Bókatíðindi - nov. 2025, Síða 13
IB
Við
Höf: Helen Hafgnýr Cova
Myndir: Fanny Sissoko
Hvað þýðir það í raun og veru að vera við? Við
er einlæg og hlý saga eftir rithöfundinn Helen
Hafgný Cova prýdd gullfallegum myndlýsingum
listakonunnar Fanny Sissoko. Sagan fjallar á
næman hátt um vináttu, góðvild og gleðina sem
felst í því að skapa rými í hjörtum okkar, lífi
og samfélagi til þess að verða betri við.
28 bls.
Karíba útgáfa
HSP
Villt dýr
Bók sem þú snertir og skynjar
Þýð: Helgi Jónsson og Anna Margrét Marinósdóttir
Í þessari bók kynnist þú tíu villtum dýrum.
Skoðaðu dýrin og klappaðu þeim með
því að snerta efnið á hverri síðu.
10 bls.
Sögur útgáfa
IB
Vinir Elmars
Höf: David McKee
Þýð: Jakob F. Ásgeirsson
Doppóttastur – röndóttastur - hæstur og lengstur ...
Skemmtilegt orðafjör á hverri síðu og
sniðugir flettiflipar fyrir litlar hendur.
Hittið alla uppáhaldsvini Elmars!.
10 bls.
Ugla
HSP
Vinir í Múmíndal
Höf: Tove Jansson
Þýð: Bjarni Guðmarsson
Velkomin í Múmíndal. Hér hittum við múmínsnáðann
og vini hans, þau Míu litlu, snorkstelpuna,
hemúlinn og Snúð á góðum degi. Lestu meira
til að kynnast þeim betur. Sagan lifnar við með
skemmtilegum tréleikföngum sem fylgja með.
10 bls.
Forlagið - Mál og menning
IB
Ævintýri VÆB
Væb verður VÆB
Höf: Addi nabblakusk, Hálfdán Helgi, Ingi Bauer og
Matthías Davíð
Bræðurnir Stóri VÆB og Litli VÆB vakna upp
við það dag einn að þeim hreinlega hundleiðist.
Þótt það sé öllum hollt að leiðast endrum og
sinnum þá vita þeir ekkert hvað þeir eiga að
gera af sér. Í kjölfarið halda bræðurnir í ferð sem
mögulega mun breyta þeirra heimi að eilífu.
45 bls.
Sögur útgáfa
IB
Sögur fyrir háttatímann
Höf: Zanna Davidson, Kimberley Kinloch og Mairi
Mackinnon
Myndh: Emma Allen
Þýð: Lára Garðarsdóttir
Yndislegt sögusafn fyrir háttatímann sem gerir
hann töfrandi og ævintýralegan. Hjúfraðu
þig með sex notalegar sögur – fullkomnar
til upplestrar fyrir unga krakka.
128 bls.
Setberg
HSP
Feluleikur
Tunglið
Höf: Camilla Reid
Þýð: Æsa Guðrún Bjarnadóttir
Góða nótt, sofðu rótt … Falleg bók fyrir yngstu
börnin sem þroskar og örvar skilning þeirra.
Þau skoða bókina aftur og aftur!
8 bls.
Forlagið - Vaka-Helgafell
IB
Týr
Höf: Julia Donaldson
Myndir: Axel Scheffler
Þýð: Sigríður Ásta Árnadóttir
Fjórða stóra bók bresku metsöluhöfundanna Juliu
Donaldson og Axels Scheffler – höfunda Greppiklóar
– sem kemur út á íslensku. Áhugasamasti nemandinn
í drekaskólanum þráir ekkert heitar en að læra
að fljúga, öskra og spúa eldi eins og alvöru drekar
gera. En allt gengur á afturfótunum þar til hann
eignast hjálpsama og hugrakka vinkonu.
32 bls.
Forlagið - Mál og menning
IB
Tækin stór og smá!
Bók með hljóðum
Þýð: Andri Karel Ásgeirsson
Í þessari forvitnilegu hljóðbók kynnast börnin
heimi stórra tækja og smárra á lifandi og
skemmtilegan máta. Þetta er bók sem örvar, eykur
leikgleði, æfir hlustun og veitir ungum aðdáendum
vinnuvéla og -tækja frábæra skemmtun.
12 bls.
Unga ástin mín
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 5 13GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa TÍM Tímarit LKO Landakort
Barnabækur MYNDRÍK AR
Gefum
börnum
bækur