Bókatíðindi - nóv. 2025, Blaðsíða 31
IB
Eilífðarvetur
Höf: Emil Hjörvar Petersen
Siðmenningin leið undir lok. Aldir hafa liðið. Á
eyju sem eitt sinn hét Ísland ríkir viðvarandi vetur.
Tveir sagnaþulir hitta fyrir vélkonu sem grafist
hafði undir rústum en er nú fangi þeirra sem fundu
hana. Sagnaþulirnir bjarga henni en þá hefst flótti
yfir vetrarríki þar sem aðeins eitt lögmál virðist
gilda; að komast af, sama hvað það kostar.
152 bls.
Undur
KIL
Elsku Monroe og Bogart
Höf: Þröstur Jóhannesson
Það boðar varla nein venjulegheit þegar sjálfur
Bogart mætir heim til fjölskyldunnar suður í
Garð með Monroe upp á arminn. Spretthörð
fantasía með harmrænan undirtón þar sem
við fylgjumst með hjónakornunum Bogart og
Monroe í gegnum frásögn sonar þeirra. Hér er
dregin upp sterk mynd af tíðarandanum suður
með sjó laust fyrir síðustu aldamót.
182 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
IB
Emilía
Höf: Ragnar Jónasson
Ung kona, Emilía, flytur með foreldrum sínum
og ömmu inn í timburhús í miðbæ Reykjavíkur.
Ekki líður á löngu þar til hún uppgötvar að
þau eru ekki ein á nýja heimilinu.
Ragnar Jónasson sem er einn vinsælasti
glæpasagnahöfundur heims sýnir hér á sér
óvænta hlið í snarpri draugasögu.
127 bls.
Veröld
KIL RAF
Englar alheimsins
Höf: Einar Már Guðmundsson
Stórbrotin og eftirminnileg verðlaunasaga Einars
Más um mann sem veikist á geði og viðbrögð
fjölskyldu og samfélags. Lýsingin á því hvernig skuggi
geðveikinnar fellur smám saman yfir er átakanleg
en um leið er sagan gædd einstakri hlýju og húmor
í frásögn og stíl. Ein víðförlasta íslenska skáldsaga
fyrr og síðar. Árni Matthíasson skrifar eftirmála.
272 bls.
Forlagið
KIL
Ég vildi að ég hefði fæðst strákur
Höf: Anna Elísabet Ólafsdóttir
Ljúfsár skáldsaga um líf ungrar konu í Tansaníu. Við
lesturinn hverfum við inn í óbrotið líf hinna fátæku
Afríkumanna og baráttu þeirra við vandamál hins
daglega lífs. Höfundur hefur frá árinu 2016 starfað
með konum af Iraqw-þjóðflokknum í Tansaníu
og komið þar á fót skóla og lánastofnun.
236 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
KIL
DNA
Höf: Yrsa Sigurðardóttir
DNA er fyrsta bók Yrsu Sigurðardóttur um
barnasálfræðinginn Freyju og lögreglumanninn
Huldar. Hún hlaut Blóðdropann sem besta íslenska
glæpasagan og einnig Palle Rosenkrantz-verðlaunin
sem besta glæpasagan í Danmörku. Bókin er núna
endurútgefin í tilefni af sýningu sjónvarpsseríunnar
Reykjavík 112 sem byggð er á DNA.
476 bls.
Veröld
KIL
Dóu þá ekki blómin?
Höf: Guðrún Guðlaugsdóttir
Elínborg situr á handriðinu og horfir yfir spegilslétt
vatnið. Þetta er kveðjustund sem endist ævilangt.
Þessi staður hefur verið henni skjól þegar heimurinn
virtist ætla að klofna. Vatnið í sveitinni er gárað
af óuppgerðum áföllum og brotin fjölskylda setur
svip sinn á ljóma æskuáranna. Kraftmikil og kímin
skáldævisaga Guðrúnar Guðlaugsdóttur.
207 bls.
GPA
RAF HLB
Draugafans
Höf: Jaki Valsson
Draugafans er hrollvekjandi spennusaga sem
dregur upp nýja og nútímalega mynd af íslenskum
menningararfi. Jaki Valsson vakti verðskuldaða athygli
fyrir bók sína Miðsvetrarblót sem kom út á Storytel
2024, fyrstu bókinni í listilega skrifaðri sagnaseríu
sem segja má með sanni að veki upp drauga fortíðar,
hreinræktaða skelfingu og magnaða spennu.
12:30 klst.
Storytel Original
KIL RAF
Dúkkuverksmiðjan
Höf: Júlía Margrét Einarsdóttir
Þriðja skáldsaga Júlíu sem er sögumaður af guðs náð,
í senn smellin og næm á mannfólkið. Milla litla og
Reynir besti vinur hennar vaxa úr grasi í öruggum
faðmi þorpsins Salteyrar. Þegar þau stálpast kemst
ástin í spilið og flækir málin svo um munar. En úr
fjarlægð fylgist dularfullur maður með Millu og
lúrir á leyndarmáli sem mun umturna öllu.
265 bls.
Forlagið - Mál og menning
KIL
Eftirför
Höf: Anna Rún Frímannsdóttir
Þegar fjölskyldufaðirinn Hallur hverfur sporlaust
stendur lögreglan ráðþrota gagnvart kaldri slóð.
Það er ekkert sem gefur til kynna að hann hafi
verið flæktur í neitt misjafnt og langþráð vetrarfrí
fjölskyldunnar breytist skyndilega í martröð. Það
er engu líkara en að jörðin hafi gleypt hann.
360 bls.
Salka
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 5 31GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa TÍM Tímarit LKO Landakort
Skáldverk ÍSLENSK