Morgunblaðið - 13.06.1992, Blaðsíða 18
r
39.200 kr*
... OG E 1(1(1 SPILLIR VERÐIÐ GLEÐINNI!
PARKC3RT PIP
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JUNI 1992
Cala d'Or á Mallorca og Benidorm á „Hvítu strönd“ Spánar eru tveir af alvinsaelustu
sólskinsstöðum íslendinga og margir eiga erfitt með að gera upp á milli þeirra. Til að létta
þeim lífið bjóðum við nú 17 daga ferð 22. júní þar sem tækifæri gefst til að njóta beggja
staðanna á hreint ótrúlegu verði!
Við dveljum fyrst í 10 daga á Cala d'Or þar sem við njótum alls þess sem þessi frábæra
ferðamannaparadís hefur upp á að bjóða. Að þeim tíma liönum hleypum við tilbreytingu í
sólarlíf okkar og bregðum okkur til Benidorm þar sem við dveljum í eina viku.
*2 fullorðnir og 2 börn saman í íbúð: 39.200 kr. á mann.
2 fullorðnir saman í íbúð: 55.700 kr. á mann.
Við þetta verð bætast flugvallargjöld og skattar 3.450 kr. fyrir fullorðna og 2.225 kr. fyrir börn.
í einni 17 dagaferð!
- 62 24 60
Mallorca og Benidorm
RÉTT VERÐ -
SamviiwiiferúirLandsj/n
Reykjavík: Austurstræti 12 • S. 91 - 691010 • Innanlandsferðir S. 91 - 69 10 70
Símbréf 91 - 2 77 96 / 69 10 95 • Telex 2241 • Hótel Sögu við Hagatorg • S. 91 - 62 22 77 • Sfmbréf 91
Akureyri: Skipagötu 14 • S. 96 - 27 200 • Slmbréf 96 - 2 40 87
Reykjavíkurhöfn:
Miðbakki og Austur-
bakki færðir fram
í AUSTURHÖFNINNI í Reykjavík eru hafnar framkvæmdir við
fyrsta áfanga við Austurbakka og Miðbakka en þar verður hafn-
arbakkinn fluttur fram og höfnin dýpkuð. Áætlaður kostnaður er
um 300 milljónir, að sögn Jóns Þorvaldssonar forstöðumanns tækni-
deildar.
arframkvæmdir
lagningar Geirsgötu
„Þetta er stórt verkefni sem er
að fara í gang þessa daganna," sagði
Jón. Með því að færa gömlu hafnar-
bakkanna fram skapast landrými
fyrir Geirsgötu um leið og gömul
mannvirki eru endurnýjuð. „Nýju
bakkamir eru miðaðir við að þar
geti lagst að stærri skip til dæmis
frystitogarar en þeir rista um og
yfir sjö metra,“ sagði Jón. „Stærstu
erlendu skipin sem hingað hafa kom-
ið eru grænlenskir frystitogarar,
sem rista um átta metra. Við reikn-
um með að í framtíðinni muni þeir
sækja í auknum mæli inn í Austúr-
Rofnina en þeir hafa nær eingöngu
verið í Sundahöfn. Við verðum með
átta metra dýpi við Miðbakkann og
þangað verður hægt að taka mikið
af þeim skemmtiferðaskipum sem
koma í Sundahöfn þegar innsiglingin
og Austurhöfnin hefur verið dýpkuð
en það er framtíðarverkefni. Arlega
koma milli 25 til 30 skemmtiferða-
skip til landsins og ætti um helming-
ur þeirra að geta lagst að við Mið-
bakkann þegar hann verður til-
búinn.“
Gert er ráð fyrir að framkvæmd-
um við 1. áfanga verði lokið í des-
Fer inn á lang
flest
heimili landsins!
ember 1992 og að þá taki 2. áfangi
við en honum á að ljúka um mitt
sumar 1993. Mun Reykjavíkurhöfn
standa að framkvæmdum við hafn-
arbakkanna og er kostnaður við
þann hluta áætlaður um 300 millj-
ónir. Lagning götunnar er á vegum
gatnamálastjóra og á þeirri fram-
kvæmd að vera lokið haustið 1993.
Míro setur
aðsóknarmet
SÝNINGAR Kjarvalsstaða á
verkum Míró og Kjarvals á Lista-
hátíð, sem staðið hafa yfir í tvær
vikur, hafa verið afar fjölsóttar,
jafnvel svo að stefnir í nýtt að-
sóknarmet. Eldra metið var sett
á sýningu á verkum Errós í sept-
ember 1989.
