Tíminn - 06.05.1919, Blaðsíða 11

Tíminn - 06.05.1919, Blaðsíða 11
TÍMINN 131 fylgir, cnda baii eigi önnur lögmæt skipun verið á gerö. 62. gr. Ef tveir eða fieiri eiga hver sinn hlnta fallvatns, eða pað er í sameign, en ekki semur um, hvernig nota skuli til orku- vinslu, getur ráðherra heimilað að sá, eða peir eigendur, sem eiga ’/a hluta vatnsorkunnar talinnar eftir valnsmagni og fallhæð, leysi til sin minni hlutann. Þetta er pó þvi skilyrði bundið, að hagnýting fall- vatnsins i einu lagi hafi í för með sjer verulega fjármunahagnað og, að ekki sje skerlur rjettur þriðja manns, er kann að hafa verið stofnaður áður en lausnarrjettur- inn kom til greina. Sá hluti fallvatns, sem innleystur er, skal metinn sem hluti af því öllu, en taka skal þó til greina virkjunarkostnað fallvatns- hlutans í samanburði við alt fallvatnið, Matsnefnd sker úr ágreiningi og ákveður bætur. 63. gr. Nú vill eigandi annars vatnsbakka gera stiflu í vatni til orkunýtingar og þarf til þess að nota land móteiganda, og skal hann þá bjóða honum fjelagsskap um bygg- ingn og nolkun vatnsins þannig, að hvor taki sinn hluta úr stíflutjörn. Matsnefnd ákveður, ef eigi semur, um framkvæmd verksins, svo og um skiftingu vatns og kostnaðar. Nú vill eigandi annars vatnsbakka eigi taka þátt í stíflugerð, og fær hinn leyfi eftir 74. gr. til að festa stiflu á landi hans, og má þá áskilja i leyfinu að stíflu skuli svo hagað, að móteigandi geti síðar hagnýtt sinn hluta vatnsins, án þess að breyta þurfi stíflu að mun, en kostnað sem leiðir af þessari sjer- stöku lilhögun, skal móteigandi greiða. Hagnýti hann sjer síðar sinn hluta vatnsins að nokkru eða öllu leyti, er hann skyldur að taka þátt i stofnkostnaði og viðhalds- kostnaði eftir mati, ef eigi semur. 64. gr. Eiganda vatnsbakka, sem gert hefur stiflu i vatni án þátttöku móteiganda, er heimilt að nota þann hluta úr vatni móteiganda, sem hann hagnýtir ekki. “Bæta skal tjón, er verða kann, eftir mati, ef eigi semur. 65. gr. » Ríkið getur tekið sjerhvert fallvatn, virkj- að eða óvirkjað, gegn fullu endurgjaldi eftir mati, til þess að vinna úr því orku í þarfir rikis eða almennings, og veitt orkunni eftir þörfum til neytslustaðanna. Nú vill hjeraðsstjórn eða bæjar koma upp vatnsorkuveri og raforkuveitu frá því, til þess að íullnægja, þörf almennings i hjeraði eða kaupstað, og getur þá ráð- herra heimilað hjeraðsstjórn eða bæjar- stjórn að taka fallvatn, virkjað eða óvirkjað, til notkunar, gegn fullu endurgjaldi eftir mati. 66. gr. Nú vill rikið koma upp vatnsorkuveri og raforkuveitu, og getur það þá tekið einka- rjett til að veita raforku og til að selja raf- orku og raforkutæki á svæði þvi, sem orku- taugarnar eiga að ná yfir. Vilji hjeraðsstjórn eða bæjar koma upp vatnsorkuveri og raforkuveitu, getur ráð- herra heimilað henni rjettindi þau, er rikið hefir eftir framansögðu, þó aðeins um til- tekið árabil. 67. gr. Nú er raforkuver starfandi á svæði, þar sem tekin er upp raforkuveita og einkasala samkvæmt 66. gr., og skulu þá eigendur þess, ef þeir óska að halda starirækslunni áfram, innan þriggja mánaða skýra ráðherra frá þvi og ákveður hann staðartakmörk

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.