Morgunblaðið - 18.12.1982, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 18.12.1982, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1982 5 STTORMSVEIPUR í STJÓRNMÁLUM eftir Guðmund Sæmundson. Það var meira en gustur sem fór um íslensk stjórnmál í bæjar- og sveitarstjórnarkosning- unum 1982. í tveimur af stærstu bæjarfélög- um landsins, Reykjavík og Akureyri, komu fram kvennaframboð og áhrifum þeirra verð- ur helst líkt við stormsveip. í þriðja bæjar- félaginu, Selfossi, var einnig um hálfgert kvennaframboð að ræða STORMSVEIPUR í STJORNMÁLIM er nánast fréttaskýringabók á kvennaframboð- inu og kvennabaráttunni, innlegg í þá sögu sem er að gerast og bókin sviptir hulu af mörgu, eins og t.d. því hvers vegna jarðvegur fyrir slíkt framboð var svo frjór sem raun ber vitni. Það skeði margt á bak við tjöldin og sumt af því kemur nú í fyrsta skipti fram í dagsljósið. HM Á SPÁNI 1982 og saga heimsmeistara- keppninnar í knattspyrnu eftir Sigmund 0. Steinarsson, höfund metsölubókarinnar um Ásgeir Sigurvinsson. Formála ritar Bryan Robson, dýrasti knattspyrnumaður Englands. í þessari bók eru fróðleiksmolar um keppn- ina allt frá Uruguay 1930 til Spánar 1982, kynning á mörgum þestu knattspyrnumönn- um heims og sagt frá þátttöku Islands í und- ankeppni HM. I þessari bók má lesa um allt það merki- legasta sem skeð hefur í HM frá byrjun, en það hefur oft verið stutt milli hláturs og grát- urs í keppninni um hina eftirsóttu HM-styttu. Kvennaframboðin voru eins og stormsveipur í íslenskum stjómmálum, og þessar fjórar frábæru bœkur eiga áreiðanlega eftir að fara einsog stormsveiptir (ekki endilega hvitur)-*- yfir búðaborðin og lenda á þúsundum íslenskra heimila fyrír þessi jól. KVISTIR f LÍFSTRÉNU, eftir Árna Johnsen blaðamann. 20 samtalsþættir við fólk sem kemur til dyranna eins og það er klætt. Árni Johnsen er löngu landsþekktur fyrir skemmtileg og hispurslaus viðtöl sín. Hann hefur einstakt lag á að nálgast fólk með þeim hætti sem við á hverju sinni og skila efninu þannig að viðmælandinn nýtur sín til fulls. Mörg viðtalanna eru ný af nálinni og má þar nefna viðtöl við stjórnmálagarpana Hannibal Valdimarsson og Björn Pálsson á Löngumýri sem fara á kostum eins og þeirra var von og vísa. Aðrir viðmælendur Árna eru: síra Valgeir Helgason, Gísli á Uppsölum, Jón í Syðri- Neslöndum, Aðalsteinn Guðjónsson (Alli kött- ur), Sigurður Davíðsson á Hvammstanga, Guðfinna Breiðfjörð (Minna), Einar Gíslason í Fíladelfíu, Oddgeir Karlsson, Sigurður í Kilju- holti, Jón Nilla, Helgi S. Eyjólfsson, Geiri í Sjóbúðinni, Lárus í Grímstungu, Gústi guðs- maður, Jóhann Níelsson á Hólmavík, Snorri í Húsasmiðjunni, Jón í Sjólyst og Jens í Munað- arnesi * ALMRBR EYJAR GEGNIJM ALDIRNAR. Frásagnir af atburðum og mannlífi í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri, eftir Guðlaug Gíslason fyrrum alþingismann. Mikill fjöldi ljósmynda er í bókinni, m.a. myndir af fjölmörgum Vest- mannaeyjabátum frá fyrri tíð. Eru þær úr bátamyndasafni Jóns Björnssonar. Guðlaugur hefur í bók sinni dregið saman ýmislegt frásagnarvert úr sögu Vestmanna- eyja frá gamalli tíð og nýrri og sett það upp í árbókarformi. Hann segir m.a. frá Tyrkjarán- inu og afleiðingum þess, hann rekur viðskipti við konung og krúnu, segir frá sérstæðum „einkaher" sem komið var á í Eyjum, birtir lækna-, sýslumanna-, presta- og alþing- ismannatal Eyjanna og svo er auðvitað stór kafli um sjósókn Eyjamanna og baráttu þeirra við hafið. GCeDiCajjóC med gódum bókuml ÖRN&ÖRLYCUR Síðumúla 11, sími 84866

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.