Tíminn - 06.05.1919, Blaðsíða 9
TÍMINN
129
af fyrirtækinu, skuli kosta það að sinutn
hluta, svo og viðhald þess, alt miðað við
það gagn, sem hver landeigandi ber úr být-
um, og fer það eftir mati.
Fjárframlög þeirra, sem þannig verða
skyldaðir til að taka þátt í fyrirtæki&u, má
taka löglaki.
VI. Ixafli.
Cni holrœsi og óhreinkun vatns.
49. gr.
Heimilt er bæjarstjórn að leggja holræsi,
til þess að taka við skólpi í kaupstaðnum.
50. gr.
Bæjarstjórn er rjett að leggja gjald á lóð-
ir og hús i kaupstaðnum, til þess að standa
straum af holræsakostnaði. Skal gjaldið
miðað við lengd lóða meðfram götu, vegi
eða opnu svæði, þar sem holræsið er lagt,
en eigi má það nema árlega tneiru, en sem
svarar vöxtum af stofnlcostnaði og afborgun
áf láni til holræsalagningar, ef lán liefir
tekið verið, fyrningu og viðhaldi ræsa
þeirra, er lögð hafa verið á kostnað kaup-
staðarins.
Holræsagjald skal ákveða í reglugerð.
Gjaldið má taka lögtaki.
51. gr.
Bæjarstjórn leggur holræsi svo, að lóðar-
eigandi hver nái til þeirra í götu, vegi eða
á opnu svæði, er lóð hans liggur að, enda
verður enginn krafinn um holræsagjald fyr
en svo er.
Skylt er hvcrjum lóðareiganda, ef skólp
fellur til á lóð hans, að gera á sinn kostnað
holræsi, er flytji frá henni skólp alt út í
aöalræsi. Ef maður vanrækir að leggja ræs\
á hæfilegum fresti, er bæjarstjórn tiltekur,
skal hún láta vinna verkið á hans kostnað.
Nú stendur svo á, að sjerstaklega kostn-
aðarsamt er að leggja holræsi frá aðalræsi
yfir lóð manns og getur hann þá krafið sig
undanþeginn holræsagjaldi, ef hann getur
komið skólpi frá lóðinni á annan hátt, er
heilbrigðisnefud telur fulltryggan, enda verði
eigi metið, að það baki nágrönnum óþæg-
indi eða tjón. Að öðrum kosti skal leggja
holræsi uin lóð hans, enda skal bæjarsjóður
þá taka þátt í kostnaði við það eftir mati,
nema sarakomulag verði.
I
52. gr.
í reglugerð má kveða á um gerð og lagn-
ingu bæði aðalræsa og lóðarræsa, að regn-
vatni \skuli í þau veitt, um umsjón þeirra,
notkun og annað, er að meðferð þeirra lýtur.
53. gr.
Reglugerðir allar um holræsi og holræsa-
gjald, er bæjarstjórn semur, skulu sendar
ráðherra til staðfestingar. Fegar reglugerð
hefir fengið staðfestingu, er hún lögmæl
holræsareglugerð.
54. gr.
Heimilt er hreppsnefnd að leggja holræsi
um hrepp á kostnað hreppssjóðs. Áður en
fyrirtækið er afráðið, skal hreppsnefnd láta
verkfróðan mann rannsalca slaðhátlu og ef
tiltækilegt þykir að framkvæma verkið, gera
nákvæma frumdrætti að því, og áætlun um
stofnkostnað og árlegan rekstrarskostnað.
Kostnað af rannsókn þessari skal telja lil
stofnkostnaðar, ef fyrirtækið kemst í fram-
kvæmd, en greiðist ella úr hreppssjóði.
Ef sýslunefnd samþykkir holræsalagning-
inguna, sendir sýslumaður málið til ráð-
herra til samþyktar, er svo samþykkir það
með eða án skilyrða, eða neitar samþykkis
og færir rök fyrir.
2