Bókatíðindi - Nov 2025, Page 36
SVK
Milli trjánna
Höf: Gyrðir Elíasson
Safn 47 fjölbreyttra og meitlaðra smásagna. Bókin
hefur hlotið einróma lof og færði höfundinum
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2011. Þessi
nýja útgáfa er hluti af heildarsafni verka Gyrðis.
259 bls.
Dimma
IB
Minningablómið fölnar
Höf: Sveinn Snorri Sveinsson
Þetta er sönn saga af Simma og vinum hans en
þeir alast upp í litlum bæ austur á landi. Samhliða
ævisögu þeirra kynnumst við Ením Eními og lífinu
á plánetunni Krul. Farið er á milli þessara tveggja
sögusviða og frásögn Eníms leiðir okkur inn í framandi
heima þar sem örlög Simma verða uppspretta að
nýju ævintýri sem enn sér ekki fyrir endann á.
368 bls.
LS útgáfa
IB RAF HLB
Mín er hefndin
Höf: Nanna Rögnvaldardóttir
Þegar Bergþóra í Hvömmum finnur lík á víðavangi
sér hún strax að maðurinn hefur verið myrtur.
Hún veit að ýmsir báru heiftarhug til hans eftir
réttarhöld þar sem blásnauðir einstaklingar hlutu
þungar refsingar fyrir litlar sakir. Margir eiga harma
að hefna og fleiri gætu verið í hættu. Sjálfstætt
framhald af Þegar sannleikurinn sefur.
223 bls.
Forlagið - Iðunn
KIL RAF
Morð og messufall
Höf: Arndís Þórarinsdóttir og Hulda Sigrún
Bjarnadóttir
Fyrsta atvinnuviðtal Sifjar, nýútskrifaðs guðfræðings,
fer ekki eins og hún hafði vonað. Eftir að þau
sóknarpresturinn ganga fram á lík við altarið er
henni boðin tímabundin staða kirkjuvarðar frekar
en prestsembætti. Hún einsetur sér að sanna sig
en fljótlega kemur í ljós að ekki er allt sem sýnist
í sókninni. Sprenghlægileg glæpasaga.
304 bls.
Forlagið - Mál og menning
IB
Líf
Höf: Reynir Finndal Grétarsson
Fjölskyldufaðir finnst látinn á heimili sínu og virðist
hafa fallið fyrir eigin hendi. Við krufningu kemur
í ljós örlítið frávik sem breytir öllu. Guðrún Ýr
Ingimarsdóttir rannsóknarlögreglumaður tekur að
sér málið. Hún er eldskörp en líka þrjósk og rekst
gjarnan á veggi kerfisins. Í ljós kemur að þetta er
aðeins upphafið að miklu stærri ráðgátu.
288 bls.
Sögur útgáfa
IB RAF HLB
Lokar augum blám
Höf: Margrét S. Höskuldsdóttir
Kajakræðarar hverfa sporlaust vestur í Dýrafirði
og lögregluteymið Ragna og Bergur eru sett í
málið. Á sama tíma vinnur par frá Reykjavík
að endurbótum á gömlu húsi á Flateyri sem
reynist eiga sér nöturlega sögu. Sjálfstætt
framhald af Í djúpinu. Vestfjarðaglæpasaga í
klassískum anda sem fær hárin til að rísa.
327 bls.
Forlagið - Vaka-Helgafell
KIL RAF
Lúx
Sögukorn
Höf: Ágúst Guðmundsson
Ung íslensk hjón búa í Lúxemborg á þenslutímunum
fyrir hrun. Þau eru ólík en ástfangin. Hún er háttsett
í banka, hann sér um heimilið og einkabarnið.
Brátt koma upp ýmis siðferðileg álitamál og
það hriktir í stoðum hjónabandsins.
120 bls.
Ormstunga
KIL
Marginalía
Höf: Ýmsir höfundar
Mörgum árum eftir að leiðir þeirra skildu hittast
íslenskufræðingurinn Styrkár og blaðakonan
Garún í Eddu, nýju heimili handritanna og húsi
íslenskunnar. Ljós flökta, hurðir opnast og lokast
án sýnilegrar ástæðu og ógnandi nærvera gerir vart
við sig. Skyndilega eru Styrkár og Garún læst inni
og verða að vinna saman til að komast aftur út.
165 bls.
Króníka
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 5 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa TÍM Tímarit LKO Landakort36
Skáldverk ÍSLENSK
Heimili hinna
fullkomnu glæpa