Bókatíðindi - Nov 2025, Page 37
KIL
Orðabönd
Höf: Brynhildur Auðbjargardóttir, Hrefna
Róbertsdóttir, Hrund Apríl Guðmundsdóttir,
Steinunn Þorsteinsdóttir og Sveinbjörg
Sveinsdóttir
Ritstj: Guðrún Steinþórsdóttir
Dregnar eru upp margræðar myndir úr lífi og
hugarheimi, þar sem orð mynda brú á milli minninga,
drauma og veruleika. Í bókinni fléttast smásögur,
örsögur og ljóð saman í sex bálka: Afturblik, Himnaró,
Svifbrot, Hugarstillu, Sálarsáldur og Ljósför. Fimm
raddir mætast í einum samstilltum hljómi.
110 bls.
Kápurnar
IB
Ragnarök undir jökli
Höf: Skúli Sigurðsson
Þegar Magnea Ísaksdóttir, blaðamaður Kroníkunnar,
heimsækir höfuðvígi umdeilds ásatrúarsafnaðar
undir Tindfjallajökli flækist hún í háleitar fyrirætlanir
allsherjargoðans, Óðins Jónssonar. Óðinn trúir því að
söfnuðurinn sæti ofsóknum yfirvalda og að kominn
sé tími til að spyrna við fótum. Áður en Magnea
veit af er hún í auga storms sem eirir engu.
448 bls.
Drápa
KIL
Rigning í nóvember
Höf: Auður Ava Ólafsdóttir
Ung kona sem talar 11 tungumál stígur upp úr
volgri hjónasæng og heldur í ferðalag til að finna
stað fyrir sumarbústað. Með í för er heyrnarlaust
barn og í hanskahólfinu er happdrættisvinningur.
Á leið hennar í nóvemberþoku verða þrír
karlmenn og nokkur dýr. Í bókinni eru 47
mataruppskriftir og ein prjónauppskrift.
342 bls.
Benedikt bókaútgáfa
SVK
Saklaust blóð í snjó
Söguleg skáldsaga
Höf: Ásgeir Hvítaskáld
Umbrot: Nina Ivanova
Átakanleg saga um misnotaða stúlku sem fæddi barn á
leið yfir Oddskarðið alein í blindbyl um hánótt. Þetta er
mögnuð saga um saklausa stúlku og baráttu hennar.
132 bls.
Frjálst orð
KIL RAF HLB
Sálarstríð
Höf: Steindór Ívarsson
Lífsvegur Sólveigar mun brátt að endalokum
kominn. Bára er ung kona með framtíðina fyrir
sér. Í fortíð beggja leynist myrkur sem finnur sér
leið upp á yfirborðið. Sálarstríð er áhrifamikil og
falleg saga þar sem örlög tveggja kvenna tvinnast
saman á eftirminnilegan og óvæntan hátt.
296 bls. / 06:54 klst.
Storytel Original: hljóð- og rafbók
Ástríkur bókaforlag: prentútgáfa
SVK RAF
Móðurást: Oddný
Höf: Kristín Ómarsdóttir
Móðurást: Oddný er saga langömmu Kristínar,
konu sem ólst upp í Biskupstungum á ofanverðri
nítjándu öld; einstæð, djúpvitur og töfrum slungin
frásögn sem fetar á mörkum hins skáldlega og
hversdagslega. Kristín hlaut Fjöruverðlaunin fyrir
bókina og Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir
framhald hennar, Móðurást: Draumþing.
140 bls.
Forlagið - Mál og menning
SVK RAF
Móðurást: Sólmánuður
Höf: Kristín Ómarsdóttir
Einstakir töfrar leika um skáldaða frásögn höfundar
af uppvexti langömmu sinnar í Biskupstungum
á ofanverðri nítjándu öld. Þetta er þriðja bókin í
verðlaunaflokknum. Systurnar Oddný og Setselja eru
óðum að uppgötva sjálfar sig og máta við hlutverkið
sem þeim er ætlað. En þegar það verður stúlku um
megn er gott að eiga síðbuxur í felum undir steini.
156 bls.
Forlagið - Mál og menning
KIL RAF HLB
Mýrin
Höf: Arnaldur Indriðason
Þessi sívinsæla bók Arnaldar Indriðasonar markaði
tímamót þegar hún kom út árið 2000; fyrsta íslenska
glæpasagan sem náði verulegri hylli heima og
erlendis og hefur haldið gildi sínu alla tíð. Hér fæst
lögregluþríeykið Erlendur, Sigurður Óli og Elínborg
við erfitt sakamál sem teygir anga sína inn í myrka
fortíð. Katrín Jakobsdóttir ritar eftirmála.
301 bls.
Forlagið
IB
Mzungu
Höf: Þórunn Rakel Gylfadóttir og Simon Okoth Aora
Eftirvænting ríkir í loftinu þegar Hulda kemur
til Kenía þar sem hún ætlar að starfa á heimili
fyrir munaðarlaus börn. Íslendingurinn Skúli er í
forsvari fyrir heimilið og virðist stýra því af miklum
myndarskap og hlýju. Þegar líða tekur á dvölina fer
Huldu þó að gruna að ekki sé allt með felldu.
352 bls.
Angústúra
IB
Ofsögur
Höf: Ingimundur Gíslason
Í bók þessari birtast tuttugu og níu smásögur og þættir
sem snerta ýmsar hliðar mannlífsins. Íslensk náttúra
og sígild tónlist eru hvort tveggja höfundi hugleikin.
Í frásögnunum glittir í lúmska fyndni þar sem
breyskleika hins daglega lífs er lýst á nærgætinn hátt.
Skopskyn höfundar hefur aldrei notið sín betur.
119 bls.
Skrudda
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 5 37GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa TÍM Tímarit LKO Landakort
Skáldverk ÍSLENSK