Bókatíðindi - nov. 2025, Side 18

Bókatíðindi - nov. 2025, Side 18
IB Jólabókaormurinn Höf: Gunnar Theodór Eggertsson og Yrsa Þöll Gylfadóttir Myndh: Hafsteinn Hafsteinsson Þið kannist við jólaköttinn en hafið þið heyrt um jólabókaorminn? Hann er nefnilega alveg jafnslæmur, nema hann étur bara þá sem fá ekki bók í jólagjöf! Hafdís og Tómas þekkja söguna en hafa engar áhyggjur því í þorpinu gefa allir bækur. En hefur nokkur séð jólabókaorminn? Er hann til í alvörunni? Systkinin ákveða að skoða þetta nánar ... 72 bls. Bókabeitan IB Jólahreingerning englanna Höf: Elín Elísabet Jóhannsdóttir Myndh: Búi Kristjánsson Englarnir Trú, Von og Kærleikur eru í vinnu hjá Guði. Verkefni þeirra er að taka til í veröldinni fyrir jólin. Með englaaugunum sínum sjá þeir af hverju mannlífið er ekki alltaf friðsælt og gott. Á vegi þeirra verða ýmsar furðuverur. Á augabragði hreinsa þeir til í veröldinni svo allir geti átt friðsæl og gleðileg jól. Fyrir allan aldur. 48 bls. Skálholtsútgáfan - Kirkjuhúsið SVK Lestu sögu á 10 mínútum! Konungur dýranna Höf: Stefano Bordiglioni Skemmtileg myndskreytt saga miðuð við yngstu lesendurna. Textinn er 400-500 orð og skilningsverkefni eru í lok sögunnar. 33 bls. Rósakot IB Hundmann - Hverjum kúlan rúllar Höf: Dav Pilkey Þýð: Sigurgeir Orri Sigurgeirsson Hundmann er engum líkur. Þetta er sjöunda bókin í bókaflokknum um hann. Fáar ef nokkrar bækur eru jafn fyndnar og Hundmann og er leit að vinsælli barnabókum í heiminum. 236 bls. Bókafélagið SVK Lestu sögu á 10 mínútum! Hver stal kórónunni? Höf: Stefano Bordiglioni Skemmtileg myndskreytt saga miðuð við yngstu lesendurna. Textinn er 400-500 orð og skilningsverkefni eru í lok sögunnar. 33 bls. Rósakot IB Írissa og Issi eignast kajak Höf: Guðný Anna Annasdóttir Myndh: Páll Jóhann Sigurjónsson Systkinin Írissa og Issi búa í Hafnarfirði. Pabbi þeirra hann Mundi, gefur þeim óvænta og skemmtilega gjöf. Gjöfin kemur systkinunum í kynni við álfana á Torfaskeri. 31 bls. Gudda Creative IB Ísadóra Nótt fer í brúðkaup Höf: Harriet Muncaster Þýð: Ingunn Snædal Ísadóra á að vera brúðarmær í brúðkaupi frænku sinnar og hún er svo spennt. En þegar óþekka eldri frænka hennar gerir óskunda lítur út fyrir að þessi fallegi dagur geti farið út um þúfur. Getur Ísadóra passað að allt fari vel …? Full af skemmtilegum verkefnum og hlutum til að búa til með Ísadóru og Bleiku. 160 bls. Drápa IB Ísadóra Nótt hittir tannálfinn Höf: Harriet Muncaster Þýð: Ingunn Snædal Ísadóra er með lausa tönn! Vampírur ramma vígtennurnar sínar inn en álfar gefa tannálfinum sínar tennur. Ísadóra veit ekki hvað hún á að gera þar til kvöld eitt þegar hún kynnist töframús sem heitir Snotra. Með hjálp Snotru getur Ísadóra komið sér upp eigin glænýrri hefð sem er einstök, alveg eins og hún! 128 bls. Drápa B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 5 GOR Gormabók  HSP Harðspjalda bók  HLB Hljóðbók  IB Innbundin bók  KIL Kilja  RAF Rafbók  G Sveigjanleg kápa  TÍM Tímarit  LKO Landakort18 Barnabækur  SK ÁLDVERK Styðjum við lesskilning barna, ræðum textann hvort sem við lesum fyrir börn eða þau lesa sjálf. Drögum saman aðalatriðin í fáum orðum • sagan er um persónuna • og gerist á staðnum • það mikilvægasta var

x

Bókatíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1847

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.