Bókatíðindi - Nov 2025, Page 23

Bókatíðindi - Nov 2025, Page 23
SVK Fellihýsageymslan Höf: Marta Magnúsdóttir Myndh: Karl Kristján Davíðsson Eru krakkar skyldugir til að biðja fullorðna um aðstoð við allt sem er spennandi, skemmtilegt eða krefjandi? 6. bekkingarnir og frændsystkinin Þórunn og Santiago lenda í óvæntum aðstæðum og taka málin í sínar hendur. Við tekur skrautlegt tímabil þar sem eini fasti punkturinn í tilverunni er sjónvarpsfréttaáhorf heima hjá ömmu og afa. 147 bls. Kaffibrennslan Valería IB RAF HLB Flóttinn á norðurhjarann Höf: Nanna Rögnvaldardóttir Það ríkir hungursneyð á Íslandi. Solla er nýorðin tólf ára þegar mamma hennar segir henni að til að lifa af þurfi þær að yfirgefa kotið sitt. Solla getur ekki ímyndað sér hvert þær geti flúið. Þær eiga engan að nema hvor aðra. Hvern ætlar mamma að biðja um hjálp? Og hvaða leyndarmál geymir hún sem Solla má ekki vita? Áhrifarík verðlaunabók. 111 bls. Forlagið - Iðunn IB Hobbitinn Höf: J.R.R. Tolkien Þýð: Solveig Sif Hreiðarsdóttir Þýð.lj: Bragi Valdimar Skúlason Myndh: J.R.R. Tolkien Hobbitann eftir J.R.R. Tolkien þarf vart að kynna. Góðu fréttirnar eru að nú er bókin loks fáanleg á ný fyrir lesendur á Íslandi. Í nýrri þýðingu Solveigar Sifjar Hreiðarsdóttur með ljóðaþýðingum Braga Valdimars Skúlasonar. www.kver.is 307 bls. Kver bókaútgáfa Unglingabækur SKÁLDVERK KIL Aldrei aldrei Höf: Colleen Hoover Þýð: Birgitta Elín Hassell og Marta Hlín Magnadóttir Grípandi saga sem fyrst kom út í þrem hlutum en er hér sameinuð í eina bók. Charlize Wynwood og Silas Nash hafa verið bestu vinir síðan þau lærðu að ganga og ástfangin síðan þau voru fjórtán. En frá og með deginum í dag þekkja þau ekki hvort annað. 401 bls. Björt bókaútgáfa - Bókabeitan IB RAF Álfareiðin Höf: Gunnar Theodór Eggertsson Æsispennandi og öðruvísi álfahrollvekja. Þrír menntskælingar fá það verkefni að búa til hlaðvarpsþátt um álfa. Þau grafa upp dularfullt þorp á Suðurlandi sem tengist álfum og virðist eiga sér blóðuga sögu. Fljótlega verður ljóst að þorpsbúar hafa margt og miður fallegt að fela – og það getur reynst stórhættulegt að spyrja rangra spurninga. 326 bls. Forlagið - Vaka-Helgafell IB Dreim Dýr móðurinnar Höf: Fanney Hrund Hilmarsdóttir Draupnir, máttugasta vera Dreim, er fallinn. Myrkrið vex beggja vegna skilanna og dreimfarar úr Fósturdal hafa örlög heimanna í höndum sér. Skömmu eftir komuna til Ngala, berst spádómur Draupnis. Von er á hinum mikla mætti og von ljóssins: Mtoto Ngala. Æsispennandi fantasía. 384 bls. Bókabeitan IB Ekkert Höf: Janne Teller Þýð: Ólafur Haukur Símonarson Það rennur upp fyrir Pierre Anthon að ekki taki því að gera neitt, af því að ekkert hafi þýðingu þegar allt komi til alls. Hann kemur sér fyrir uppi í tré og ögrar þaðan bekkjarsystkinum sínum. Þau reyna að sannfæra hann um tilgang lífsins með aðferðum sem fara að lokum út í öfgar. Verðlaunabók sem gefin hefur verið út á 36 tungumálum. 172 bls. Nýhöfn B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 5 23GOR Gormabók  HSP Harðspjalda bók  HLB Hljóðbók  IB Innbundin bók  KIL Kilja  RAF Rafbók  G Sveigjanleg kápa  TÍM Tímarit  LKO Landakort Unglingabækur  SK ÁLDVERK   Unglingabækur Lestur hefur jákvæð áhrif á færni í öðrum námsgreinum, þar á meðal í stærðfræði.

x

Bókatíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1847

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.