Helgarpósturinn - 04.12.1986, Síða 28
VINSÆLDALISTI HP
GRÍN, MORÐ OG
Heiti Leikstjóri Land Árgerð
1. Back to the Future Robert Zemeckis US '85
2. Jagged Edge Richard Marquand us '85
3. The Hitcher Robert Harmon us '86
4. White Nights Taylor Hackford us '85
5. Rocky IV Sylvester Stallone us '85
6. Indiana Jones and the
Temple of Doom Spielberg us '84
7. Spies Like Us John Landis us '85
8. Remo Guy Hamilton us '86
9. Santa Claus The Movie Jeannot
Scwarz us '85
10 Raw Deal John Irwin us '86
Hér á síðunni gefur að líta flunkunýjan lista HP yfir
uinsœlustu myndböndin á markaðinum í dag. Athyglis-
vert er hversu miklar breytingar hafa orðið á listanum frá
síðustu könnun en réttur mánuður var á milli kannanna.
Fimm vinsœlustu myndirnar eru tiltölulega nýjar á
markaðnum og bola þannig Indiana Jones og Spies Like
Us ár toppsœtunum langt niður listann. Tíu vinsœlustu
myndirnar að þessu sinni eru allar bandarískar.
myndaefni, auk þess sem það hefði
mátt vera keyrt mun ákveðnar
áfram til að mynda meiri spennu.
Sannleikurinn er nefnilega sá að í
myndinni fæst hið ágætasta drama
en hin eiginlega spenna er látin sitja
á hakanum. Þannig nær Skörðótta
hnífsblaðið því miður varla að
standa hátt upp úr meðalmennsk-
The Hitcher: ★★'/2
Bandarísk, árgerð 1986. Adalhlut-
verk: Rutger Hauer, C. Thomas
Howell, Jennifer Jason Leigh. Leik-
stjóri: Robert Harmon.
Unglingastjarnan C. Thomas
Howell er hér í hlutverki manns sem
þarf að flytja bíl frá Chicago til San
Fransisco á vegum fyrirtækisins
sem hann starfar hjá. Hann á við
Back to the Future: ★★★
Bandarísk, árgerð 1985. Leik-
stjórn: Robert Zemeckis. Aðalhlut-
verk: Michael J. Fox, Christopher
Lloyd.
Robert Zemeckis er maður sem
greinilega hefur tekið Steven Spiel-
berg sér til fyrirmyndar. Er hann
gerði Romancing the Stone studdist
hann að nokkru leyti við ævintýra-
mynd Spielbergs, Raiders of the Lost
Ark, og nú leitar hann beint til Spiel-
bergfabrikkunnar við gerð Back to
the Future.
Greinilegt er að hér er hæfileika-
piltur á ferð því myndin er alveg sér-
lega vel heppnuð. Hún segir frá ung-
um pilti sem lendir í því að fara með
tímavél 30 ár aftur í tímann og bar-
áttu hans við að komast aftur til árs-
ins 1985. Handrit myndarinnar er
mjög gott og úrvinnsla leikstjóra
með miklum ágætum. Með hlutverk
stráksa fer áður óþekktur leikari,
Michael J. Fox, og stendur hann sig
þokkalega sem þessi (ó)heppni
unglingur. Reyndar átti Eric Stolz úr
Mask upphaflega að fara með þetta
hlutverk en hann var rekinn fljót-
lega svo ekkert varð úr því. Hins
vegar stelur Christopher Lloyd sen-
unni í hlutverki vísindamannsins og
sýnir skemmtilegan leik.
Aftur til framtíðar er góð vísinda-
skáldsaga með hressum blæ, og ætti
hér að vera skemmtimynd fyrir alla
fjölskylduna. Það er því engin furða
að hún njóti slíkra vinsælda sem
raun ber vitni.
-Þ.Ó.
Jagged Edge: ★★
Bandarísk, árgerð 1985. Leik-
stjórn: Richard Marquand. Aðal-
hlulverk: Jeff Bridges, Glenn
Close, Robert Loggia.
Hér er gamalkunnugt efni á ferð-
inni. Tvö hræðileg morð eru framin
á heimili forríkra hjóna, hvar frúin
sjálf er myrt ásamt þjónustustúlku
sinni. Böndin berast strax að eigin-
manninum, leikinn af Jeff Bridges,
sem virðist ekki eiga sér viðreisnar-
von gegn ásökunum þeim er á
hendur hans eru bornar. Hann er þó
ákveðinn í að sanna sakleysi sitt og
ræður til sín mikilhæfan lögfræð-
ing, sem vel að merkja er af veikara
kyninu og nú mega áhorfendur fara
að geta í eyðurnar.
