Tíminn - 06.05.1919, Blaðsíða 45

Tíminn - 06.05.1919, Blaðsíða 45
TÍMINN 105 el' svo ber undir, ílutningataxta o. þv. 1. verður að ætla landsstjórninni að setja í hvert sinn eftir því sem við á. Um 10. Eðlilegast er, að trygging þessi sje iunifalin í stofnun sjóðs, sem standi undir umsjón hlutaðeigandi hjeraðs. Um 11. Ekki er hjer tekið fram, hve langt undir venjulegu söluverði »fob« út- flutningshöfn skuli láta afurðirnar af hendi. Petta verður að fara cftir ákvörðun sttórn- arráðsins í livert sinn. En því að eins gctur þetta skilyrði orðið landbúnaði og öðrum atvinnuvegum að liði, að verðmun- ur sje verulegúr og mundi mega ætla hann ÍO—15°/o. Um 12. Skilyrðið er sett til að tryggja almenningi sanngjarulegl verð á raforku, einkum til ljósa og annara heimilisþarfa, sem og vegna rikisins, til samgangna og annars. Alls eru áskildir *’/íoo orkunnar og eru eigi líkur tii, ef mörg og stór væru orkuver, að þörfin krefði svo mikið, síst þá 5 hundraðshluta, sem ríkinu eru áskild- ir, en bæði rnundi rikið, þegar svo stæði á, afhenda bjeruðum eða bæjum til not- kunar það, sem umfram væri þarfir þess, og svo má ætla, að krafan um orkureiðslu yrði ekki ætið miðuð við hámarkið. Lands- stjórninni er ætlað að ákveða skiftingu raf- unnar milli hjeraða þeirra, er fyrirtækið snertir. Með orku þeirri, sem vinst er átt við meðaltal orku þeirrar, sem unnin er frá ári til árs eftir virkjun þeirri, sem í hvert skifti hefir verið gerð. Hægt er þvi þegar aö ákveða orkumagnið, og breytist það að eíns ef virkjun breytist, Til vinslukostn- aðar má telja verkalaun, skalta, ábyrgðar- gjöld, viðhald, fyrningu o. s. frv., auk vaxt- anna. Ef stofnkostnaður væri 200 kr. á hestaflið og framleiðslukostnaAur 5°/o af stofnkostn- aði, mundi hámarksverðið á orkunni reikn- ast þannig: Framleiðslukostnaður -j- 6°/o vöxtum . . . . . = kr. 22,00 Ágóði 10—20°/o af þvi = — 2,20 — 4,40 Á hestafl kr. 24,20 — 26,40 Eftirlitsmaður stjórnarinnar gætir þess, að vinslukostnaður sje rjett talinn fram á hverjum tíma og verði rnikil breyting á kostnaðinum, mun þvi- verða hægt að breyta hámarksverðinu. Ætlast er lil að orkuþegi, hvort heldur er rikið eða hjerað, beri kostnað, sem af því leiðir að taka orkuna úr hásþentri leiðslu, ef þess þarf, og breyta'henni i not- hæfa orku. Að sjálfsögðu er gcrt ráð fyrir, aö sjer- leyfishafa sje tilkynt með nægilegum fyrir- vara þegar óskað er eflir orku. Um 13. Haga má sjerleyfisgjaldinu eins og hentast þykir innan takmarka þeirra, sem í þessum lið getur, t. d. haft mismun- andi gjald eftir því hve mikil orka er not- uð og látiö gjaldið vera stígandi eða fall- andi. Gjaldið er miðað við hestorkur á ási hveríihjóls, en þær reiknast á sama hátt og segir í aths. um 12, lið. Ákvæði um hestorkufjöldann og um það, hvernig greiðslu skuli háttað, má endur- skoða 5. hvert ár. Sjálft sjerleyfisgjaldið á hestafl er aftur á móti óbreytilegt nema öðruvisi semji. Gjaldhæðin á hverju fyrirtæki verður að miðast við stærð þess og aðstöðu, hagræðis af þvi fyrir almenning, hvort það greiðir vatnsmiðlunargjald eða ekki o. s. frv. Al- gerða undanþágu frá gjaldi er þó eigi liægt að veita, nema fyrir orkuver, sem eru eign innlendra hjeraða eða bæja, að því er kemur- til orku til heimilis og búsþarfa. Ráðherra ákveður hver hjeruð fái sjer- leyfísgjald og hve mikið hvert tái. Um Vi, Með ákvæðum þessa liðar er gert ráð íyrir, að Iandeigendur þeir, sem

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.