldi það vera sem ryður
úr vegi hættulegum vandræðamönnum en virðist
á yfirborðinu „ósköp venjuleg“? Lögregluforingi á
eftirlaunum kemst á sporið – og úr verður æsilegt
kapphlaup sem berst meðal annars til Íslands.
375 bls.
Ugla
KIL
Rauði fuglinn
Höf: Elsebeth Egholm
Þýð: Ragnar Hauksson
Sally og Silas ólust upp saman og löðuðust hvort að
öðru. En myrkur atburður verður til þess að leiðir
skilja. Tuttugu og fimm árum síðar hittast þau aftur.
Þá er ljósmóðirin Sally ekkja og Silas heimsþekktur
listamaður. Tilfinningar þeirra til hvors annars rista
enn djúpt en óuppgerðar sakir stía þeim í sundur.
421 bls.
Ugla
KIL RAF
Rósa og Björk
Höf: Satu Rämö
Þýð: Erla Elíasdóttir Völudóttir
Hvað varð um Rósu og Björk, yngri systur Hildar,
sem hurfu sporlaust árið 1994? Eftir öll þessi ár
virðist Hildur loks vera komin á slóðina en þá
kemur upp nýtt mál sem hún þarf að sinna í starfi
sínu í lögreglunni á Ísafirði. Satu Rämö er finnsk
en býr á Íslandi. Fyrsta bók hennar um Hildi sló í
gegn og hér er komið æsispennandi framhald.
373 bls.
Forlagið - Vaka-Helgafell
KIL
Rúmmálsreikningur III
Höf: Solvej Balle
Þýð: Steinunn Stefánsdóttir
Þriðja bindi af sjö í skáldsögu Solvej Balle um
Töru Selter sem situr föst í nóvemberdegi.
Höfundurinn hlaut bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs 2022 fyrir fyrstu þrjú bindin sem
nú eru öll komin út á íslensku í þýðingu.
197 bls.
Benedikt bókaútgáfa
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 5 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa TÍM Tímarit LKO Landakort48
Skáldverk ÞÝDD