Bókatíðindi - nov. 2025, Side 14

Bókatíðindi - nov. 2025, Side 14
Barnabækur SKÁLDVERK IB 24 dagar til jóla Höf: Særún Hlín Laufeyjardóttir Hrafnhildur Apríl er sannkallað jólabarn og elskar undirbúning jólanna. Á hverjum degi í desember opna hún og systir hennar fjölskyldudagatal sem hjálpar þeim að stytta biðina eftir jólunum. Bókin fjallar um samverustundir fjölskyldunnar í aðdraganda jólanna. 54 bls. Óðinsauga útgáfa IB Spæjarastofa Lalla og Maju Afmælisráðgátan Höf: Martin Widmark Myndir: Helena Willis Þýð: Æsa Guðrún Bjarnadóttir Í afmælisveislu Múhameðs Karat fer rafmagnið skyndilega af matsalnum og í niðamyrkrinu hverfur demantshálsfesti Barböru konu hans! Sem betur fer eru spæjararnir Lalli og Maja í veislunni – en hér er á ferð skúrkur sem svífst einskis. Spennandi ráðgáta með litmyndum á hverri opnu. Frábær bók fyrir þau sem vilja byrja að lesa sjálf. 94 bls. Forlagið - Mál og menning IB Amma nammigrís: Engin venjuleg amma Höf: Gunnhildur Stella Pálmarsdóttir Myndh: Gerður Steinarsdóttir Hjartnæm og fyndin barnabók sem segir frá ömmu sem hoppar á trampólíni, gerir kollhnísa og getur borðað ótrúlegt magn af nammi. Það sem er hinsvegar farið að gerast hjá ömmu í dag er að hún er farin að gleyma. 36 bls. Viskukorn KIL Heyrðu Jónsi! Bekkjarferðin Höf: Sally Rippen Bekkurinn hans Jónsa greiðir atkvæði um hvort þau vilji fara í bíó, Húsdýragarðinn eða Ævintýragarðinn. Jónsi á erfitt með að ákveða sig en tekst það að lokum? 42 bls. Rósakot IB Þegar dýrin bjóða góða nótt Þýð: Helgi Jónsson og Anna Margrét Marinósdóttir Hvað gera dýrin áður en þau bjóða góða nótt? Hjúfraðu þig upp að smáfólkinu þínu og svífið saman inn í draumaheima með dýrunum undir stjörnuprýddum himni. 30 bls. Sögur útgáfa SVK Sokkalabbarnir Æsa raknar upp af reiði Höf: Þorvaldur Davíð Kristjánsson Myndh: Bergrún Íris Sævarsdóttir Æsa er í óðaönn að byggja flottan sandkastala þegar Fjóla mætir og byrjar að moka. Fljótlega fer allt í háaloft, veðrið snarversnar og Æsa raknar upp af reiði! 20 bls. Bókabeitan IB Æ-æ, Nikó – Háttatími Höf: Chris Chatterton Þýð: Margrét Gunnarsdóttir Það er ekki alltaf auðvelt að koma sér í háttinn! Hjálpaðu Nikó að bursta tennurnar, finna uppáhaldsbangsann sinn og sofna vært í þessari þroskandi bók fyrir yngstu börnin. Tog- og flipabók sem eflir hreyfifærni. Einnig í bókaflokknum um Nikó: Æ-æ, Nikó - Í sundi. 10 bls. Ugla IB Æ-æ, Nikó – Í sundi Tog- og flipabók Höf: Chris Chatterton Þýð: Margrét Gunnarsdóttir Það er ekki alltaf auðvelt að læra að synda! Hjálpaðu Nikó að finna sundskýluna, skvetta og synda með vinum sínum í þessari þroskandi bók fyrir yngstu börnin. Tog- og flipabók sem eflir hreyfifærni. Einnig í bókaflokknum um Nikó: Æ-æ, Nikó - Háttatími. 10 bls. Ugla IB Þegar litla systir kom í heiminn Höf: Hrönn Valentínusdóttir Myndh: Þórir Karl Celin Bókin fjallar um tilfinningar og hræðslu hjá barni sem er að fara að eignast lítið systkini, óttann við að vera ekki lengur aleitt með mömmu og pabba. Reynsla barnsins er ein af birtingarmyndum kvíða og bókin getur nýst sem handbók fleirra sem vinna með börnum og foreldrum/forráðamönnum. Opnar spurningar fylgja hverri opnu sem hvetja til umræðu 17 bls. Bókaútgáfan Hrönn B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 5 GOR Gormabók  HSP Harðspjalda bók  HLB Hljóðbók  IB Innbundin bók  KIL Kilja  RAF Rafbók  G Sveigjanleg kápa  TÍM Tímarit  LKO Landakort14 Barnabækur  SK ÁLDVERK Barnabækur  MYNDRÍK AR   Skáldverk

x

Bókatíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1847

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.