Bókatíðindi - nov. 2025, Side 58
IB
Fífl sem ég var
Höf: Karl Ágúst Úlfsson
Hver þekkir ekki föndurkennarann,
leigubílstjórann, Silla, Geir (og Grana) og
margar fleiri hetjur úr Spaugstofunni? Og ekki
má gleyma Eyjólfi í Ytri-Hnjáskeljum, Danna
í Líf-myndunum og fleiri slíkum.
Leikandi allra þessara kunningja okkar, Karl
Ágúst Úlfsson, rifjar hér upp sköpunarsöguna
sem vissulega hefur ekki verið án átaka.
276 bls.
Bókstafur
IB
Fjórar árstíðir
Sjálfsævisaga
Höf: Reynir Finndal Grétarsson
Reynir Finndal Grétarsson ólst upp við að þurfa
að standa sig. Sem stofnandi og stjórnandi
Lánstrausts, síðar Creditinfo, byggði hann frá
grunni upp öflugt alþjóðlegt fyrirtæki sem stóð
af sér risavaxnar sviptingar. En eitthvað vantaði.
Við lítum í baksýnisspegilinn með Reyni, sem
segir sögu sína af fágætri einlægni.
351 bls.
Sögur útgáfa
IB
Frá Hamborg að Borgum
Um lífshlaup Margotar Gamm
Höf: Karl Skírnisson
Margot Gamm fluttist 17 ára gömul til Íslands frá
Þýskalandi eftir að hafa lifað af hörmungar seinni
heimsstyrjaldarinnar. Kornung giftist hún sér tuttugu
árum eldri manni, Skírni Hákonarsyni, og gerðist
bóndakona á gamalgrónu sveitaheimili. Þar ólu hjónin
upp fimm börn. Hún varð ekkja 48 ára gömul, hætti
þá búskap og tók að sinna kennslustörfum.
164 bls.
Karl Skírnisson - bókaútgáfa
IB
Fröken Dúlla
Höf: Kristín Svava Tómasdóttir
Jóhanna Knudsen, kölluð Dúlla af ástvinum sínum, er
alræmd vegna rannsókn hennar á siðferðisástandinu
í Reykjavík á árum seinni heimsstyrjaldar.
Nærgöngular yfirheyrslur hennar yfir stúlkum sem
grunaðar voru um samneyti við erlenda hermenn
hafa verið kallaðar umfangsmestu persónunjósnir
Íslandssögunnar. En hver var Dúlla Knudsen?
368 bls.
Benedikt bókaútgáfa
IB
Heimsins besti dagur í helvíti
Höf: Lilja Ósk Snorradóttir
Þegar Lilja Ósk flækir fæturna í hundabúri í miðju
matarboði og dettur á höfuðið er hún sannfærð
um að hún muni jafna sig fljótt og örugglega,
enda hefur hún hvorki tíma né þolinmæði til
annars. Raunin verður þó önnur. Hvað tekur kona
til bragðs sem týnir sjálfri sér? Hrá, einlæg og
átakanleg en á tíðum líka kómísk frásögn.
208 bls.
Salka
Ævisögur og
endurminningar
KIL
Atvik á ferð um ævina
Höf: Njörður P. Njarðvík
Menningarfrömuðurinn Njörður P. Njarðvík hefur oft
verið hvattur til að skrifa ævisögu sína, enda komið
víða við á fjölbreyttri og áhugaverðri ævi. En hann
hefur ævinlega vikist undan slíkum hvatningum.
Það hefur þó hvarflað að honum að gaman gæti
verið að skrifa um ýmislegt minnisstætt sem hefur
haft áhrif á hann – bæði til góðs og ills.
180 bls.
Ugla
IB
Blátt áfram
Sjálfsævisaga
Höf: Bjarni Eiríkur Sigurðsson
Ritstj: Hrafn Andrés Harðarson
Bjarni Eiríkur var lesblindur en tókst með harðfylgi
að sigrast á þeim fjanda. Hann lauk kennaraprófi,
kenndi í Hveragerði, var skólastjóri í Þorlákshöfn
og lærði náms- og starfsráðgjöf. Hann var góður
tónlistarmaður og á dansgólfinu heillaði hann
dömurnar með fótafimi og þokka. Það sem stendur þó
upp úr á æviferli Bjarna er án efa hestamennskan.
208 bls.
Nýhöfn
IB
Dorgað í djúpi hugans
Bernsku- og æskuminningar frá sjötta og sjöunda
áratug tuttugustu aldar
Höf: Skúli Thoroddsen
„Allt sem þú ert er frá öðrum komið.“ Lögfræðingurinn
Skúli Thoroddsen pælir í meiningu þessara orða
og fiskar upp lifandi atvik bernsku- og æskuáranna
á myndrænan hátt – hvort heldur sem krakki á
barnaheimili, unglingur í brúarvinnu eða sveitastrákur
hjá Konunni í dalnum og dætrunum sjö.
349 bls.
Ugla
IB
Einn, tveir, þrír, fjór...
Bítlarnir í tímanna rás
Höf: Craig Brown
Þýð: Helgi Ingólfsson
Heillandi og bráðskemmtileg ævisaga Bítlanna. Í
þessari mögnuðu metsölubók er sögð saga strákanna
frá Liverpool og brugðið upp lifandi myndum af öllu
því undarlega fólki sem tengdust þeim, svo sem Fred
Lennon, Yoko Ono, Maharishi, Mímí frænku, Magic
Alex, Phil Spector og lögreglufulltrúanum Norman
Pilcher sem reyndi að gera þeim allt til miska.
734 bls.
Ugla
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 5 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa TÍM Tímarit LKO Landakort58
Ævisögur og endurminningar
Ævisögur og endurminningar