Morgunblaðið - 13.06.1992, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JUNI 1992
23
Greiðslukortafyrirtækin:
Má stöðva greiðsl-
ur sem ekki hafa
verið innheimtar
ÞEIR viðskiptavinir Flug-ferða-Sólarflugs, sem greitt hafa fyrir far-
seðla sína með greiðslukorti, munu að öllum líkindum því aðeins sleppa
við fjárhagstjón að þeir hafi ekki greitt greiðslukortareikninga sína
nú þegar. Að sögn forsvarsmanna greiðslukortafyrirtækjanna er hægt
að stöðva greiðslur, sem ekki hafa þegar verið innheimtar. Þeir, sem
standa áttu skil á greiðslum fyrir ferðir sínar til kortafyrirtækjanna
um næstu mánaðamót, geta því að öllum líkindum rift viðskiptum sín-
um við ferðaskrifstofuna.
Símalínur voru
rauðglóandi hjá
Visa íslandi og
Kreditkortum hf. í
gær þar sem fólk
vildi vita hvort
hægt væri að
stöðva greiðslur
fyrir farseðla, sem
fyrirsjáanlega eru
einskis nýtir. „Ef
fólk er búið að
greiða korta-
reikninginn er erfitt að breyta því.
Það er þá nákvæmlega eins og fólk
hafi borgað með peningum," sagði
Grétar Haraldsson, forstöðumaður
þjónustusviðs hjá Kreditkortum hf.,
í samtali við Morgunblaðið. „Það,
sem er hins vegar ógreitt og kemur
til greiðslu til dæmis 2. júlí, er í
skráningu hjá okkur þessa dagana
og hægt að stöðva það. Við munum
að sjálfsögðu aðstoða þetta fólk.
Við höfum beðið það að koma með
skriflega kvörtun til okkar og afrit
af greiðsluseðlinum eða samningn-
um. Við verðum að hafa þau
sönnunargögn í höndunum til þess
að korthafinn fái ekki þessa
greiðslu á sig um næstu mánaða-
mót.“
Grétar sagði að flestir, sem
hringt hefðu í fyrirtækið, hefðu
greitt farseðla sína nýlega og yrðu
því ekki fyrir ijárhagstjóni. Þess
vegna mætti segja að Flugferðir-
Sólarflug hefðu hætt starfsemi á
heppilegum tíma. Hefði fyrirtækið
haldið starfsemi áfram fram yfir
næsta Eurocard-gjalddaga hefði
greiðslan verið innheimt, en við-
komandi viðskiptavinir e.t.v. átt
pantað flug í júlí eða ágúst og því
tapað fjármunum sínum.
Leifur Steinn Elísson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri hjá Visa íslandi,
sagði að stjórn fyrirtækisins myndi
ákveða hvernig farið yrði með mál
þeirra, sem greitt hefðu farseðla
hjá Sólarflugi með Visakorti. „Okk-
ur ber ekki lagaleg skylda til að
leysa úr þessum málum fyrir kort-
hafana," sagði hann. „Hitt er annað
mál að við getum stöðvað greiðslur
þeirra, sem borguðu t.d. í dag, gær
eða fyrradag. Það er verra með þá,
sem greiddu farseðla sína kannski
í nóvember á síðasta ári. Þar er ég
hræddur um að korthafinn standi
ekki betur að vígi en ef hann hefði
greitt í reiðufé og verði því að gera
almenna kröfu í þrotabú fyrirtækis-
ins.“
Engar tölur liggja ennþá fyrir
um hversu margir af um 2.200 við-
skiptavinum Sólarflugs, sem áttu
pantað flug, hafa greitt með
greiðslukorti. Ekki er heldur ljóst
hversu stór hluti þeirra, sem notuðu
greiðslukort, mun geta rift viðskipt-
unum.
Listflugsveit
ítalska
flughersins
LISTFLUGSVEIT ítalska flug-
hersins hafði viðdvöl á Keflavík-
urflugvelli í gær, en sveitin var
á leið vestur um haf í sýningar-
ferðalag. Sveitin hefur aðsetur í
Rivolto í norðaustur Ítalíu og
ætlaði héðan til Syðri Straum-
fjarðar á Grænlandi, sem er
næsti viðkomustaður hennar á
fluginu vestur um haf. Alls eru
20 flugmenn í sveitinni, en for-
ingi þeirra er Tonini.
