Bókatíðindi - nov. 2025, Side 11
IB
Múmínsnáðinn – hvar ertu?
Flipabók
Höf: Tove Jansson
Ef þú hefur enn ekki hitt Múmínálf áttu ævintýri
í vændum ... Það er komið að skemmtilegu
lautarferðinni í Múmíndal. En hvar er
Múmínsnáðinn? Lyftið flipunum og hjálpið
Míu litlu, Múmínmömmu, Múmínpabba og
vinum þeirra að leita að Múmínsnáðanum.
Ein af hinum sívinsælu myndabókum sem
byggðar eru á sögum Tove Jansson.
10 bls.
Ugla
SVK
Neistar
Höf: Hugrún Margrét Óladóttir
Myndh: Sólveig Eva Magnúsdóttir
Sól og ský eiga saman dýrmætt blóm sem þau elska
meira en allt. En hvað verður um blómið þegar sólin
og skýið geta ekki lengur búið saman? Með því að
skiptast á geta foreldrar blómsins enn veitt því alla þá
næringu, hamingju, leik og vernd sem það þarf til að
blómstra. Einstaklega myndræn, hugljúf saga.
36 bls.
Kráka
IB
Paddington – Form
Höf: Michael Bond
Myndh: R. W. Alley
Þýð: Jakob F. Ásgeirsson
Það er gaman að fara út með Paddington að
skoða form og lögun þess sem fyrir augu ber.
Skemmtileg bók sem kynnir ólík form fyrir yngstu
börnunum. Í sama flokki: Paddington – Litir.
16 bls.
Ugla
IB
Paddington – Litir
Höf: Michael Bond
Myndh: R. W. Alley
Þýð: Jakob F. Ásgeirsson
Það er gaman að fara í gönguferð með Paddington
í leit að uppáhaldslitunum hans. Er það skærrauði
liturinn á strætó, blái liturinn á blómunum
eða sá græni á hurðinni? Skemmtileg bók sem
opnar heim litanna fyrir yngstu börnunum.
Í sama flokki Paddington – Form.
16 bls.
Ugla
SVK
Petra paprika og innrásin
Höf: Hafdís Helgadóttir
Myndh: Hildur Hörn Sigurðardóttir
Enn á ný skyggnumst við inn í ævintýraheim
Petru papriku og litríku matvælanna. Ógn
steðjar að Líkamanum og mikilvæg skilaboð
frá Ónæmiskerfinu berast á Heilsustofnun
Líkamans. Petra paprika og félagar þurfa að
bregðast hratt við. Bókin er ríkulega myndskreytt
og textinn hentar yngstu lesendunum vel.
36 bls.
Hafdís Helgadóttir
IB
Ljóni gerir usla hjá púdda púdd
Höf: Guðný Anna Annasdóttir
Myndh: Páll Jóhann Sigurjónsson
Ljóni er fimm ára strákur. Hann er í heimsókn
hjá afa sínum við Elliðavatn. Þegar afi
skreppur frá er Ljóna treyst fyrir að líta eftir
hænsnunum. Hvað gerir Ljóni þá?
31 bls.
Gudda Creative
IB
Litaskrímslið
Læknirinn: sérfræðingur í tilfinningum
Höf: Anna Llenas
Myndh: Anna Llenas
Þýð: Elín G. Ragnarsdóttir
Litaskrímslið er nú læknir og hjálpar öðrum að
lækna tilfinningar sínar, sérstaklega þær sem
eru orðnar svo stórar að þær valda óþægindum.
Litaskrímslið hjálpar vinkonu sinni Nínu að átta
sig á hvernig henni líður og að læra að segja nei!
Litaskrímslið hefur slegið í gegn um allan heim!
48 bls.
Drápa
KIL
Mig langar svo í krakkakjöt
Höf: Sylviane Donnio
Myndh: Dorothée de Monfreid
Þýð: Guðrún Vilmundardóttir
Hvað eiga krókódílamamma og krókódílapabbi að taka
til bragðs þegar Grettir litli krókódíll segist ekki vilja
borða neitt nema … krakkakjöt? Hæfilega skelfileg
og skemmtilega myndskreytt frönsk barnabók sem
fullorðnir nenna að lesa aftur og aftur. Og aftur.
24 bls.
Benedikt bókaútgáfa
IB
Múmínálfar: Vinagisting
Fyrsta Múmínbókin mín
Höf: Tove Jansson
Þýð: Margrét Gunnarsdóttir
Ævintýri í trjáhýsi. Múminsnáðinn og Snabbi eru
að gera allt tilbúið fyrir fyrstu vinagistinguna sína.
En þegar þeir ætla að fara að sofa verða þeir svolítið
smeykir. Mun óvænt leiftur á næturhimninum verða
til þess að gera vinagistinguna þeirra að ógleymanlegu
ævintýri? Ein af hinum sívinsælu myndabókum
sem byggðar eru á sögum Tove Jansson.
16 bls.
Ugla
IB
Múmínpabbi og flóðið mikla
Múmínálfarnir
Höf: Tove Jansson
80 ára afmælisútgáfa. Úti geisar óveður. Inni í
Múmínhúsinu safnast Múmínfjölskyldan og vinir
hennar saman til að heyra Múmínpabba segja söguna
af óveðri sem gekk yfir fyrir margt löngu og feykti burt
Múmínhúsinu sem honum þótti svo vænt um.
28 bls.
Ugla
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 5 11GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa TÍM Tímarit LKO Landakort
Barnabækur MYNDRÍK AR