Bókatíðindi - nov. 2025, Side 49

Bókatíðindi - nov. 2025, Side 49
KIL Sporbaugar Höf: Samantha Harvey Þýð: Árni Óskarsson Booker-verðlaunabók ársins 2024. Í þessari skáldsögu er lýst sólarhring í lífi sex geimfara á ferð um sporbauga jarðar. Brugðið er upp svipmyndum af jarðnesku lífi þeirra en umfram allt er bókin þó um einstaka upplifun af því að fara um geiminn á ógnarhraða. Hrífandi lofsöngur til umhverfis okkar og jarðarinnar, ritaður á fögru, litríku máli. 199 bls. Ugla KIL Stóra fagra frábæra líf Höf: Emily Henry Þýð: Harpa Rún Kristjánsdóttir Í grípandi og nýrri skáldsögu eftir Emily Henry keppast tveir höfundar um tækifærið til að skrifa sögu stórbrotinnar konu sem er með þó nokkra ása uppi í erminni. 477 bls. Króníka KIL Sögur á sveimi Höf: Ann Cleeves Þýð: Ragnar Hauksson Tíu árum eftir að Jeanie Long var sakfelld fyrir morðið á hinni 15 ára gömlu Abigail Mantel koma fram upplýsingar sem sanna sakleysi hennar. En Jeanie treystir sér ekki til að horfast í augu við allt fólkið í þorpinu sem trúði því að hún gæti myrt unga stúlku og fremur sjálfsmorð áður en sleppa átti henni úr fangaklefanum. 460 bls. Ugla KIL RAF Tímaráðuneytið Höf: Kaliane Bradley Þýð: Eyrún Edda Hjörleifsdóttir Kona fær það starf að aðstoða einstaklinga flutta úr fortíðinni við að aðlagast nútímanum. Graham Gore, sjóliðsforingi úr heimskautaleiðöngrum nítjándu aldar, er sá fyrsti sem hún tekur á móti og fljótt takast með þeim eldheitar ástir. Rómantík, njósnir og tímaflakk – áleitin frásögn um það að tilheyra tilteknum stað og tíma. 384 bls. Forlagið - Mál og menning SVK Tímaskjól Höf: Georgi Gospodinov Þýð: Veska A. Jónsdóttir og Zophohías O. Jónsson Þriðja skáldsaga eins athyglisverðasta höfundar evrópskra samtímabókmennta. Bókin kom fyrst út í Búlgaríu 2020 og var verðlaunuð af menningarsjóði landsins sem skáldsaga ársins, en hún hefur síðan hlotið margvíslegar viðurkenningar og ber þar hæst Alþjóðlegu Booker-verðlaunin 2023. 415 bls. Dimma KIL RAF Skógarhögg Geðshræring Höf: Thomas Bernhard Þýð: Hjálmar Sveinsson Menningarelíta Vínar er samankomin í kvöldverðarboði. Í dimmu skoti situr maður sem á vart eftir að segja aukatekið orð allt kvöldið en fer í huganum með hamslausa einræðu um tilgerð og tækifærismennsku gesta og gestgjafa, fólks sem hann hafði sagt skilið við 20 árum áður – en getur þó ekki alveg slitið sig frá. Sprenghlægileg og ögrandi skáldsaga. 219 bls. Forlagið - Mál og menning KIL Skrifað í skýin Höf: Jenny Colgan Þýð: Helga Soffía Einarsdóttir Þegar Morag MacIntyre neyðist til að nauðlenda lítilli flugvél í fárviðri á einangraðri eyju þar sem enginn býr nema einn fýldur karl, nokkrar hænur og ein geit breytist allt. Sambandslaus við umheiminn verður Morag að staldra við og horfast í augu við að mögulega hefði hún gott af því að komast í svolítið jarðsamband. 376 bls. Angústúra KIL RAF Sofðu vært Höf: Cilla Börjlind og Rolf Börjlind Þýð: Hilmar Helgu- og Hilmarsson Sofðu vært er fjórða bókin um þau Oliviu Rönning og Tom Stilton eftir Cillu og Rolf Börjlind, einhverja vinsælustu glæpasagnahöfunda Svíþjóðar. Mögnuð saga um óhugnanlegan heim þar sem mannslíf eru lítils metin og peningagræðgin ræður för. 495 bls. Forlagið - JPV útgáfa KIL Sorgarsugan Höf: Heine Bakkeid Þýð: Magnús Þór Hafsteinsson Maður, sem tvívegis hefur reynt að drepa Thorkild Aske, bankar uppá hjá honum með óvenjulega bón. Hann segist hafa fengið það verkefni að myrða fjórar manneskjur innan viku, að öðrum kosti verði átta ára gamall frændi hans drepinn. Hann vill fá hjálp Thorkilds við að ljúka verkefninu. Höfundur hlaut Riverton, norsku glæpasagnaverðlaunin, árið 2022. 388 bls. Ugla KIL RAF HLB Sólskinsdagar og sjávargola Höf: Carole Matthews Þýð: Anna María Hilmarsdóttir Jodie Jackson er viss um að eiginmaðurinn haldi fram hjá. Það er því kærkomið þegar henni býðst að dvelja í húsbát á Wight-eyju til að hugsa sinn gang. Lífið á eyjunni er litríkara en Jodie hafði séð fyrir sér og með tímanum eignast hún dýrmæta vini. Hún kynnist bæði ástinni og nýjum hliðum á sjálfri sér en þá bankar fortíðin upp á. 424 bls. Forlagið - Vaka-Helgafell B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 5 49GOR Gormabók  HSP Harðspjalda bók  HLB Hljóðbók  IB Innbundin bók  KIL Kilja  RAF Rafbók  G Sveigjanleg kápa  TÍM Tímarit  LKO Landakort Skáldverk  ÞÝDD

x

Bókatíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1847

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.