Bókatíðindi - nóv. 2025, Blaðsíða 63
IB
Fjölbraut í 50 ár
Saga Fjölbrautaskólans í Breiðholti 1975–2025
Höf: Andri Þorvarðarson
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti markaði tímamót
í íslenskri skóla- og menntasögu, upphaf hans
einkenndist af stórum draumum og fögrum
fyrirheitum en líka erfiðleikum og átökum.
Sjónum er beint að námi, kennslu og starfsfólki
en ekki síst litríkum og afar fjölbreyttum
nemendahópi sem hefur alla tíð sett mark
sitt á skólabraginn í 50 ára sögu FB.
317 bls.
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
IB
Foldarskart
Blómplöntur á Íslandi
Höf: Helgi Hallgrímsson
Hér er fjallað um íslenskar blómplöntur í máli og
myndum, að undanskildum grasleitum plöntum,
sem hafa óveruleg blóm. Lýst er um 300 tegundum,
sem hér hafa vaxið frá alda öðli, og rakin saga þeirra,
þ.e. nýting, nöfn o.fl. Auk þess er getið um 240
tegunda sem hafa numið hér land á síðustu einni
og hálfri öld, eða hafa verið hér lengi í ræktun.
687 bls.
Skrudda
IB
Fólkið í vitanum
Gleði og sorgir í Hornbjargsvita
Höf: Reynir Traustason
Harmþrungnar, glaðbeittar og sumpart ævintýralega
fjarstæðukenndar frásagnir af fólki sem átti það
sameiginlegt að velja sér búsetu á einum afskekktasta
og harðbýlasta stað landsins. Fólkið í vitanum
er samfelld saga vitavarða og fjölskyldna þeirra
í Hornbjargsvita í 65 ár. Brjóstamjólk út í kaffið.
Kýrin sem þjáðist af heimþrá og músafárið.
286 bls.
Góður punktur
IB
Berklar á Íslandi
Höf: Erla Dóris Halldórsdóttir
Hér er fjallað um einn lífshættulegasta smitsjúkdóm
sem gengið hefur á Íslandi og nær sagan fram
til ársins 1950. Þá fór bæði að draga úr smitum
og dauðsföllum af völdum veikinnar. Berklaveiki
var mikið mein í íslensku samfélagi í byrjun
tuttugustu aldar og var dánartala berklasjúklinga
á Íslandi ein sú hæsta í Evrópu.
Bókaútgáfan Hólar
IB
Drífa Viðar
Málari, rithöfundur, gagnrýnandi, baráttukona
Ritstj: Auður Aðalsteinsdóttir, Elísabet
Gunnarsdóttir og Kristín Guðrún Jónsdóttir
Myndh: Drífa Viðar
Drífa Viðar (1920-1971) var myndlistarmaður,
rithöfundur og gagnrýnandi og tók þátt í
stjórnmálaumræðu síns tíma. Eftir hana liggja fjölmörg
verk af ýmsum toga. Í bókinni eru greinar sem gefa
innsýn í ævistarf hennar, um 100 myndverk sem sum
hafa aldrei komið fyrir augu almennings áður, brot úr
bréfum og ýmiss fróðleikur um ævi Drífu og störf.
338 bls.
Ástríki útgáfa
KIL
Eat frozen shit!
How to curse, swear and talk trash in Icelandic
Höf: Brynja Hjálmsdóttir
Myndh: Elín Elísabet Einarsdóttir
Frasabók með blótsyrðum fyrir fólk af erlendum
uppruna sem vill læra að tala kjarnyrta íslensku.
Þessi handbók er uppfull af dónalegum
blótsyrðum, fyndnum klúryrðum, töff slangri,
minna töff slangri, helling af óþarfa upplýsingum
og heilmörgum hljóðdæmum.
147 bls.
Benedikt bókaútgáfa
IB
Eyrarbakki - Byggð í mótun
Horfin hús 1878–1960
Höf: Inga Lára Baldvinsdóttir og
Magnús Karel Hannesson
Í bókinni er varpað ljósi á þróun þéttbýlis á Eyrarbakka
á tímabilinu 1878–1960 en ætla má að um 300 hús
hafi staðið um lengri eða skemmri tíma á Bakkanum
á því árabili en aðeins um 120 þeirra standa enn.
292 bls.
Laugabúð
IB
Útkall
Ég er á lífi
Höf: Óttar Sveinsson
Í janúar 2012 berst Eiríkur Jóhannsson klukkustundum
saman fyrir lífi sínu einn í hamfarasjó í Noregshafinu.
Hér er einnig greint frá því sem aldrei hefur komið
fram áður að áhafnir tveggja björgunarþyrlna lenda í
aðstæðum sem eiga sér enga hliðstæðu - litlu munar
að þær komist ekki aftur heim til Noregs.
192 bls.
Útkall
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 5 63GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa TÍM Tímarit LKO Landakort
Fræðirit, frásagnir og handbækur
Einbeiting
og minni.