Freyja - 01.12.1904, Blaðsíða 39

Freyja - 01.12.1904, Blaðsíða 39
FREYJA 13 VII. c. aöist enginn viö hann nema eínn gráhœrður öldungur, því í staö þess aö vera einungis stutta stund aö hlusta á fuglinn, eins og munkurinn hélt sig hafa verið, hafði hann verið að í því fimmmtíu ár, og á þeim tíma dóu allir félagar hans í klaustrinu nema þessi eini. George Henry Lewes var sá söngfugl, sem snerti hjartastrengi þessarar einkennilegu konu. Þegar hún kynntist honum, byrjaði njtt tímabil í sögu hennar. Þaö voru tónar hans, sem opnuðu sálarlff hennar. Frá honuní kom ylur sá, sem gaf anda hennar frjómagn, svo að hinn vel ræktaði akur heila hennar sprakk ut og gjörðist alsettum lifandi, iimríkum blómum. Þangað til stóð þessi hámenntaða, þaul-lesna kona fvrir utan samtíð sína að heita mátti—ein, mitt í fjöldanum, óhrfin o ' sjálf óhæf, þrátt fyrir alla sína víðtæku þekkingu, til að hrífa aðra. Allt sem hún skrif- aði fram að þeim tíma var þurt og dauft, hvar sem hún var stödd, hvort heldur það var mitt í hinni suðrænu paradís fegurðarinnar á Italíu, eða uppi á hinum tignarlegu, snæ-typptu Alþafjöllum. Frá öllu segir hún blátt áfram án þess að hrífa hugi lesenda sinna hið minnsta eða snerta viðkvœma strengi í hjörtum þeirra, og þó átti hún sjálf viðkvœmt, meðlíðunarfullt og hjáipfúst hjarta framar ilestum öðrum. Eftir að hún iluttist til London, og gjörðist með-ritstjóri við Westminster Review breyttust lífskjör hennar mjög frá því sem verið hafði. Tími hennar var nú algjörlega annara eign, hún varð að mœta allskonar fólki, og á meðal þess kynntist hún þi tnönnum þeim, sem að framan eru nefndir. Hið rólega, sjálfráða lífhentiar var breytt í hvi'ldarlaust starf. I bréfum sinum frá þessum tímum get- ur hún meðal annars, Herbert Spencers áþessaleið: ,,Hérkynnt- istég Herbert nokkrum Spencer, sem nýlega hefir gefið út Social Statics, sem Lewes segir að sé það lang bezta, sem hann hafi séð af því tagi. Og seinna segir hún um hánn: ,, Viö erum mestu mátar, án þess þó að vera ástfangin hvört'íöðru. Oghvískyldum við þá ekki vera saman eins mikið og við getum, fyrst okkur líður báðum betur fyrir þá samveru?“ Eftir þetta getur hún Spenc- erSjSjaldnar í bréfum sínurh, en oftar Lewesar, og má þó glöggt sjá, að henni hefir ekki geðjast allskostarað honum í fyrstu, og hefir hún að líkindum byggt skoðun sína á honum um það leyti á ann-

x

Freyja

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.