Freyja - 01.12.1904, Qupperneq 16

Freyja - 01.12.1904, Qupperneq 16
128. FREYJA VII. 5. Og glöp mín fyrirgef þú mér, hiö góða líka og sérhvert starf. Frá manni hlýtur maður arf, ei maður, drottinn, gefur þér. Og fyrirgef þóttgráti’ egþann, ó guð minn, sem ég beztanfann, hjá þér ég vona’ að hitta hann til helgrar ástar verðugann. Og fyrirgef mér, faðir minn, í fátœkt minni bænir þær, sem trufluð œskan aðeins nær. Mér ógnar vizkubrunnur þinn. II. Með aðstoð hans, er óma lét úr einni gígju tónamergð, ég trúi Hel, á himinferð oss hœrra lyfti.— Vinnist fet. En hver má telja ófœdd ár og ávinning í tapi sjá? Og hver á reikningsráð að ná í rentur þær, sem gefa tár? Lát blunda sorg við barm á ást, svo báðardrukkni’ ei. Gripiðhnoss lát sortann hafa.— Sælla’ er oss með saknaðs þunga’ í hel að slást, en sigur fá og henda háð með hroka’ að ást, erlengi brann. Sjá mann sem unni’ og missti— Hann síns máttar neytti’ ogféll meðdáð. SlG. JÚL. JÓHANNESSON. V O R. Enn á vori laufgast lundur, lífið nýjan skrúða fann, svásleg blómin breiðast sundur brosir gjörvöll náttúran. Enn þá vorsins undra kraftur á þig maður kallar hátt: Líttu’ upp vinur—ekki aftur áfram — hœrra — sæktu knátt. Með vor í huga’ og vonir sterkar viljakraft og manndóms þor, það er það, sem vinnur—verkar að verða rakin göfug spor yfir tímans ægi sanda yfir lífsins bárótt höf, láttu vorið að þér anda andans blóma sælu gjöf. Láttu vorið að þér anda æðstu gœðum lífs um svið brjóttu hlekki villu vanda— verði ljós á hverja hlið, eins og bjarg í brimi stranda þó birgi sólu hafrótið, þá skal vorið að þér anda andans sœlu ró og frið. S. J. Björnsson.

x

Freyja

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.