Bókatíðindi - nóv. 2025, Blaðsíða 39
IB
Synda selir
Smásögur
Höf: Steinn Kárason
Smásögur sem gerast á Íslandi og erlendis. Sagt
frá ungum dreng sem gefur skyggnigáfu sína upp
á bátinn, Danmerkurdögum með skáldlegu ívafi,
gamalli konu með göngugreind, tímaflakki milli
heimsálfa, sundfélögum sem leysa landsmálin í
legvatni, vinskap manna með ólíka kynhneigð,
pólitískum mannaráðningum og kynbótum
á mönnum sem hljóta óvæntan endi.
143 bls.
Steinn útgáfa
KIL RAF HLB
Söngur Súlu 3
Í faðmi fjallsins
Höf: Hrafnhildur Valgarðsdóttir
Það er komið að tímamótum hjá Súlu. Hún er ófrísk
og í „húsi bóka” er ekkert pláss fyrir barn. Eftir
erfiðar uppákomur í vinnunni ákveður hún að flytja
vestur, í hús ömmu sinnar sem stendur autt en er
– kannski fokið burt í rokinu fyrir vestan. Hún þarf
að hugsa hlutina upp á nýtt í nýjum veruleika ein og
óstudd sem fullorðin kona og bráðum móðir.
197 bls. / 09:00 klst.
Krass
IB RAF HLB
Tál
Höf: Arnaldur Indriðason
Héraðsdómari í Reykjavík er handtekinn fyrir morð
á konu sem sinnir fylgdarþjónustu. Eiginkona hans
snýr sér til Konráðs, fyrrverandi lögreglumanns,
og fyrr en varir heldur hann inn í langa nótt að
leita sannleikans. Viðburðarík hörkusaga um lygar
og spillingu, undirferli og svik, nöturlega glæpi og
skeytingarleysi gagnvart þeim sem minna mega sín.
275 bls.
Forlagið - Vaka-Helgafell
IB
Tryllingur
Höf: Sigga Dögg
Tryllingur er fyrsta bókin í þríleiknum um Marínu,
fertuga konu í andlegu sjálfsuppgötvunarferðalagi. Á
kaffihúsinu Draumi í Hólavallagarði leitar hún að sjálfri
sér, speglar sig í vinkonum sínum, skenkir galdraseyði,
leggur tarotspil, og veltir fyrir sér ástinni. Sagan er
byggð á endurminningum úr dagbókum höfundar.
465 bls.
Kúrbítur
KIL
Undantekningin
(de arte poetica)
Höf: Auður Ava Ólafsdóttir
Sagan hefst á gamlárskvöld, þegar Flóki,
eiginmaður söguhetjunnar, kemur út úr skápnum
og flytur til nafna síns og samstarfsmanns. Báðir
eru þeir stærðfræðisnillingar og sérfræðingar í
óreiðukenningunni. Í kjallaranum býr dvergurinn
Perla sem leggur stund á hjónabandsráðgjöf og ritstörf
þótt hún hafi hvorki verið gift né sent frá sér bók.
270 bls.
Benedikt bókaútgáfa
IB RAF
Staðreyndirnar
Höf: Haukur Már Helgason
Steini er boðin staða hjá nýstofnaðri Upplýsingastofu
og falið að leiða þróun opinbers staðreyndagrunns,
vitvélar sem á að gegna lykilhlutverki í baráttu
stjórnvalda gegn upplýsingaóreiðu. Verkefnið
lofar góðu þar til háskólanemi ber upp eldfima
spurningu við vélina. Hárbeitt satíra um
vélrænt vit, mannasiði og nasista.
190 bls.
Forlagið - Mál og menning
KIL RAF HLB
Stjörnurnar yfir Eyjafirði
Höf: Ása Marin
Notaleg, fyndin og rómantísk jólasaga, sjálfstætt
framhald hinnar vinsælu Hittu mig í Hellisgerði.
Valería er búin að fá nóg af bæði brauðtertum
og blessaðri móður sinni og stekkur því á nýtt
starf í Jólagarðinum en því fylgir bæði íbúð og
langþráð sjálfstæði. Og ekki líður á löngu þar til
ástarhjólin fara að snúast í Eyjafjarðarsveit.
261 bls.
Forlagið - Vaka-Helgafell
KIL
Sumarið við brúna
Höf: Viktor Arnar Ingólfsson
Óvenjuleg glæpasaga. Árið 1908 var byggð 55 m
löng bogabrú yfir Fnjóská. Ýmislegt bar til tíðinda,
hamfaraflóð í ánni og dularfull dauðsföll. Viktor
Arnar er þekktur höfundur vinsælla glæpasagna
sem hafa verið gefnar út á fjölmörgum tungumálum.
Útgefandi: sterkarsagnir@icloud.com.
232 bls.
Sterkar sagnir
KIL
Sumarljós, og svo kemur nóttin
Höf: Jón Kalman Stefánsson
Sumarljós, og svo kemur nóttin er sjötta skáldsaga
Jóns Kalmans. Hún kom fyrst út árið 2005 og
færði höfundi Íslensku bókmenntaverðlaunin. Jón
Kalman hefur sent frá sér fimmtán skáldsögur, síðast
Himintungl yfir heimsins ystu brún (2024). Bækur
hans hafa verið þýddar á yfir 20 tungumál.
215 bls.
Benedikt bókaútgáfa
IB
Syndafall
Höf: Yrsa Sigurðardóttir
Yrsa Sigurðardóttir fléttar hér listilega saman
ólíka þræði sem virðast algjörlega ótengdir en
undir brothættu yfirborðinu lúrir ógæfan ...
280 bls.
Veröld
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 5 39GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa TÍM Tímarit LKO Landakort
Skáldverk ÍSLENSK