Bókatíðindi - nov. 2025, Side 47

Bókatíðindi - nov. 2025, Side 47
KIL RAF HLB Ótrúlega skynugar skepnur Höf: Shelby Van Pelt Þýð: Nanna Brynhildur Þórsdóttir Hnyttin og heillandi saga sem hefur farið sigurför um heiminn. Tova Sullivan, starfsmaður á sædýrasafni í Norður-Kaliforníu, kynnist geðvonda kolkrabbanum Marcellusi, sem er vinsælasti sýningargripur safnsins. Dularfullt hvarf Erics, sonar Tovu, hátt í þrjátíu árum fyrr hvílir þungt á henni en Marcellus reynist luma á upplýsingum um málið. 394 bls. Forlagið - Vaka-Helgafell KIL Persepólis II Höf: Marjane Satrapi Þýð: Snæfríð Þorsteins Seinni hlutinn af ógleymanlegri uppvaxtarsögu íranska höfundarins Marjane Satrapi (f. 1969), sem fór sigurför um heiminn þegar hún kom fyrst út. Spaugilegar hversdagssenur í lífi höfundar og harmleikur þjóðar fléttast listilega saman í þessari margrómuðu teiknimyndasögu sem lætur engan ósnortinn. 192 bls. Angústúra KIL Píanistinn í fjöllunum Höf: Karin Härjegård Þýð: Friðrika Benónýsdóttir Sjálfstætt framhald af hinni geysivinsælu, Vöffluhúsið í fjöllunum, ljúflestrarbók ársins í Svíþjóð 2022. Helena hefur nóg að gera við endurbæturnar á býlinu sínu og undirbúning nýja veitingahússins. Ástin til Rikards er enn sterk, en hvernig á hún að geta púslað saman ólíkum þáttum lífs síns án þess að glata nýfundnu sjálfstæðinu? 356 bls. Sögur útgáfa KIL Prettir í paradís Höf: Christina Lauren Þýð: Sunna Dís Másdóttir Anna hafði ekki hitt fyrrverandi eiginmann sinn í þrjú ár þegar hann bankar upp á í litlu leiguholunni hennar og vill fá hana með sér í fjölskyldubrúðkaup á paradísareyju. Fjölskylda hans heldur að þau séu enn gift, sem skiptir máli vegna skilmála í erfðaskrá afa hans. Anna yrði á launum og hana vantar pening - hvað gæti mögulega farið úrskeiðis? 392 bls. Björt bókaútgáfa - Bókabeitan IB RAF Prinsessur og prakkarar Tuttugu ævintýri Höf: Hans Christian Andersen Myndir: Vilhelm Pedersen og Lorenz Frölich Þýð: Kristján Jóhann Jónsson Falleg og eiguleg bók með tuttugu nýjum þýðingum á þekktustu ævintýrum H.C. Andersen, allt frá Eldfærunum til Snædrottningarinnar. Ævintýrin eru langt frá því að vera eingöngu ætluð börnum – í þeim má finna ýmis siðferðileg álitamál, flóknar spurningar um tilvist mannsins og listrænan frásagnarhátt sem höfðar til lesenda á öllum aldri. 222 bls. Forlagið - Mál og menning KIL Núllkynslóðin Höf: Stefan Ahnhem Þýð: Elín Guðmundsdóttir Síðsumarsnótt eina fer rafmagn skyndilega af stórum hluta Skánar. Fabian Risk og Matilda dóttir hans verða vitni að því úr seglbáti á Eyrarsundi þegar kolniðamyrkur skellur á. Í Helsingborg hafa Fabian og samstarfsmenn hans verið að rannsaka fjölda einkennilegra mála sem tengjast dularfullu rafmagnsleysi. 551 bls. Ugla IB Nýtt líf Höf: Danielle Steel Þýð: Snjólaug Bragadóttir Darcy Gray er vinsæll áhrifavaldur, með meira en milljón fylgjendur á netinu. Hún er um fertugt, gift stórríkum verslunareiganda og býr á Manhattan í New York. Til að fagna tuttugu ára brúðkaupsafmæli ákveður Darcy að koma manni sínum á óvart og fljúga til Rómar þar sem hann er í viðskiptaerindum. En þar verður hún fyrir áfalli lífs síns. 273 bls. Ugla KIL Næturdrottningin Höf: Simona Ahrnstedt Þýð: Friðrika Benónýsdóttir Kate Ekberg er glæsileg og hörkudugleg, eigandi vinsæls næturklúbbs í Stokkhólmi. Út á við virðist henni allt ganga í haginn. Jakob Grim er alvörugefinn bankamaður sem er lítt gefinn fyrir að láta í ljós tilfinningar sínar. Þangað til hann kynnist Kate. Eitthvað gerist þegar þessir andstæðu pólar hittast og úr verður æsilegt ástarævintýri. 398 bls. Ugla KIL Óhugsandi líf Höf: Matt Haig Þýð: Arnar Matthíasson Ekkjan Grace Winters erfir óvænt hús á Ibiza eftir konu sem hún þekkti lauslega fyrir löngu síðan. Forvitnin verður skynseminni yfirsterkari og hún leggur land undir fót til að komast að því hver örlög kunningjakonu hennar urðu. Til að skilja sannleikann þarf hún að horfast í augu við fortíð sína og viðurkenna töfrana. 371 bls. Benedikt bókaútgáfa IB RAF Ósmann Höf: Joachim B. Schmidt Þýð: Bjarni Jónsson Sannkallaður yndislestur eftir höfund Kalmanns-bókanna. Sagan byggist á ævi Jóns Magnússonar Ósmann, ferjumanns í Skagafirði, sem flutti menn og skepnur yfir Héraðsvötn um fjögurra áratuga skeið. Jón var tröll að burðum og annálað skáld en öðru fremur mannvinur með meyrt hjarta, einstakur karakter sem örlögin fóru óblíðum höndum um. 233 bls. Forlagið - Mál og menning B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 5 47GOR Gormabók  HSP Harðspjalda bók  HLB Hljóðbók  IB Innbundin bók  KIL Kilja  RAF Rafbók  G Sveigjanleg kápa  TÍM Tímarit  LKO Landakort Skáldverk  ÞÝDD

x

Bókatíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1847

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.