Freyja - 01.12.1904, Blaðsíða 40

Freyja - 01.12.1904, Blaðsíða 40
136. FREYJA VII. 5 ara dómum um hann og breytni hans, sem henni þótti of léttúöar- full, samhliöa inni þungu lífsreynzlu, sem hann haföi oröið fyrir. Um hann segir hún í bréfi til Brays hjónanna: , Allir eru mér mjög góðir, en sérstaklega Lewes, enda er mér farið aö geðjast mjög vel að honum, jafnvel þó ég hafi fundið ástœðu til að gefa honum nokkrar alvarlegar bendingar. Hann er, eins og einstöku menn, inikið betri en hann sýnist, og á gott hjarta undir yfirskini léttúð- ar og kæruleysis. ‘ ‘ George Henry Lewes var einn af frægustu bókmenntamönnum sinnar tíðar—-heimspekingur, vísindamaður og krítikus, Hann var léttlyndur, glaðlyndur og fyndinn og að öllu elskulegasti maður og félagsbróðir fyrir þessa fálátu, þurlegu konu, því tvœr ólíkari per- sónur að skaplyndi er ekki hægt að hugsa sér. Hann var sólin og sephyrinn, hún staðfestan og stillingin. Hann var meistari í öllu, sem gjörir manninn aðlaðandi og eftirsóknarverðann í félagslífinu. Hún þvert á móti, fálát og seintekín. Hún átti fáa en fasta vini, hans vinir voru allir, sem til hans þekktu. Þess er áður getið að Lewes hafi átt lifandi konu, þegar hann tók saman við Mary. En þessi kona hans hafði strokið tvisvar frá honum og skilið hann eftir með þremur ungum sonum þeirra. I ■fyrra skiftið kom hún aftur, bað um fyrirgefning og fékk hana, en síðara skiftið hvorki bað hún um fyrirgefningu, né heldur hefði það þá verið til nokkurs. En þau voru lög á Englandi, að maður, sem einusinni fyrirgaf konu sinni slíkan glæp, gat ekki fengið löglegan skilnað frá henni síðar þótt hann vildi. Þannig stóð hagur hans, þegar hann mætti Mary Ann Evans, og þetta var þröskuldur, sem stóð á milli þeirra alla œfi, annars hefðu þau vafalaust gifst. Það er og víst, að hún hefir liðið mikið við þetta atriði, því hún hafði sterka trú á helgi hjónabandsins. En með þessum manni var hún sæl og fyrir hann varð hún það sem hún varð. A bréfum til vina hennar má og allstaðar sjá, hversu fullkomin að verið hafi ástasœla hennar og hversu þessi maður varð henni meira og meira allt íöllu. Enda tileinkar hún honum flest skáldverk sín og þakkar honum tilveru þeirra. Um hana segir Lewes í bréfi til vinar síns: ,,Að þekkja hana var að elska hana. Síðan við komum saman hefir œfi mín verið sífeld endurfæðing til nýrrar fullkomnunar og nýrrar sælu. Henni á ég að þakka alla mína hamingju. “

x

Freyja

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.