Morgunblaðið - 09.03.1988, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 09.03.1988, Blaðsíða 23
23 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MARZ 1988 bemskuárum Guðrúnar er hún missti föður sinn árið 1934. Þá fórst Sverrir bróðir hennar árið 1941 með ms. Heklu. Þessum þungbæm áföllum tóku þær mæðgur með reisn. Ágústa giftist síðar Ludvig C. Magnússyni, sem gekk Guðrúnu í föðurstað og studdi hana til náms og frama. Um söngferil hennar munu sjálfsagt ýmsir fjalla af meiri kunnugleika en ég, en hún var nú samt á sínum tíma sú besta. Þegar Guðrún hélt til náms og bjó síðan erlendis um skeið, skildu leiðir okkar um tíma, en vinátta okkar hélst þó alla tíð. Guðrún var hreinskilin og hispurslaus, talaði aldrei gegn sannfæringu sinni og smjaður var henni mjög ógeðfellt. Hún sagði sitt álit umbúðalaust við hvern sem var, og kom það stundum óþægilega við þá sem þekktu hana ekki vel, en var aldrei illa meint. Hún var einfaldlega alltaf heil og sönn á hveiju sem gekk. Þessa eig- inleika mat ég hvað mest í hennar fari. Hún var í eðli sínu lífsglöð og var jafnan hrókur alls fagnaðar í vinahópi. Hún gat oft skemmt okk- ur vinkonum sínum heilu kvöldin bara með því að vera hún sjálf. Þessari lífsgleði og kímni tapaði hún aldrei, jafnvel þótt sjúkdómar yllu henni þjáningum. Þann 24. febrúar síðastliðinn hélt Guðrún hátíðlegan 64. af- mælisdag sinn ásamt nokkrum góð- um vinum. Hún sló því þá fram, að líklegast yrðu þeir ekki fleiri. Hún reyndist sannspá, því að 4 dögum seinna var hún látin. Eg veit að hún myndi vilja að ég kæmi á framfæri þakklæti til þeirra sem reyndust henni svo vel, þegar kraft- ar hennar voru þrotnir. Vil ég þar nefna vini hennar í Söngskólanum, en þar kenndi hún síðustu árin sem hún starfaði. Ennfremur nágranna hennar, hjónin Andreu Oddsteins- dóttur og Halldór Þorsteinsson, sem buðu hana svo elskulega velkomna, þegar hún flutti í Miðstræti og báru umhyggju fyrir henni til síðasta dags. Eg mun sakna hennar fyrir margra hluta sakir og minnist með þakklæti okkar góðu vináttu. Syni hennar, Ludvig Kára, votta ég sam- úð mína og óska honum alls velfarn- aðar í framtíðinni. Unnur Þórðardóttir Kveðja frá Söngskólanum í Reykjavík Undarlegt hve lífssviðið getur breyst í einni svipan. Skóhljóð þagn- ar og það er allt annað eftir. Þetta reyndum við vinir og samstarfsfólk Guðrúnar Á. Símonar er við fréttum lát hennar. Aldrei framar mun hún fasmikil ganga hér um stofur; aldr- ei framar munum við njóta starfs- krafta hennar við kennslu þeirra er hingað sækja; aldrei framar heyra uppörvun hennar, þá þungur gerist róður; aldrei framar heyra hæðnishlátur hennar, þá við teljum okkur við ókleifa hamra; aldrei framar njóta listar barka hennar, sem svo oft lyfti okkur á gleðivæng í hæðir. Og þó, þó vitum við, að þetta er ekki rétt. Sá er listar henn- ar naut, sá er eignaðist hana að samheija og vini, verðúr aldrei sam- ur eftir, Guðrún Á. fylgir honum í minningu meðan lifir. Hversu mörg- um okkar rétti hún ekki gull, sem aldrei munu glatast? Allt frá því hún hóf upp raust sína og söng svo að þjóðin, já, heilar álfur, urðu að eyrum, hefur hún verið okkur mörg- um mönun til átaka, hvatning til þess að leggja okkur öll fram, gera meir, gera betur, ryðja þær brautir, að íslenskir söngvarar geti helgað sig