Bókatíðindi - nov. 2025, Side 50
KIL
Við tölum ekki um þetta
Höf: Alejandro Palomas
Þýð: Sigrún Á. Eiríksdóttir
Myndir: María Elínardóttir
Hér vefur Alejandro kyrrlátan og rafmagnaðan
þráð svo úr verður saga sem rekur erfiðar
bernskuminningar, einstakt samband hans við móður
sína, skugga ósýnilegs föður og óheft ímyndunaraflið.
Þetta er einlægur vitnisburður manns sem valdi að
lifa - þökk sé ástríðu hans fyrir að skrifa sögur. Af
blaðsíðunum stafar blíðu og kímni, trega og ást.
304 bls.
Drápa
KIL
Villuljós
Höf: Mons Kallentoft
Þýð: Jón Þ. Þór
Bitur vetur í Linköping. Óleyst morðmál kemur á
borð Malin Fors og félaga hennar í lögreglunni. Fyrir
fimm árum hafði lík ungs drengs fundist á víðavangi.
Nánast öll bein í líkama hans höfðu verið brotin.
Enginn vissi hver hann var og rannsókn lögreglunnar
miðaði lítt áleiðis. En dag einn hefur kona í Alsír
samband og segist vera móðir drengsins.
372 bls.
Ugla
KIL
Vinurinn
Höf: Sigrid Nunez
Þýð: Arnar Már Arngrímsson
Þegar rithöfundur missir skyndilega besta vin
sinn og lærimeistara situr hún uppi með hundinn
hans. Hennar eigin sorg magnast við að horfa
upp á hundinn þjást í hljóði. Vinir hennar telja að
hún hafi misst tökin á tilverunni en hún vill ekki
yfirgefa hundinn nema í örstutta stund í einu.
205 bls.
Bókabeitan
KIL
Þar sem villtu blómin vaxa
Höf: Louise Strömberg
Þýð: Urður Snædal
Maya Björk virðist hafa allt sem nokkur gæti óskað sér.
Mikilvæga stöðu í farsælu sprotafyrirtæki, unnusta sem
hún hefur elskað síðan á námsárunum og líf í miðbæ
Stokkhólms sem flestir gætu bara látið sig dreyma um.
En á einu sekúndubroti er þetta allt tekið frá henni.
309 bls.
Sögur útgáfa
KIL
Þegar ástin deyr
Sumt fólk er ætlað hvort öðru.
Höf: Clare Swatman
Þýð: Illugi Jökulsson
Þegar Fran og Will hittast sem börn vita þau um
leið að þau eru ætluð hvort öðru. Í ellefu ár eru
þau óaðskiljanleg en þegar þau eru átján ára flytur
Will í burtu og hverfur úr lífi Fran. Tuttugu og
fimm árum síðar er Will kominn aftur. Eru forlögin
að reyna að gefa þeim annað tækifæri?
400 bls.
Drápa
KIL
Treystu mér
Höf: Anders Roslund
Þýð: Elín Guðmundsdóttir
Allt leikur í lyndi hjá Ewert Green. Í fyrsta
sinn í þrjátíu ár er hann í sambandi við
konu sem hann vill hafa sig til fyrir.
Hvernig í ósköpunum gat þá allt breyst í
martröð með banvænum sprautuskömmtum,
líffæraviðskiptum, þrælahaldi og mannránum?
Og hvernig varð þetta allt saman til þess að
manneskja nákomin Ewert var myrt?
487 bls.
Ugla
KIL
Uppskrift að jólum
Höf: Jo Thomas
Þýð: Herdís H. Húbner
Clara hefur alltaf þráð að eiga jól í faðmi ástvina og
fjölskyldu, umvafin hlýju og gómsætum mat. Svo að
þegar nýi kærastinn hennar biður hana að flytja með
sér til Sviss, getur hún ekki annað en sagt já! Því að
hvað gæti verið fullkomnara en jól í Ölpunum?
346 bls.
Bókafélagið
KIL RAF HLB
Útvörðurinn
Höf: Lee Child og Andrew Child
Þýð: Jón Hallur Stefánsson
Jack Reacher kemur í veg fyrir mannrán í smábæ
í Tennessee-fylki. Tölvukerfi bæjarins liggur niðri
eftir gagnaárás og maðurinn sem Reacher bjargaði
reynist hafa verið upplýsingatæknistjóri í plássinu.
En hvers vegna eru allir þessir rússnesku glæponar á
höttunum eftir óbreyttri tölvublók? Þetta er tuttugasta
og fimmta bókin um töffarann Reacher.
368 bls.
Forlagið - JPV útgáfa
KIL
Vaxtarræktarkonan einmana
Höf: Yukiko Motoya
Þýð: Elísa Björg Þorsteinsdóttir
Frumlegar smásögur úr japönskum samtíma
sem fjalla um tengsl og samskipti á óvæntan
hátt. Sögupersónurnar takast á við hið gróteska,
framandi og ævintýralega í hversdeginum
og frelsast úr viðjum vanans.
252 bls.
Angústúra
KIL
Við höfum alltaf átt heima í kastalanum
Höf: Shirley Jackson
Þýð: Gunnhildur Jónatansdóttir
Gotnesk klassík. Við kynnumst systrunum Merricat
og Constance sem hefur báðum verið útskúfað
úr samfélagi þorpsbúa vegna skelfilegra atburða í
fortíð þeirra. Þær lifa fábrotnu en hamingjuríku lífi
á ættaróðali sínu í útjaðri þorpsins þar til tilveru
þeirra er ógnað af utanaðkomandi öflum.
233 bls.
Ugla
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 5 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa TÍM Tímarit LKO Landakort50
Skáldverk ÞÝDD