í þessari annars fagmannlega
unnu mynd standa flestir vel fyrir
sínu og er fátt við vinnubrögð að-
standenda að athuga, nema hvað
handritið hefði mátt vera mun beitt-
ara. í fyrsta lagi skortir allan frum-
leika á þessu mikið notaða kvik-
"BACK T0 THE FUTURE"....... MICHAEL
CHRISTOPHER LLOYD • LEA TH0MPS0N • CRISPIN G
GALE Mt ALAN SILVESTRI BOB GALE NEIL C/
STEVEN SPIELBERG KATHLEEN KENNEDY FRANK MAR
# b-'pi RflRPRT 7FMFrk'l<í □OlÆÆ'.'SSíaJ' A UNIVERSi
það vandamál að stríða að hann á
erfitt með að halda sér vakandi og
sötrar mikið kaffi til að sofna ekki
fram á stýrið. Hann tekur uppí
puttaling, en sá náungi er ekki allur
þar sem hann er séður þannig að nú
er Howell kominn með nýtt vanda-
mál. Það er að halda sér á lífi. The
Hitcher er fyrst og fremst spennu-
mynd með miklu blóði. Sem slík er
hún reyndar ágætlega heppnuð. í
fyrri hluta myndarinnar er spennan
stigvaxandi og þessi óvissa heldur
áhorfandanum við efnið. En þegar
líður tekur á myndina er eins og
Robert Harmon missi tökin á efninu
og myndin fjarar hægt og rólega út.
Plottið sem var til staðar í upphafi
myndarinnar er búið og í stað óviss-
unnar höfum við séð hvert stefnir.
Engu að síður er The Hitcher hin
fínasta afþreying. Rutger Hauer er í
essinu sínu sem hinn morðóði putta-
lingur og er alveg makalaust hvað
hann getur gert sig vondan með
augnaráðinu einu saman.
-J.S.
White Nights: ★
Bandarísk, árgerð 1985. Leikstjóri:
Taylor Hackford. Aðalhlutverk:
Mikail Baryshnikov, Gregory
Hines, Jerzy Skolimowski, Isabelle
Rosselini.
Mikail Baryshnikov er tvímæla-
laust einn besti ballettdansari í
heimi. Hann fæddist í Sovétríkjun-
um árið 1948 og byrjaði að læra
ballet 12 ára gamall hjá hinum
fræga ballettmeistara Alexander
Pushkin. 19 ára gamall dansaði
hann í fyrsta sinn við Kirov
ballettinn í Leningrad. Árið 1974
varð hann eftir í Kanada er hann var
staddur þar á sýningarferðalagi
með Bolshoj-ballettinum.
Baryshnikov var tilnefndur til
Óskarsverðlauna árið 1978, fyrir
hina ágætu niynd The Turning
Point, fyrir bestan leik í
aukahlutverki. Gregory Hines
dansaði sig frá fátækt til frægðar og
frama í Bandaríkjunum. Margir
muna e.t.v. eftir honum í mörgum
ógleymanlegum atriðum úr Cotton
Club. Einnig stendur hann þokka-
lega fyrir sínu í Running Scared.
Þessir tveir dansarar eru eina
augnayndi Bjartra nótta, þ.e.a.s.
þegar þeir eru að dansa. Samleikur
þeirra er hrikalegur og yfirleitt allur
leikur í myndinni ef pólski leikstjór-
inn Jerzy Skolimowski er undanskil-
inn í hlutverki vonda K.G.B. manns-
ins. Isabelle Rossellini ætti að halda
sig að fyrirsætustörfunum því ekki
hefur hún hæfileika móður sinnar
(dóttir Ingrid Bergman). White
Nights er ein af þeim mörgum
bandarískum kvikmyndum sem
gerðar hafa verið upp á síðkastið
með einhverjum heimskulegum,
ferlega barnalegum og fáránlegum
andsovéskum áróðri (Rocky,
Rambó), sem hlýtur að taka á taugar
þeirra sem hafa yfir heilbrigðri
skynsemi að ráða.
-J.S.
28 HELGARPÓSTURINN
leftir Júlíus Sigurjónsson og Þorfinn Ómarsson