Freyja - 01.12.1904, Page 8
104.
FREYJA
VII. 5.
nema því að hann hlyti að deyja—öllum sínum áformum um aS
óttast ekkert, æörast aldrei. Svo hann grét og baö og baö og
grét. En enginn heyröi kveinstafi hans.
„En þetta getur ekki veriö virkilegleiki, þaö hlýtur aö vera
draumur, “ hugsaöi hann. ,, Já draumur. “ Og hann gjöröi allt
sem hann gat til aö vakna. Ég get ekki veriö Lailie. Ég hlýt
aö vera Assarkhadon. ,,Þú ert bæöi Lailie og Assarkhadon, “
sagöi rödd rétt hjá honum, og í því finnst honum aö böölarnir
vera aö taka sig af lífi. Hann hljóöaöi upp og rak um leiö höfuö-
iö upp úr vatninu — þar stóö þá öldungurinn og hellti síðustu
dropunum úr brúsanum yfir höfuö hans.
,,Ó hvaö ég hefi kvalist, og þaö svo lengi, “ sagöi Assarkhadon.
„Lengi, “ endurtók öldungurinn. ,,Þú hefir ekki nema dýft
höföinu ofan í vatnið rétt sem snöggvast. Séröu ekki aö brúsinn
er ekki tómur enn þá? Skilurðu nú það sem ég sagði þér?“
Assarkhadon horföi óttasleginn á öldunginn en svaraði engu.
„Skilurðu nú, “ endurtók öldungurinn, ,,að Lailie er þú sjálf-
ur og hermennirnir sem þú lézt lífláta voru einnig þú. Ekki ein-
ungis mennirnir heldur og einnig dýrin sem þú veiddir og ázt í
veizlum þínum voru þú. Þú heldur að lífið búi einungis í þér
sjálfum, en með því að draga skýlu fávizkunnar frá augum þér,
hefi ég sýnt þér, að meö því að gjöra öðrum illt, gjörir þú sjálfum
þér mest illt. Lífiö býr í öllum lifandi verum, og þú hefir sjálfur
einungis lítinn skammt af þessu almenna lífi, og í þeim litlaskctmmt
eða hluta, sem í sjálfum þér býr, megnar þú aö auka þaö eöa
minnka, gjöra það betra eða verra, fullkomnara eöa ófullkomnara.
Þinn eigin hluta getur þú fullkomnað meö því einu móti aö eyða
öllu því er aöskilur þitt líf frá annara lífi, og meö því aö skoða
aöra, part af sjálfum þér, og elska þá eins og sjálfan þig. Þú get-
ur ekki eyðilagt neitt af því lífi sem í öörum býr. Líf þeirra, sem
þú hefir líflátiö, er að eins horfið sjónum þínum, en ekki eyðilagt.
Þú ætlar að eyða annara lífi en lengja þitt, en þaö getur þú ekki
gjört. Lífiö þekkir engin takmörk, tíma né rúm. Líf mínútu-
tímabils og líf þúsund ára — líf þitt og allra sýnilegra skepna og
hins óskiljanlega ósýnilega er allt jafnt. Aö eyðileggja líf eða
breyta því er ómögulegt, því lífiö er þaö eina virkilega—eina sem
hefir tilveru. Allt annað er sjónhverfing.