Tíminn - 06.05.1919, Blaðsíða 44

Tíminn - 06.05.1919, Blaðsíða 44
164 TtMINN aö sjerleyflshafl geti notað önnur vötn en leyfð eru, og raforkuvinslan verði meiri en við var búist. Fallvötn vor eru misjafnlega fallin til virkjunar og sjerleyfi mundi eðli- lega verða buudið við fallvötn, sem rikið liefði cigi sjálft þörf fyrir. Gera má einnig ráð fyrir að sjerleyfi verði veitt með hlið- sjón af því, hvort önnur samskonar fyrir- tæki eru í grend, hvort þau eru í öðrum landshlutum eða ekki, o. s. frv. Umsækj- andi gæti átt nýtileg fallvötn viða á landinu og virkjað efíir geðþekkni livert scm væri, ef eigi væri fyrirtækið staðbundið með leyfinu. Áætlun um vatnsorkuna gctur einnig i uppliafi verið óábyggileg og er þvi varnagli sleginn með því að tiltaka há- mark vinslunnar. Um 4. Timaákvörðunin hjer er miðuð við stórfeld fyrirtæki og einsætt að frestir fyrir » þau minni mega styttri vera. Ákvæðin miða sjerslaklcga að þvi að tálma braski með vatnsrjettindi og fossa, sem ella yrði auð- veldara, er leyfið væri fengið, ef tímaá- kvörðun fylgdi eigi til virkjunar. Einnig miða þau til þess að tryggja þaun þjöðfje- lagslega hagnað, sem fyrirtækið á að veita, skipa atvinnubrögðum verkamanna með hliðsjón af liðsþörf annara atvinnuvega o. s. frv. Stjórnarráðið getur framlengt þessa fresti, ef sjerstakar ástæður eru fyrir hendi og sjáanlcgt er, að virkunin yrði annars ekki fullgerð í tæka tíð, en slík framlengingarleyfi falla eigi undir sjerleyfisákvæðin í upphafi. Langvárandi stöðvanir á rekstri fyrirtæk- isins hafa i för með sjer endurhvarf rjett- inda og virkja til ríkisins, ef ekki eru óvið- ráðanlegar ástæður fyrir hendi. Um 5. Af því að ekki er víst, að ætíð sje kostur á að fá nægilegan íslenskan vinnu- kraft nje íslenska sjerfræðinga þótti ekki fært að setja það skilyrði, að ckki mætti ráða útlendinga til virkjunar cða rcksturs á fyrirtækjunum. Ætlast er til að stjórnar- ráðið setji nánari reglur og skilyrði fyrir þessu eftir því sem við á i hvert sinn. Um 6. Greiðsla kaupgjalds í peningum er samkvæmt eldri lögum og venju. Öðru máli gegnir um arð leyfishafa af verslun við verkamenn. Slík verslun hefir oft verið verið atvinnurekendum hjer hin mesta fje- þúfa, svo sem útgerðarmönnum, síldveið- endum o. fl. En sanngjarnlegt er að hagn* aður af þvi líkri verslun lendi hjá þeim, sem hann gefa, enda löngu tekin upp hjá grannþjóðunum þesskonar skilyrði fyrir stóriðjuver. Að sjálfsögðu tekur þetta skilyrði eigi til þess arðs, sem Icyfishafi hefir af verslun við aðra en verkamenn og fjölskyldur þeirra. Um 7. Leyfishafi skal sjálfur kosta til þess er i þessum lið getur. Um 8. Ágóðalaus þóknun er hjer talin leiga sú, sem svarar venjulegum vöxtum, viðhaldi og fyrningu. Skj'lda Ieyfishafa til að leggja til lóð undir fundarhús leiðir af sjer viðurkenningu hans á samvinnu og fjelagsskap verkamanna, eins og lika áskiln- aður um úrskurð stjórnarráðsins á ágrein- ingi um bústaði verkamanna og önnur fríðindi þeim til lianda tryggir þá fyrir ofríki af hendi leyfishafa, ef haun t. d. vildi beita uppsögn á húsnæði til þess að bæla niður samtök þeirra. Um 9. Með viðhaldi vega er átt við sjer- stakt aukagjald, cr sljórnarráðið ákveður fyrir þá almenningsvegi eða mannvirki, sem leyfishafi notar öðrum frekar og því ganga meira úr sjer. Heimildir til vega- gerða, símalagninga og byggingu hafnar- mannvirkja leyfist að sjálfsögðu þvi að eins, að nauösyn krefji fyrir sjerleyfishafa, og rikið telji eigi ástæðu til að taka þau mann- virki að sjer, eða þar sem það skapar eigi hættulcga samkepni við ríkisfyrirtæki. Öll nánari fyrirmæli um meðferð og notkun þessara mannvirkja, svo sem bryggjugjald,

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.