Ásgeir Ebenezersson gegn Fjárfestingarfélaginu:
Ljósmynd: Joe Quimby
Málinu vísað frá vegna
vanreifunar bótakrafna
SKAÐABÓTAMÁLI sem hjónin Ásgeir Ebenezersson og Guðlaug
Jónsdóttir höfðuðu gegn Fjárfestingarfélagi íslands fyrir bæj-
arþingi Reykjavíkur var vísað frá dómi í gær vegna vanreifunar
bótakrafna stefnenda. í dóminum segir að ósamræmi málsástæðna
og kröfugerðar sé slíkt að telja verði brýnt brot á meginreglum
réttarfarslaga um skýran og glöggan málatilbúnað og fullnægj-
andi reifun máls.
Stefnendur lýstu málavöxtum
svo fyrir bæjarþingi að þeir hafí
leitað til Fjárfestingarfélagsins
vegna greiðsluerfiðleika í mars
1988. Þá áttu þeir eignir að verð-
mæti 46,6 milljónir kr., þ.e. einbýl-
ishús, verslunarhúsnæði í Kringl-
unni, leigusamning um verslunar-
húsnæðið og tískuvöruverslunina
Markús í Austurstræti. Þeir hafi
þegið lán frá stefnda, þ.e. Fjárfest-
ingarfélaginu, til að greiða upp
áhvílandi lán af einbýlishúsinu auk
lána til að greiða upp aðrar lausa-
skuldir. Þá hafi stefnendur afsalað
sér rétti til veðsetninga eða sölu á
eignum sínum og rétti til leigu-
greiðslna samkvæmt leigusamningi
um verslunarhúsnæðið í Kringlunni
gegn þessari fyrirgreiðslu. Stefndi
hafi hins vegar ekki staðið við
skuldbindingar sínar, hvorki gagn-
vart stefnendum né veðhöfum ein-
býlishússins. Allar áhvílandi skuldir
stefnenda hafi hækkað verulega frá
undirritun lánssamningsins. Stefn-
endur kröfðust þess að Fjárfesting-
arfélagið yrði dæmt til að greiða
rúmar 38,8 milljónir kr. ásamt
dráttarvöxtum frá 1. apríl 1988 til
greiðsludags. Bótakrafan byggði á
því að gera stefnendur sem líkast
setta ljárhagslega og ef um engan
samning eða aðstoð frá stefnda
Guðrún sagði að kannanir
sýndu að nemendur í grunnskólum
borgarinnar byggju engan veginn
við fullnægjandi aðstæður hvað
mat varðaði. Dæmi væru um að
börn kæmu nestislaus í skólann
og hefðu ekki fengið morgunmat
heima hjá sér.
hefði verið að ræða.
Málinu var vísað sjálfkrafa frá
dómi og málskostnaður felldur nið-
ur. í dóminum sagði að málsgrund-
völlur stefnenda feli í sér að eðlilegt
samhengi milli málsástæðna og
bótakröfu skorti sem geri það að
verkum að efnisdómur verði ekki
lagður á málið eins og það liggi
fyrir. Dóminn kváðu upp Eggert
Oskarsson, borgardómari, Dóra
Guðmundsdóttir, fulltrúi yfirborg-
ardómara, og Stefán D. Franklín,
löggiltur endurskoðandi.
Árni Sigfússon sagði að um-
ræða um þessi mál væri vel á veg
komin í skólamálaráði. Óskað
hefði verið eftir því við formann
Samfoks að samtökin legðu fram
hugmyndir um hvernig þessum
málum yrði best háttað í skólum.
Tillögu um mat í skólum
vísað frá í borgarstjórn
TILLÖGU Guðrúnar Ágústsdóttur um að borgarsljórn samþykki
að fela fræðsluyfirvöldum í borginni að undirbúa áætlun um að
bjóða upp á mat í grunnskólum Reykjavíkur var vísað frá á fundi
borgarstjórnar í síðustu viku. Tillögunni var vísað frá með þeim
rökum að hún ætti lítið erindi inn í umræðu sem þegar væri kom-
in af stað.
V;
6
41*^
I
PfFjSs
m
1!
cíi'l
Lt
U*.
[■SÍhA,
í&j
> .
’i- •* * :* •/ '•: .• . ?:&.. :■ ■*■:*
NYI HERJOLFUR
Á HRINGFERÐ
UM LANDIÐ
Til sýnis við Ægisgarð, Reykjavíkurhöfn í dag
Við bjóðum ykkur velkomin um borð
i Herjólf, nýtt og glæsilegt farþegaskip
sem nú er á hringferð um landið.
Herjólfur verður landsmönnum til
sýnis á eftirtöldum stöðum:
Reykjavík laugardaginn 13. júní
Akranesi sunnudagnn 14. júní
ísafirði mánudaginn 15. júní
Sauðárkróki þriðjudaginn 16. júní
Akureyri miðvikudaginn 17. júní
Eskifirði fimmtudaginn 18. júnl
Sími 98-12800 Vestmannaeyjum, fax 98-12991
Box 320, 902 Vestmannaeyjar