Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 04.12.1986, Qupperneq 25

Helgarpósturinn - 04.12.1986, Qupperneq 25
urnefndra leikstjóra. Og það sem meira er: honum tekst það barasta nokkuð vel. Hann fær til liðs við sig sjö leikara af yngri kynslóðinni sem eiga það sameiginlegt að vera meðal allra frambærilegustu leik- ara úr „unga liðinu" vestan hafs í dag. Myndin gerist í nútímanum og segir frá sjö krökkum sem hafa haldið hópinn í gegnum súrt og sætt á sínum menntaskóiaárum. Eftir útskrift þarf hins vegar eitt- hvað annað og meira að taka við og þá hlaðast upp vandamálin. Þetta er kannski ekki mjög frum- leg saga, en hún er vel skrifuð og umfram allt skemmtilega leik- stýrð og fantavel leikin. -Þ.Ó. The Flamingo Kid: ~k/i Bandarísk árgerð 1984. Leik- stjórn: Garry Marshall. Handrit: Garry og Neai Marshatl eftir sögu Neals. Aðalhlutverk; Matt Dillon, Hector Elizondo, Molly Mac- Carthy, Richard Crenna. Það virðist oft sem framleiðend- ur unglingamynda haldi að nægj- anlegt sé að skarta eins og einni unglingastjörnu, ásamt slarkfær- um leikurum í aðalhlutverkum, til að myndir])eirra slái í gegn. Þann- ig er einmitt háttað í Flamingo Kid. Matt Dillon, sem skaut upp á stjörnuhimininn með dyggri að- stoð Coppola, er hér í aðalrullunni sem hinn ráðvillti en þó hæfileika- mikli unglingur. Handritið er hins vegar afar ómerkilegt og sögu- þráður nánast enginn og við það hrapar myndin töluvert niður. Flamingo Kid er unglingamynd með frekar rólegan heildarsvip, sem væri svo sem í lagi ef hún væri ekki svona ófrumleg og allt að þvi hundleiðinleg á að horfa. -Þ.Ó. MUNIÐ HEIMSENDA GÍRÓSEÐLA Helgarpósturinn Ódýrt að baka fyrir ■ |fl|B|flf þessi| jól Jólatilboð á bökunar- vömm JÖ2Í NÝÍ IHK cn * > VÖRUHÚS/Ð EIÐISTORGI HELGARPÓSTURINN 25

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.