Bókatíðindi - nóv. 2025, Qupperneq 57
IB
Vestfirsku leiksögubækurnar
Leiklist á Ísafirði
Útg.: Elfar Logi Hannesson
Hér er hún loks komin fjórða vestfirska leiksögubókin
og að þessu sinni er leiksaga höfuðstaðarins
Ísafjarðar í sviðsljósinu. Fjallað verður um sögu
leiklistarinnar í kaupstaðnum við flæðarmálið
allt frá því að fyrsta leikverkið fór á svið og til
þeirra nýjustu. Bókin er prýdd fjölda mynda úr
hinni löngu og sögulegu leiksögu Ísafjarðar.
340 bls.
Kómedíuleikhúsið
IB
Myndarleg ljóð
Höf: Bjarki Bjarnason
Í þessari bók teflir höfundur fram ljósmyndum
sínum og ljóðum svo úr verður firnasterk heild.
Flestar ljósmyndirnar eru teknar í íslenskri náttúru
og heimspekilegur undirtónninn í ljóðunum er
í senn persónulegur og sammannlegur. Bjarki
hefur stundað ritstörf um áratuga skeið og fæst
jöfnum höndum við skáldskap og sagnfræði.
112 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
TÍM
Myndlist á Íslandi
5. tölublað
Ritstj: Hólmar Hólm, Becky Forsythe og Eva Lín
Vilhjálmsdóttir
Tímaritið er hugsað sem miðja fyrir
myndlistarumfjöllun hér á landi – öflugur
vettvangur fyrir umræðu og gagnrýna greiningu
á myndlist og stöðu myndlistarfólks á Íslandi,
auk þess sem rýnt er í gagnkvæmt samband
íslensku senunnar við umheiminn. Tímaritið
er gefið út einu sinni á ári í veglegri og fallegri
prentútgáfu bæði á íslensku og ensku.
208 bls.
Myndlist á Íslandi
KIL
Sketching Bathing in Iceland
Höf: Rán Flygenring
Rán Flygenring ferðaðist eitt sumar vítt og breitt
um landið, dýfði sér í hverja laug, lón og náttúrupoll
sem hún fann og festi baðmenningu á Íslandi í
teikningar. Útkoman er stórkostleg handbók fyrir
alla sem áhuga hafa á náttúru landsins, teikningu
og mannlegu eðli, auk þess að vera leiðarvísir fyrir
erlenda ferðamenn og sundlaugargesti.
80 bls.
Angústúra
IB
Spegill þjóðar
Fréttamyndir í fimmtíu ár og sagan á bak við þær
Höf: Gunnar V. Andrésson og Sigmundur Ernir
Rúnarsson
Gunnar V. Andrésson var einn áhrifamesti
fréttaljósmyndari okkar í hálfa öld og margar
mynda hans eru táknmyndir í þjóðarsögunni.
Gunnar velur hér á annað hundrað minnisstæðustu
mynda sinna og Sigmundur Ernir Rúnarsson
skráir söguna á bak við hverja þeirra – úr verður
einstakt og áhrifamikið sjónarspil.
336 bls.
Forlagið - Mál og menning
IB
Smárit Listasafns Íslands
Götuhorn: Skáldtextar innblásnir af íslenskri
myndlist
Ritstj: Kjartan Már Ómarsson og María Elísabet
Bragadóttir
Bók þessi inniheldur texta sem skrifaðir voru
út frá innblæstri frá listaverkum af sýningunni
Viðnám - Samspil myndlistar og vísinda sem
opnuð var í Safnahúsinu 3. mars 2023.
96 bls.
Listasafn Íslands
IB
Jörð / Earth
Höf: Bryndís Jónsdóttir
Bryndís Jónsdóttir sækir innblástur í náttúruna og
leitast við að ná fram hinu lífræna úr ólíkum efnivið.
Hún horfir til táknkerfis íslensku fjármarkanna,
sem fylgt hafa þjóðinni frá fornu fari. Sýlthamrað,
þrístigað eða heilrifað, hún útfærir mörkin í volduga
leir- og járnskúlptúra, massíft gler og viðkvæm
graf íkverk. Efniskenndin er áþreifanleg.
96 bls.
Angústúra
IB
Kína
Frá fyrri öld
Höf: Unnur Guðjónsdóttir
Í þessari glæsilegu ljósmyndabók er skyggnst inn
í heim Kína og Kínverja eins og hann var fyrir um
40 árum. Megnið af myndunum er frá heimsókn
höfundarins þangað árið 1983, en einnig eru nokkrar
frá 1991. Höfundurinn hefur löngum haft sterk tengsl
við Kína og farið þangað margoft og rak um árabil
Kínaklúbb Unnar sem stóð fyrir ferðum þangað.
136 bls.
Bókaútgáfan Hólar
IB
Kristján H. Magnússon
Listamaðurinn sem gleymdist
Höf: Einar Falur Ingólfsson, Dagný Heiðdal og
Guðmundur Oddur Magnússon
Kristján H. Magnússon var á meðal athyglisverðustu
listamanna þjóðarinnar á fyrri hluta 20. aldar –
en um hann hefur verið hljótt um áratugaskeið.
Sannkallaður kjörgripur öllum þeim er unna íslenskri
menningu; verðugur minnisvarði um ungan mann
frá Ísafirði sem fór óvenjulegar leiðir til að ná af
miklum metnaði hæstu hæðum í list sinni.
296 bls.
Veröld
IB
Kristján Steingrímur
Fyrir handan liti og form
Höf: Kristján Steingrímur Jónsson
Glæsilegt rit sem sameinar list og náttúru.
Kristján Steingrímur umbreytir jarðvegi í lit og
leiðir lesandann inn í nýja sýn á íslenskt landslag
og sköpun. Fjölmargar litmyndir gera bókina
að sjónarspili og einstæðri upplifun.
182 bls.
Hið íslenska bókmenntafélag
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 5 57GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa TÍM Tímarit LKO Landakort
Listir og ljósmyndir