Morgunblaðið - 13.06.1992, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JUNI1992
NÚER
ÞREFALDUR
1. VINNINGUR
Skipa á hóp skipsljóra sem
ráðgjafa um hámarksafla
eftirÁrna Johnsen
Fiskifræðin sem vísindagrein
býr við marga óvissuþætti, enda
er hún ung grein og þótt vísinda-
menn hafi getað skotið gervihnött-
um til annarra stjarna með aðeins
þúsund metra fráviki þá eru djúp
úthafanna og lífíð þar þröskuldur
dyra sem vísindamenn hafa í raun
aðeins getað gægst inn um.
•Það er erfítt að meta hvort fisk-
veiðistjómun á íslandi hefur verið
jákvæð undanfarin 8 ár, við vitum
hvað við höfum haft út úr henni,
en við vitum ekki hvað við hefðum
haft ef einhver önnur leið hefði
verið valin. Óvissuþættirnir eru
miklir og spurningarnar stórar eft-
ir því. Það er full ástæða til þess
að taka starf vísindamannanna
alvarlega og það er vel að núver-
andi sjávarútvegsráðherra leggur
mikla áherslu á auknar rannsóknir
í hafínu kringum ísland, það var
kominn tími til. Það blasir hins
vegar við okkur sú staðreynd að
leyfður afli hefur farið síminnkandi
um árabil, en um leið hafa rekstr-
arkostnaður og fjárfesting í sjávar-
útvegi farið hækkandi. Allt ber því
að sama brunni, það þarf hærra
verð fyrir hvert kíló sem á land
berst, eða aukinn afl.
Það hefur lengi verið skoðun
mín að sérfræðingaveldið á Islandi
hafí gengið of langt bæði vegna
þess hve dýrt það er, en ekki síst
vegna þess hve margt er þar ein-
hæft og oft byggt á líkönum án
þess að venjulegt brjóstvit og
reynsla komi við sögu í úrlausnum,
en reynsla er auðvitað dýrmætasta
fjárfestingin í öllum þáttum at-
vinnulífsins.
í fyrravetur varð sérstakur trún-
aðarbrestur milli sjómanna og
fiskifræðinga hvað varðar mat á
loðnumagni við landið, því sjómenn
komust í tæri við loðnugöngur sem
fiskifræðingar sáu ekki og þar með
eru þær ekki til á kortum Hafrann-
sóknastofnunar, sem lögð eru til
grundvallar á mati og niðurstöðu
vísindamanna varðandi loðnuveið-
ar.
Um árabil hef ég haldið því fram
að það sé ekki aðeins brýn nauðsyn
að stórefla verkmenntakennslu á
íslandi, heldur sækja einnig í rík-
ari mæli til almennrar reynslu jafn-
hliða sérfræði þegar smíðuð eru lög
eða reglur fyrir þjóðfélag okkar.
Ég tel til dæmis að við ákvörðun
á hámarksafla á íslandsmiðum eigi
að virkja reynslu skipstjóranna
meira en gert hefur verið. Veiði-
menn hafa önnur sjónarmið en
fiskifræðingarnir, en þau gefa líka
skólun. Þegar þrengir að er enn
meiri ástæða til þess að leysa vand-
amál á sem ásættanlegastan hátt
fyrir fleta landsmenn og þó ekki
væri nema þess vegna er fyllsta
ástæða til þess að dreifa ábyrgð-
inni þgar safnað er saman upplýs-
ingum til þess að taka afdrifaríkar
ákvarðanir.
Það er að mínu mati nauðsyn-
legt og hyggilegt að sjávarútvegs-
ráðherra skipi 20-30 manna vinnu-
hóp reyndra skipstjóra frá öllum
landshlutum og hlutverk þeirra
væri að tjá sig um stöðu og stefnu
í fiskveiðum Islendinga, setja fram
gagnrýni, koma með tillögur til
Árni Johnsen
„Það er að mínu mati
nauðsynlegt og hyggi-
legt að sjávarútvegs-
ráðherra skipi 20-30
manna vinnuhóp
reyndra skipstjóra frá
öllum landshlutum og
hlutverk þeirra væri að
tjá sig um stöðu og
stefnu í fiskveiðum ís-
lendinga, selja fram
gagnrýni, koma með til-
lögur til úrbóta og svo
framvegis...“
úrbóta og svo framvegis og til að
mynda gæti meginúrvinnsla úr
þessum hópi verið í höndum 5
manna nefndar innan hópsins. Með
þessu móti kæmist beint samband
á milli ráðuneytis, sjómanna og
fískifræðinga og er nú mál að eitt-
hvað betra komi til í þeim efnum
en hið mislukkaða togararall eða
veiðieftirlit sem er meira og minna
sýndarmennska. Það væri síðan
sjávarútvegsráðherra að meta
niðurstöðurnar og hvort niðurstöð-
ur reyndu fískimannanna myndu
vigta 20, 30, 40 eða 50% á við
fískifræðingana skal ég ekkert
segja um, en almenn skynsemi
mælir með þessari leið og lengst
höfum við komist á henni hingað
til í þessu landi. Þegar fjöregg
þjóðarinnar er að verða eins konar
örverpi verða menn að bijóta odd
af olæti sínu, vísindin og reynslan
í baráttunni fyrir daglega brauðinu
verða að haldast í hendur og leita
sameiginlega lausnar.
Höfundur er 3. þingmaður
Suðurlandskjördæmis fyrir
Sjálfstæðisflokkinn.
-----♦ ♦ ♦
Biskup íslands
við vígslu
Kaupmanna-
hafnarbiskups
NÆSTKOMANDI sunnudag, 14.
júní verður Erik Norman Svendsen
prófastur vígður til embættis Kaup-
mannahafnarbiskups. Hann tekur
við embætti af Ole Bertelsen, sem
lætur af störfum vegna aldurs.
Biskup íslands, herra Ólafur
Skúlason, tekur þátt í vígsluathöfn-
inni í Frúarkirkju í Kaupmanna-
höfn, ásamt höfuðbiskupum Norð-
urlandanna, og biskupar víðar að
úr Evrópu verða viðstaddir.
Velkomin í Veiðimanninn
í yfir fimmtíu ár hefur verslunin Veiðimaðurinn þjónað
sportveiðimönnum og öðrum unnendum útiveru.
Hjá okkuf fæst mikið úrval veiðistanga og hjóla í fjölda
verðflokka, ásamt íyrirtaks veiðifatnaði á hagstæðu verði.
Við seljum aðeins viðurkennd vörumerki.
Opið mánud. - fimmtud.kl. 09 - 19, föstud.kl. 09 - 20,
laugard. kl.lO - 16, sunnud. Ifá kl.ll - 16.
Hafnarstræti 5 • Símar 1 67 60 og 1 48 00