Morgunblaðið - 13.06.1992, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1992
25
Rafsanjani
Öeirðir
í Iran
Forseti írans, Akbar Hashemi
Rafsanjani, skipaði öryggis-
sveitum að bæla mótmæli og
óeirðir gegn stjómvöldum niður
af fullri hörku. Að undanförnu
hafa borist fregnir af mótmæl-
um í nokkrum írönskum borg-
um og nýlega voru átta menn
dæmdir tii hengingar vegna
þátttöku í jieim. Óánægja fer
vaxandi í Iran vegna mikillar
verðbólgu og bágra lífskjara.
Orð Rafsanjanis koma í kjölfar
mikilla óeirða sem urðu í hinni
heilögu borg, Mashad, í síðasta
mánuði. í þeim voru tugir opin-
berra bygginga, banka og versl-
ana brenndir. Forsetinn sagði
að óeirðimar væru skipulagðar
af öflum sem vildu binda enda
á írönsku byltinguna og hét því
að þeim yrði ekki að ósk sinni.
Krímbúar fá
sjálfstjórn
SAMKOMULAG náðist í gær
um að Krímbúar fái aukna sjálf-
stjórn í málum sínum frá Úkra-
ínumönnum. Talið er að sam-
komulagið muni draga úr kröf-
um Krímbúa um sjálfstæði eða
sameiningu við Rússland en
flestir Krímbúa em rússnesku-
mælandi. Krímarþing lýsti yfír
sjálfstæði landsins í maí en dró
yfírlýsinguna til baka eftir hörð
viðbrögð frá Úkraínumönnum.
Ordonez segir
af sér vegna
heilsubrests
Utanríkisráðherra Spánar,
Francisco Fernandez Ordonez,
hefur óskað eftir að vera leyst-
ur frá störfum vegna slæmrar
heilsu. Ordonez hefur verið ut-
anríkisráðherra Spánar síðan
árið 1985 og mótað utanríkis-
stefnu þeirra á tímabilinu. Búist
er við því að nýr utanríkisráð-
herra verði skipaður í næstu
viku.
Finnar banna
innflutning á
ódýru víni
FINNSK stjórnvöld hafa hert
reglur um innflutning ferða-
manna á áfengi til Finnlands
til að stemma stigu við straumi
af ódýru rússnesku víni, sem
flæðir yfír landamærin. Rúss-
neskum og finnskum ferðatöng-
um verður bannað að taka með
sér áfengi yfir landamærin en
talið er að slíkir vínflutningar
hafí verið megintilgangur
margra stuttra ferðalaga yfir
þau. Að undanfömu hefur vax-
andi hópur Rússa haft lifíbrauð
sitt af því að fara til Finnlands
og selja þar ódýr rússnesk vín
fyrir gjaldeyri. Svartamarkaðs-
verð á flösku af sterku, rúss-
nesku víni í Finnlandi er um
700 ÍSK en sams konar flaska
kostar 1.700 krónur í verslun í
Finnlandi.
---------------------
Ar frá fyrstu forsetakosningunum í Rússlandi:
Mótmælí og verkfaUshótanir
gera Borís Jeltsín lífið leitt
Moskvu. Frá Vladímír Todres, fréttaritara Morgunblaðsins.
Reuter
Rússneskir kommúnistar mótmæla við byggingu rússneska sjón-
varpsins í Mosku í gær er ár var liðið frá því Borís Jeltsín var
kjörinn forseti Rússlands. Fólkið krafðist afsagnar Jeltsíns og
mótmælti efnahagsstefnu stjórnarinnar.
HALDIÐ var upp á „Sjálfstæð-
isdaginn" í Rússlandi í gær og
þess minnst að ár er liðið frá
því Borís Jeltsín var kjörinn
forseti en það var langt frá því
að rússneska stjórnin hefði
ástæðu til 'að fagna, enda
hrannast vandamálin upp.
Rússneskir þjóðernissinnar
efndu til mótmæla í miðborg
Moskvu og sökuðu Borís Jeltsín
og stjórn hans um að bjóða Vest-
urlöndum „Rússland til sölu“ og
þröngva vestrænu stjórnarfari
upp á Rússa. Alexander Sterligov,
leiðtogi þjóðernissinna og fyrrver-
andi yfírmaður sovésku leyniþjón-
ustunnar KGB, hvatti rússnesku
þjóðina til að losa sig við „stjórn
föðurlandssvikanna" og „óvinsæl-
an forseta". Sterligov telur að
stjórnarandstaðan geti myndað
„raunverulega þjóðstjórn“.
Á sama tíma gengu um 35.000
kommúnistar og þjóðernissinnar í
átt að byggingu rússneska sjón-
varpsins í Moskvu og kröfðust
þess að stjórnarandstæðingar
fengju að koma reglulega fram í
sjónvarpinu. Daginn áður hafði
yfírmaður sjónvarpsins mælst til
þess að starfsmennirnir kæmu
ekki til vinnu á eigin bílum vegna
hættu á skemmdarverkum. Mót-
mælin við sjónvarpsbygginguna
fóru þó friðsamlega fram.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
kommúnistar og þjóðernissinnar
láta í sér heyra í Moskvu og verk-
fallshótun kolanámamanna í
Vorkúta og Kúsbass er mun alvar-
legri fyrir rússnesku stjórnina.
Námamennirnir eru óánægðir
með að útborgunum launa hefur
hvað eftir annað verið frestað.
Stundum hefur ekki verið hægt
að borga launin út vegna þess að
prentvélamar hafa ekki undan að
prenta seðlana, en stjómin hefur
líka ákveðið að fresta útborgunum
í þeirri von að geta þannig haldið
verðbólgunni niðri. Námamenn-
irnir hótuðu verkfalli ef launin
yrðu ekki greidd fyrir 20. júlí.
Ástandið innan rússnesku
stjórnarinnar er ekki heldur væn-
legt. Jeltsín reyndi að tryggja sér
stuðning yfirmanna hersins og
framkvæmdastjóra iðnfyrirtækja
með því að skipa nokkra þeirra í
stjórnina. Nú skiptast ráðherrarn-
ir í tvo hópa: „rauðu framkvæmd-
astjórana" og „frjálslynda Gajd-
ars-menn“, þ.e. stuðningsmenn
Jegors Gajdars, sem ber hitann
og þungann af róttækum umbót-
um stjórnarinnar.
Frjálslynda aflið innan stjórn-
arinnar vann þó mikilvægan sigur
á fímmtudag er þingið samþykkti
loksins áætlun um einkavæðingu
fyrirtækja. Stjórnarandstaðan
hafði krafist þess að fyrirtækin
yrðu ekki einkavædd, heldur gerð
að samvinnufyrirtækjum undir
stjórn starfsmannanna.
Nú þegar ár er liðið frá því
Jeltsín var kjörinn forseti Rúss-
lands er hann enn „milli tveggja
elda“. Margir Rússar velta því nú
fyrir sér hvort Jeltsín muni berj-
ast áfram fyrir umbótum og
stefna vinsældum sínum í hættu
eða mynda bandalag með aftur-
haldsöflunum. Hann lofaði þó í
sjónvarpsviðtali á fímmtudag að
halda áfram á sömu braut og láta
ekki undan þrýstingi harðlínu-
kommúnista.
•fcf
'jim'Á'jii iíjijjDnjj jj n
JjjjliiilitZALA HliBlUUhJj JJ
'JilÍúSþu OO-'JIi’jIíJJiláALa JJAr jlAitxlltDi
'JÉiSLlJj J OO J'JjjJUJiJJ^i^ iJiJJj JJiJJJ^ J J1