• Á meðan á sýningunni á verkum
Míró stendur hafa Kjarvalsstaðir
breytt opnunartíma sínum þannig,
að opið er alla daga vikunnar frá
kl. 10-19 nema á miðvikudögum,
þá er opið frá kl. 10-22. Safnaleið-
sögn fyrir almenning er um sýning-
arnar á sunnudögum kl. 16 og á
miðvikudagskvöldum kl. 20.
(Úr fréttatilkynningu)
Eureka-samstarfið:
Arteljari reyndur í þremur laxveiðiám
VAKI-fiskeldiskerfi hf., nýlegt íslenskt fyrirtæki, hefur þróað í sam-
starfi við dótturfyrirtæki Unilever, rafeindabúnað til að mæla stærð,
þunga, fjölda eldisfiska í kvíum. Ennfremur nýtist þessi tækni til
mælinga í veiðám og verður „árteljari" reyndur í þrem íslenskum ám
í sumar.
Menntamálaráðherra, Ólafur G.
Einarsson og Vilhjálmur Lúðvíksson
formaður Rannsóknarráðs ríkisins
kynntu fjölmiðlum hið evrópska
Eureka-tæknisamstarf í vikunni.
Fjölmiðlamönnum var gerð grein
fyrir ýmsum tækniverkefnum sem
íslensk fyrirtæki vinna að undir
ægishjálmi þessarar áætiunar.
Hermann Kristjánsson fram-
kvæmdastjóri Vaka hf. kynnti
tæknibúnað sem fyrirtækið hefur
unnið að. Það er fiskeldisfyrirtækj-
um mikilvægt að vita fjölda og stærð
þeirra fiska sem eru í eldi. Ofmat
leiðir til þess að fiskunum er gefið
meira fóður en þeir torga. Óétið fóð-
ur er tapað fé og mengunarvaldur.
Vanmat leiðir hins vegar til vaneldis
og rýrari afurða.
Fýrirtækið hefur m.a. sérhæft sig
íframleiðslu á fiskteljurum. í tengsl-
um við uppsetningu á teljurnum fyr-
ir skorska laxeldisfyrirtækið Marine
harvest sem er dótturfyrirtæki al-
þjóðafyrirtækisins Unilever varð
sammæli að þróa tæknibúnað til að
ákvarða lífmassa, þ.e. heildarþunga
í eldiskvíum neðan sjávar- eða vatns-
borðs sem nákvæmast.
Hugmyndin var sú að þróa nokk-
urs konar ramma sem fiskurinn synti
í gegnum og væri um leið mældur.
Niðurstöðurnar yrðu síðar sendar til
tölvu og unnið úr þeim upplýsingum
og viðeigandi ályktanir dregnar.
Hermann sagði fyrstu eintökin af
þessu nýja tæki „kvíómass" yrðu
afhent kaupendum í Skotlandi í sept-
ember í haust. Hann vænti þess á
10-15 stykki yrðu seld í ár. Og
væri kaupverðið 1.300.000 kr, hvert
eintak.
„Kvíómass" hefur getið af sér
hliðarafurð; „árteljara". Rammann
tölvutenga má setja við laxveiðiár
og fylgjast með ástandi þeirra fiska
sem þar fara í gegn. Hvenær þeir
synda þar um, og hve þungir þeir
væru. Það hefði komið fram gífur-
legur áhugi á þessu tæki erlendis.
Nú væri gerðar sívaxandi kröfur
m.a. til rafveitna um sannanir fyrir
því að stíflur og laxastigar yllu ekki
neikvæðum áhrifum á lífríki ánna.
Árteljarinn verður reyndur í þrem
ám á íslandi í sumar, Elliðaánum, í
Blöndu og við Búðafoss í þjórsá.
Þetta væri að flestu leyti öðruvísi
markaður og aðstæður. Sala á ártelj-
arnum færi því tæpast í gang fyrr
en á næsta ári. Hermann Kristjáns-
son sagði verð á þessum útbúnaði
ekki vera fullákveðið en hátt þriðju
milljón hefði verið nefnd í sambandi
við ákveðna útfærslu erlendis.
Hermann sagði mikla möguleika
vera á markaði fyrirtækisins en þær
ætluðu að fara hægt af stað og ekki
gleypa heiminn í einum bita, -
kannski tveim. - Þátttaka í Eureka-
samstarfinu hefði reynst mjög já-
kvæð bæði til kynningar á tækni
fyrirtækisins og væri góður vett-
vangur til að afla samstarfsaðila um
frekari tækniþróun.