Bókatíðindi - nov. 2025, Side 30

Bókatíðindi - nov. 2025, Side 30
KIL Bylur Höf: Íris Ösp Ingjaldsdóttir Bergur er hamingjusamur fjölskyldufaðir í góðri vinnu. Lífið er fullkomið þar til að sonur hans deyr og heiftin gagntekur hann. Hann er staðráðinn í að leita hefnda og beinist reiði hans að Öldu og syni hennar Styrmi. Vel falinn bakgrunnur Bergs kemur upp á yfirborðið og Alda og Styrmir eru í bráðri hættu og spennan magnast. 228 bls. Salka KIL Château de la Rivière eða, Dagdraumar af dauðri fortíð Höf: Ágúst Verdal Eftir dauða fjölskylduföðurins verður síðasti hertogi de la Rivière fjölskyldunnar að gefa allt upp á bátinn til þess að halda fornri ættinni frá því að steypast endanlega í glötun. Franska byltingin er rétt handan við hornið og ekki eru allir sáttir við hlutskipti sitt. 319 bls. ÁPÓ IB Dagskammtar Höf: Ragnheiður Guðbjargar Hrafnkelsdóttir Stuttir textar í lausu máli sem margir tengjast ákveðnum atvikum en aðrir eru fremur hugleiðingar eða þankabrot sem finna sér leið inn í hversdaginn. Í verkinu er hversdagslegri upplifun gjarnan stillt upp við hlið hins fantasíska til að fanga þau hughrif og skynjanir sem kunna að mæta manneskjunni á hennar daglegu vegferð. 58 bls. Blekfélagið KIL Áður en ég brjálast Játningar á miðjunni Höf: Soffía Bjarnadóttir Kona á miðjum aldri flytur til Kalima þar sem ryk og sandur frá Sahara þyrlast um. Heimsmyndin er að molna og hún raðar saman minningarbrotum sem hafa umbreytt tilverunni. 247 bls. Króníka KIL RAF Á íslenskum skóm Smásögur, greinar og ljóð Höf: Halldór Laxness Á íslenskum skóm inniheldur úrval af þekktustu smásögum Halldórs Laxness, nokkrar greinar og ljóð. Af smásögum hans eru birtar sögurnar: Fugl á garðstaurnum, Jón í Brauðhúsum, Lilja, Ósigur ítalska loftflotans í Reykjavík 1933 og Ungfrúin góða og Húsið. Þessi útgáfa er með nútímastafsetningu og orðskýringum. 169 bls. Forlagið - Vaka-Helgafell KIL RAF HLB Ástin fiskanna Höf: Steinunn Sigurðardóttir Samanta og Hans hittast fyrir tilviljun í útlendri borg. Eftir endurfundi heima á Íslandi og koss undir reynitré um sumarnótt skilur leiðir en sagan er ekki öll. Þessi dáða saga um ást sem ekki fær að dafna kom fyrst út árið 1993. Stíllinn er meitlaður, frásögnin beitt og fyndin en undir niðri sár og tregafull. Eleonore Gudmundsson ritar eftirmála. 96 bls. Forlagið IB RAF Blái pardusinn – hljóðbók Höf: Sigrún Pálsdóttir Dramatísk gamansaga um hlustun og athygli, sagnfræði og skáldskap. Streymisveita hefur gefið út hljóðbók sem er innblásin af ævintýrum íslenskrar konu í Evrópu í síðari heimsstyrjöld. Hér segir frá þremur hlustendum og baráttu þeirra við að halda þræði í frásögninni sem fer um víðan völl svo erfitt er að henda reiður á hvað er skáldað og hvað ekki. 96 bls. Forlagið - Mál og menning IB Bók vikunnar Höf: Snæbjörn Arngrímsson Húni er nýkominn til borgarinnar úr afskekktri sveit, fullur efasemda um nútímann. Til að flækja tilfinningalíf hans enn frekar kynnist hann Júlíu sem honum þykir bæði óútreiknanleg og heillandi. Hér spretta fram sérstæðar persónur í kunnuglegu umhverfi – og seiðmögnuð stemmning ljær sögunni leyndardómsfullan blæ. 239 bls. Bjartur B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 5 GOR Gormabók  HSP Harðspjalda bók  HLB Hljóðbók  IB Innbundin bók  KIL Kilja  RAF Rafbók  G Sveigjanleg kápa  TÍM Tímarit  LKO Landakort30 Skáldverk  ÍSLENSK Það er gott að lesa sjálfur og gaman að ræða bækur við aðra. Undirbúningur fyrir bókaspjall. Spyrjum okkur: • hvað vill höfundurinn segja með þessu? • er þetta mikilvægt?

x

Bókatíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1847

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.