Bókatíðindi - nóv. 2025, Blaðsíða 66
KIL
Líf á jörðinni okkar
Vitnisburður minn og framtíðarsýn
Höf: David Attenborough
Þýð: Magnús Þór Hafsteinsson
Bók sem á sérstakt erindi. „Ég hef átt ótrúlega
ævi. Núna fyrst kann ég að meta hve einstök
hún hefur verið. Þegar ég var ungur fannst
mér eins og ég væri þarna úti í óbyggðunum
og upplifði ósnortinn heim náttúrunnar – en
þetta var tálsýn,“ skrifar David Attenborough
og lítur yfir sviðið í þessari fróðlegu bók.
248 bls.
Ugla
IB
Með frelsi í faxins hvin
Riðið í strauminn með Hermanni Árnasyni
Höf: Hjalti Jón Sveinsson
Hér segir frá Hermannni Árnasyni. Tamning hrossa
og hestaferðir eru hugsjón hans og sum viðfangsefnin
með ólíkindum s.s. vatnareiðin, stjörnureiðin
og Flosareiðin þegar riðið var í spor Flosa og
brennumanna frá Svínafelli að Þríhyrningshálsum til
að sannreyna þá reið sem farin var til að brenna inni
heimilisfólk á Bergþórshvoli í Brennu-Njáls sögu.
260 bls.
Bókaútgáfan Hólar
SVK
Með nesti og nýja skó
Greinar um tengsl leikskóla, grunnskóla og frístunda
Ritstj: Jóhanna Einarsdóttir og Björn Rúnar Egilsson
Bókin veitir innsýn í þau umskipti sem verða
í lífi barna á mótum skólastiga og er ætlað að
stuðla að ígrundun fagfólks, foreldra, nemenda
og annarra sem láta sig menntun ungra barna á
mikilvægum timamótum varða. Hún inniheldur
13 fræðigreinar þar sem fjallað er um niðurstöður
rannsókna sem tengjast menntun ungra barna.
322 bls.
Háskólaútgáfan
KIL
Ritröð Árnastofnunar nr. 119
Meyjar og völd
Rímur og saga af Mábil sterku
Höf: Valgerður Kr. Brynjólfsdóttir
Konungsdóttirin Mábil sterka frá Vallandi er
öllum fremri í riddaralistum. Hún drýgir miklar
hetjudáðir í bardögum og beitir óhefðbundnum
aðferðum við að klekkja á helsta óvini sínum, Medeu
drottningu í Grikklandi. Sömuleiðis ver hún Móbil
systur sína frækilega gegn ásókn karla sem vilja
kvænast henni og heimta þannig krúnuna.
502 bls.
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
RAF TÍM
Milli mála 2025
Ritstj: Geir Þ. Þórarinsson og Þórhildur Oddsdóttir
Milli mála kemur út tvisvar á ári. Almennt
hefti inniheldur fræðigreinar á sviði tungumála,
bókmennta, þýðinga, málvísinda og menntunarfræði.
Sérhefti ársins 2025 er helgað orðasambandafræði.
Tímaritið er í opnum aðgangi.
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur / Háskólaútgáfan
KIL
Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi
Ritstj: Þorvaldur Víðisson
Þarftu að glæða kærleikann í þínu lífi? Þessi bók
er safn af gömlum og nýjum tilvitnunum um
kærleikann, fengnar úr kristinni hefð, sálmum
sálmabókar og ritum Biblíunnar, úr ritum annarra
trúarbragða, bókmenntum og dægurlögum.
Ástin spyr ekki um kyn eða kynferði, stétt
eða stöðu. Ást og kærleikur sigra allt.
68 bls.
Skálholtsútgáfan - Kirkjuhúsið
IB
Langt var róið og þungur sjór
Líkön Njarðar S. Jóhannssonar af norðlenskum fiski-
og hákarlaskipum og frásagnir af afdrifum þeirra
Höf: Sigurður Ægisson
Þúsundþjalasmiðurinn Njörður S. Jóhannsson
á Siglufirði hefur smíðað á þriðja tug líkana af
norðlenskum fiski- og hákarlaskipum frá 18. og 19. öld.
Hér eru myndir af þeim, sannkölluðum listaverkum,
og jafnframt er rakin saga þeirra, sem endaði ekki alltaf
vel. Samantekt á ensku fylgir í lok bókarinnar.
266 bls.
Bókaútgáfan Hólar
IB
Laxá
Lífríki og saga mannlífs og veiða. Veiðistaðalýsingar í
Mývatnssveit og Laxárdal
Ritstj: Jörundur Guðmundsson
Höf: Sigurður Magnússon og Ásgeir Hermann
Steingrímsson
Veiðistaðalýsing fyrir Laxá í Mývatnssveit og Laxárdal
ásamt þáttum um lífríki, sögu og mannlíf við þessa
merku silungsveiðiá. Frásagnir af merku fólki og
náttúrufari árinnar sem nýtur alþjóðlegrar friðunar.
304 bls.
Veraldarofsi
IB
List & Hönnun
Höf: Trausti Valsson
Bókin fylgir ævisögulegum þræði höfundarins.
Hér segir höfundurinn einkum frá verkum
sínum á sviðum listar og hönnunar og greinir
um leið frá hönnunarteoríum sem hann hefur
mótað á ferli sínum um þessi svið.
160 bls.
Skrudda
SVK
Litróf kennsluaðferðanna
Grundvallarrit fyrir kennara og kennaranema
Höf: Ingvar Sigurgeirsson, Súsanna Margrét
Gestsdóttir og Svava Pétursdóttir
Handbók um helstu kennsluaðferðir, skrifuð fyrir
kennara og kennaranema. Hefur að geyma yfirlit
um tugi kennsluaðferða sem og leiðbeiningar
um hvernig þeim er beitt. Í þessari nýju útgáfu
hefur efnið verið aukið, endurskoðað og uppfært,
m.a. í ljósi rannsókna á kennsluaðferðum sem
fleygt hefur fram á undanförnum árum.
248 bls.
IÐNÚ útgáfa
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 5 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa TÍM Tímarit LKO Landakort66
Fræðirit, frásagnir og handbækur