söngvum sínum, þurfi ekki að lifa á snöpum. Skyldi það ekki einsdæmi, að söngvari veki slíka hrifni í bijóstum þeirra er á hlýða, að hann sé gerð- ur að heiðursborgara að tónleikum loknum, eins og skeði með Guðrúnu Á. 5. nóvember 1957 í Winnipeg- borg? Ætla hefði mátt, að slíkur heiður stigi listamanni til höfuðs. En ekki Guðrúnu Á., hrokinn var henni víðsfjarri. Víst vissi hún af mikilleik listar sinnar, en hversu glöð var hún ekki, er aðrir gerðu vel, gladdist með þeim og uppörv- aði, eða hve augu hennar ljómuðu, er hún fann hjá æskunni gullrödd, til þess að fægja og slípa. Við erum þakklát lífinu fyrir að eignast hana að vini og samhetja, og Söngskólinn í Reykjavík telur sér heiður að hafa átt meðal kenn- ara sinna og burðarása slíka lista- manneskju. Syni hennar sendum við samúðarkveðjur, er við drúpum höfði í þökk til mikilhæfrar konu, listasöngvara. MIÐSTÓÐVARHITARAR og NEYSLUVATNSHITARAR Mest seldu FORHITARAR landsins ÁVALLT TIL Á LAGER. SlMi (91) 20680 VERSIUN: ARMÚIA 23. Si^r eðaheílar samstæður Leitið upplýsinga UMBOÐS OG HEILDVERSLUN B ÍL DSHÖFDA 16 S1MI 672444 Eitt stærsta vandamál nútímans er hraði og streita B-vítamín eru nauðsynleg til að viðhalda sterkum og góðum taugum, auk þess að vera undirstaða ótal annara þátta líkamsstarfseminnar. B-SÚPER inniheldur eftirfarandi B-vítamín; I BlÓTÍN Nauðsynlegt fyrir efnaskipti prótlna og fitu, einnig mikilvaegt fyrir góðan hárvöxt. B1 TIAMIN Nauðsynlegt fyrir efnaskipti kolvetna, starfsemi taugakerfis, hjarta- og meltingar- kerfis. B2 RIBOFLAVfN Nauðsynlegt fyrir frumuöndun, efna- skipti kolvetna og prótlna, þroska, sjón, starfsemi húðar og slímhimna. B3 NIKOTINAMlÐ Nauðsynlegt fyrir efnaskipti kolvetna, fitu og prótlna, starf- semi taugakerfis, húðar og slímhimna. Einnig mikilvaegt fyrir blóðmyndun. B5 PANTÓÞENSÝRA INÓSÍTÓL Hluti af lesitíni sem hindrar að kólesteról safnist fyrir I slagæð- um og óeðlilega mikið af fitu safnist fyrir I lifur. Nauðsynlegt fyrir hárvöxt, einnig mikil- vægt næringarefni fyrir heilafrumur. PABA (para-amínó- benzósýra) Nauðsynlegt fyrir vöxt, einnig til að viðhalda heilbrigði húðar. Örvar efnaskipti og alla lífsnauðsynlega starfsemi. Nauðsynleg fyrir efnaskipti kolvetna, fitu og prótína, starf- semi húðar og slím- himna, einnig lifrar og nýrnahettu barkar. Mikilvægt fyrir hárvöxt, myndun blóðrauða og vöxt og þróun mið- taugakerfis. B6 PÝRIDOXÍN Nauðsynlegt fyrir efnaskipti prótína og fitu, starfsemi lifrar, taugakerfis, húðar og fyrir blóðmyndun. KÓLÍN Hluti af lesitini. Nauð- synlegt fyrir efnaskipti fitu, hjálpar til við að melta, taka upp og flytja um blóðið fitu og fituleysanlegu vítam- ínin A, D, E og K. Éh Gilsuhúsið - Hollusta í hverri hillu - FÓLlNSÝRA Nauðsynleg fyrir myndun blóðrauða, efnaskipti prótina, bataferli og heilbrigði húðar og hárs. B12 KÓBALMlN Nauðsynlegt fyrir blóðmyndun, starfsemi miðtaugakerfis og fæðunám I meltingar- vegi. Hjá okkur færðu margs konar hollustumatvæli, krydd og bætiefni. Fáðu faglegar ráðleggingar hjá starfsfólki okkar. Heilsuhúsið - SKÓLAVÖRÐUSTÍG 1 A S 22966 - KRINGLUNNI S 689266 30 töflur (1 mán. skammtur) kr. 176.- 120 töflur (4 mán. skammtur) kr. 564.- Fæst í Heilsuhúsinu, apótekum, heilsubúöum og heilsuhillum matvöruverslana.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.